Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 46
46
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
Það eru
alltaf jólin
Kjá okkur
Okkur tókst aö
útvega 56 stk. í
viöbót af hinum
frábæru hvítu
Electrolux BW
200 uppþvotta-
vélum á aöeins
kr. 26.096.- stgr.
Vorumarkaöurinn hl.[
Heimilistækiadeild. Ármúla 1a. sími 686117.
TUDOR
RAFGEYMAR
- 1
ísetning
inncinhúss
u mixxlsmen n um
land allt
TUDOR
umboðið
Laugaveg 180 - sími 84160
Já —þessir meö 9 lif!
Skákmótið í Vestmannaeyjum:
Hart barist á
mörgum vígstöðvum
Skák
Margeir Pétursson
BANDARÍSKI stórmeistarinn
William Lombardy setti heldur
betur strik í reikninginn á laug-
ardaginn þegar hann mætti ekki
til leiks í skák sína við Jóhann
Hjartarson og tapaði því á tíma.
Lombardy hafði ákveðið að hætta
keppni á mótinu, þar eð hann taldi
skákstjórana á mótinu hafa beitt
sig órétti. Hann hafði þó ekki fyrir
því að tilkynna þessa ákvörðun
sína og héldu menn að hann hefði
gleymt að hann ætti að tefla, eða
villst á göngu úti í hrauni. Því var
hafin leit að Lombardy, sem lög-
reglan í Vestmannaeyjum tók þátt
í. Leitin stóð þó ekki lengi, því eft-
ir að fregnin flaug um bæinn
barst iögreglunni fljótlega til-
kynning um að Lombardy sæti í
setustofu eins gistihússins í bæn-
um, önnum kafinn við að skrifa
mótsstjórninni mótmælabréf.
Aðspurður sagði Lombardy að
keppendur, sem horfðu á æsi-
spennandi skák hans við Ingvar
Asmundsson í áttundu umferð,
hefðu truflað sig og ekkert mark
verið tekið á kvörtun hans til
skákstjóranna. Sævar Bjarnason,
aðstoðarskákstjóri, sagði hins
vegar að hvorki hann né nokkur
keppendi hefði staðið of nærri
borði Lombardys og ef einhver
hefði orðið fyrir truflun þá hafi
það verið Ingvar, því Lombardy
hafi farið að reka áhorfendurna
frá borðinu með látum, í umhugs-
unartíma andstæðingsins.
í níundu umferð tefldi Lomb-
ardy eins og ekkert hefði í skorist,
en er biðskák hans við Ingvar var
tefld áfram sl. fimmtudagskvöld
og á föstudaginn, þegar aðrir
keppendur áttu frí, sat einungis
annar keppandinn við borðið í
einu. Síðan, þegar skákin fór í bið
í þriðja sinn, hafði verið leikið 105
ieikjum og staða Lombardys gjör-
töpuð. Daginn eftir mætti hann
síðan hvorki í 10. umferð gegn Jó-
hanni, né til að halda áfram bið-
skákinni við Ingvar.
Flestir bjuggust við að Lom-
bardy myndi halda til síns heima
eftir þetta, en eftir langt símtal
við Jóhann Þóri Jónsson móts-
stjóra, skipti hann um skoðun og
tilkynnti að hann myndi tefla dag-
inn eftir.
Þeir sem hneykslaðastir voru á
framkomu Bandaríkjamannsins
voru hinir erlendu keppendurnir.
Þeir Short og Tisdall sendu bréf
til mótstjórnarinnar og kröfðust
þess að Lombardy yrði vísað úr
mótinu, en Guðmundur Arnlaugs-
son, yfirdómari, taldi að slík
viðbrögð myndu gera illt verra og
mun Lombardy því væntanlega
tefla mótið á enda.
Þess má að lokum geta að þó
Jóhann Hjartarson hafi þarna
fengið ókeypis vinning á kostnað
Lombardys, reiknast ótefldar
skákir ekki með til stórmeistara-
áfanga og á Jóhann nú litla eða
enda möguleika á að ná því tak-
marki sínu.
Úrslitin um helgina:
10. umferð:
Jóhann — Lombardy 1—0
Björn — Bragi 'k — 'h
Short — Plaskett 0—1
Jón — Helgi 'h-'h
Ásgeir — Guðmundur 'k — 'h
Karl — Lein 'k-'k
Tisdall — Ingvar 'k — 'k
11. umferð
Helgi — Karl 'k-'k
Lombardy — Jón 'k — 'k
Jóhann — Tisdall 'k — 'k
Plaskett — Ingvar 1—0
Bragi — Short 0—1
Lein — Ásgeir 1—0
Guðmundur — Björn 1—0
Lombardy hætti við að hætta í mót-
inu.
Heilladísirnar hafa nú loksins
tekið Plaskett í sátt. Ingvar féll á
tíma gegn honum í betri stöðu,
vegna þess að hann hafði skrifað
skákina vitlaust niður og ranglega
talið að tímamörkunum væri náð.
Eftir að hafa tapað sjö fyrstu
skákunum, hefur Plaskett nú unn-
ið fjórar í röð.
Staðan eftir 11 umferðir:
1. Lein 8'k v.
2. -3. Helgi og Jóhann 7'k v.
4. Guðmundur 7 v.
5. -6. Jón og Karl 6'k v.
7. Short 6 v. og biðskák
8. Lombardy 6v.
9. Tisdall 5'k v.
10. Plaskett 4
11. Ingvar 3'k v. og biðskák
12. Ásgeir 3'k v.
