Morgunblaðið - 11.06.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
ERNA JÓNSOÓTTIR,
Drangavöllum 3,
Kaflavfk,
andaöist aöfararnótt 9. júní.
Siguröur Q. Ólafaaon,
Þóra Björk Nikulósdóttir,
Sigurbjörg Siguröardóttir,
Óli Jón Sigurösson.
t
BALDUR ÞORGILSSON
frá Veatmannaeyjum,
áöur til heimilis Miöstræti 3,
er látinn.
JaröarförinferframfráOómkirkjunniföstudaginn 14. júníkl. 10.30.
Ruth Einarsdóttir,
Þorgils Þröstur Baldursson.
t
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir,
JANUS GUÐMUNDSSON,
Hliöarbraut 10b, Hafnarfiröi,
áöur Hafnargötu 41, Kaflavík,
lést t elli- og hjúkrunarheimillnu Sólvangi sunnudaginnn 9. júní.
Friörika Friöriksdóttir,
Lára Janusdóttir, Guölaugur B. Þóröarson.
t
Bróðir okkar,
HÖRÐUR GUNNARSSON
frá Þverórdal,
andaöist í New York 26. maí. Útför hans hefur farið fram í Reykja-
vík.
Ingibjörg, Páll,
Árni og Orn.
t
Eiginmaöur minn,
JÓNAS GUÐMUNDSSON
rithöfundur,
iést í Borgarspítalanum sunnudaginn 9. júní.
Jaröarförin veröur auglýst síöar.
Jónina H. Jónsdóttir.
t
Bróöir okkar,
ÓSKAR GUDMUNDSSON,
Heysholti, Landsveit,
lést á heimili sínu sunnudaglnn 9. júni.
Sigríöur og Margrát Guömundsdætur.
t
Bálför föður okkar, tengdafööur og afa,
GUDJÓNS B. JÓNSSONAR
bifreiöastjóra,
Laugavegi 67 A,
veröur gerö frá Hallgrímskirkju miövikudaglnn 12. júní kl. 13.30.
Þeim sem vlldu minnast hins látna er bent á Hjartavernd.
Fyrir hönd tengdabarna og barnabarna.
Erla Björg Guöjónsdóttir, Dagfinnur Ólafsson,
Guóbjörg Svala Guójónsdóttir, Ólafur Hauksson,
Siguröur Viöar Guójónsson, Anna Fugaro,
Jón Kristinn Guöjónsson.
t
Eiginmaður minn,
GUNNAR THORLASIUS BJARGMUNDSSON
Hrafnistu,
áóur Hólmgarði 22,
er dáinn. Jaröarför hans hefur fariö fram. öllum þeim, sem heiöruöu
minningu hans meö krönsum, blómum og mtnningjargjöfum og
sýndu mér hlýhug og hluttekningu, sendi ég mínar hjartans þakkir
svo og öllum læknum ásamt starfsfólki á sjúkrahúsum og Hrafnistu
er önnuöust hann síöustu mánuöina vil ég þakka af heilum hug.
Margrát Björg Sturludóttir,
Hrafnistu.
Hildur Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 17. júlí 1908
Dáin 31. maí 1985
I dag verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni Hildur Jónsdóttir,
Holtsgötu 22.
Hildur var fædd í Reykjavík 17.
júlí 1908. Foreldrar hennar voru
Þórdís Sigurlaug Benónýsdóttir
ættuð af Kjalarnesi og Jón Jóns-
son sjómaður, ættaður frá Ána-
naustum. Hildur var yngst af sex
börnum þeirra hjóna. Elst var
Þórdís f. 8. september 1895, d. 6.
nóvember 1969. Hennar maður var
Sigurður Pálsson vélstjóri d. 7.
september 1975. Næstur að aldri
var Hilmar sjómaður, d. 1925,
ókv.; Magnús sjómaður, kvæntur
Laufeyju Jónsdóttur, þau eru bæði
látin; Björn vélstjóri, kvæntur
Ingibjörgu Stephensen. Björn lést
19. janúar 1975; Sigurjón drukkn-
aði ungur að árum.