13. Bragi 2'k v.
14. Björn l'k v.
Lítum nú á lengstu skák mót-
sins, sem væntanlega verður einn
ig sú sögulegasta:
Hvítt: Ingvar Ásmundsson
Svart: William Lombardy
Pirc vörn
1. e4—g6, 2. d4—Bg7, 3. Rf3—d6, 4.
Be2—Rf6, 5. Rc3—0—0, 6.
0—0—c6, 7. h3—Dc7, 8. Be—e5, 9.
dxe5—dxe5, 10. a4—Rh5, 11.
Bc4—Rf4,12. Dbl?
Furðurlegur leikur. Svartur
hrifsar nú til sín frumkvæðið.
De7, 13. a5—Df6, 14. g3!? Rxh3+,
15. Kg2—h5?
Hvítur fórnaði h3 peöinu með
það fyrir augum að koma Rh3 í
vandræði, en sú áætlun hefði mis-
heppnast ef svartur hefði leikið
15 ... Bg4 og ef 16. Rh2 þá Rg5! 17.
Rxg4—Df3+,
16. Dcl—Bg4, 17. Be2—Rd7, 18.
Hhl—g5, 19. Rxg5—Bxe2 20.
Hxh3?!
Hvítur hefði staðið mun betur
eftir 20. Rxe2.
—Bg4, 21. Hh4—Bh6, 22.
Hxg4?!—hxg4, 23. Ddl—Bxg5, 24.
Dg4—Dg6, 25. Bxg5—f6!
Svartur fær nú mjög öfluga
gagnsókn, en það var farið að sax-
ast ískyggilega á tímann hjá báð-
um og taflmennskan fram í 40.
leik geldur fyrir það.
26. Dxd7—fxg5, 27. Dxb7-Df6, 28.
Db3+—Kg7, 29. Rdl—Had8, 30.
I)e3—g4?
Kæruleysislegur afleikur.
Lombardy hefur ofmetið sóknar-
færi sín, eða gleymt peðinu á a7.
Svartur hefur betur eftir 30 ...
Hf7.
31. Dxa7+—Hf7, 32. De3—Dg6, 33.
a6—Dh5, 34. Kfl!— Hd4? 35. Ke2,
35. a7!, var einnig mögulegt, því
hvítur lifir af eftir 35 .... Dhl+,
36. Ke2—Hxe4, 37. a8=D
—Hf3.
36. a7!—Hxe3+, 37. Rxe3—Hd8, 38.
a8=D—Hxa8, 39. Hxa8—Dhl, 40.
Ha7+—Kg6, 41. Ha4.
Biðleikur hvíts. Nú er komin
upp afar lærdómsrík staða, sem er
líklega unnin fyrir hvít, þó úr-
vinnslan hljóti að taka langan
tíma. Ingvar vandar mjög til
hennar og nú hefjast 8 klukku-
stunda og 66 leikja andlegar pynt-
ingar:
Df3+, 42. Kel—Dhl+, 43.
Ke2—Df3+, 44. Kel—Dhl+, 45.
Kd2—DÍ3, 46. Rdl-Kf7, 47.
Hc4—Df6, 48. Kel—Df3, 49. b3—
Ke7, 50. Rb2—Dhl+, 51. Ke2—
DÍ3+, 52. Kel—Dhl+, 53. Kd2—
Dh6+, 54. Ke2—Dhl, 55. Rd3—
Kd6, 56. Kd2—I)h6+, 57. Kc3—
Dhl, 58. Kb2—Dg2, 59. Ka2-Dhl,
60. Kb2—Dg2.
61. Hc5!.
Loksins telur Ingvar sig hafa
bætt stöðuna nægjanlega og lætur
til skarar skríða.
Dxe4, 62. Hxe5-Dd4+, 63.
Kcl—Dal+, 64. Kd2—Dd4, 65.
Hc5—Kc7, 66. Hc4-Dd7, 67.
Kcl—Df5, 68. Hf4—De6, 69. Rb2!.
Hvítur hefur valið sér fyrsta
fórnarlambið, þ.e. peðið á g4.
Dh6, 70. Rc4—Dhl+, 71.
Kd2—Dd5+, 72. Ke2—De6+, 73.
Re3—Kb6, 74. Hxg4—Kb5, 75.
Hh4—De8, 76. Kf3—Df7+, 77.
Kg2—De8, 78. Kf3-Df7+, 79.
Hf4—Dh5+, 80. Kg2—De8, 81.
g4—c5, 82. Hc4—De5, 83. Kf3—
Df6+, 84. Ke2—De7, 85. Hf4—De5,
86. Kf3—De7, 87. Hf5—Db7+, 88.
Kg3—Dc7+, 89. Kf3—Dh7, 90.
g5—Kb4, 91. Hf4+—Kc3, 92.
Hg4!—Kd2, 93. g6—Db7+, 94.
Kg3—Db8+, 95. Kg2—Da8+, 96.
Kgl—Dal+, 97. Kh2—Dh8+, 98.
Kg3—Db8+, 99. Kh4—Dh8+, 100.
Kg5—Dd8+, 101. Kf5—Df8+, 102.
Ke6—De8+, 103. Kd5—Dd7+, 104.
Kxc5—Dc7+, 105. Kd5 og Lom-
bardy féll á tíma. Það undrar
áreiðanlega engan að þessi með-
ferð hafi farið í fínustu taugar
Bandaríkjamannsins, sérstaklega
eftir það sem á undan var gengið,
en það verða allir að kunna að
tapa.
Að lokum vil ég þakka setjurum
Morgunblaðsins því það er ekkert
smáræðis verk að setja 105 leikja
skák.