Yngst var svo Hildur er hér
verður minnst. Við Hildur vorum
bræðradætur, hún var yngst
barna Jóns og Sigurlaugar. Jón
var elstur af börnum Hildar
Jónsdóttur og Jóns Björnssonar,
sem bjuggu allan sinn búskap í
Ánanaustum. Næstelstur var
Kristinn trésmiður, kvæntur Jón-
ínu Pálsdóttur frá Neðradal í
Biskupstungum; þá Kristjana,
ógift, d. 1949; yngstur var faðir
minn, Bjöm skipstjóri, kvæntur
Önnu Pálsdóttur. Jónína og Anna
voru systur. Jón föðurbróðir minn,
var tvíburi, tvíburabróðir hans dó
skömmu eftir fæðingu. Eina dótt-
ur misstu afi og amma, tveggja
ára gamla, hún hét Ásta. Stytting
á nafni Ástríðar á Húsafelli sem
hún var heitin eftir. Lýsir það vel
hvað amma okkar hefur verið
ánægð með veru sína á Húsafelli,
og dáð Ástríði, því þetta var fyrsta
eða fyrri dóttir afa og ömmu. Þeg-
ar ég nú minnist Hildar, frænku
minnar, kemur mér fyrst í hug
hvað við vorum samrýndar á aldr-
inum 12—15 ára. Þó frekar langt
væri á milli, ég í Ánanaustum,
vestast í Vesturbænum, en hún á
Bergstaðastræti 30, þar sem for-
+
Eiginmaöur minn,
EINAR VIGFÚSSON
fyrrverandi útvarpavirki og atarfsmaöur ríkisútvarpsina,
Stórageröi 11,
sem lést í Borgarspítalanum 6. þessa mánaöar, veröur jarösunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. þessa mánaöar kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Hulda Sveinbjörnsdóttir.
t
Hjartanlega þökkum viö öllum þeim sem veittu hjálp og og sýndu
okkur samúö og vinarhug viö fráfall og útför eiginmanns míns og
sonar okkar
SIGURÐAR ARNAR ADALSTEINSSONAR
er lést af slysförum 26. maí st.
Fyrir hönd barna, systkina og annarra vandamanna.
Ingíbjörg A. Sveinsdóttir, Aðalsteinn örnólfsson,
Elín Eirfksdóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og aöstoö vegna andláts og
útfarar,
JÓNS ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR
ó Bóreksstöðum.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á sjúkrahúsinu á Akra-
nesi, Bændaskólans á Hvanneyri, kirkjukórs og sóknar Hvanneyrar-
kirkju og söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar.
Siaurborg Ágústa Jónsdóttir,
Ragnhildur Hrönn Olafsdóttir, Óskar Eggerts Sverrisson,
Jón Ólafsson,
Guóbjörg Ólafsdóttir, Siguröur Oddur Ragnarsson,
Guðmundur Ólafsson, Guóný Halla Gunnlaugsdóttir,
Sigríöur Ólöf Ólafsdóttir
og barnabörn.
Guömundur Jónsson fró Hvanney ri,
Sólveig Gyóa Guömundsdóttir, Gunnar Ólafsson,
Ásgeir Guómundsson, Sigrlöur Jónsdóttir,
Siguröur R. Guömundsson, Katrfn Árnadóttir
og fjölskyldur.
Lokað
Skrifstofa okkar, timbursala og vélarhús, veröa lokuð
frá kl. 13.00-15.00 í dag, þriöjudaginn 4. júní, vegna jarö-
arfarar JÓNS GUNNARS KRISTINSSONAR.
Slippfélagiö Reykjavík hf.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
S.HEIGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 SIMI 76677
■■I
eldrar hennar bjuggu þar til þau
keyptu húsið á Framnesvegi 22A,
sem þau áttu heima í til dauða-
dags. Mér finnst ég hafi komið
oftar til þeirra, en hún til
okkar. Sótti ein ósköp í að fara
upp á Bergstaðastíg, sem gatan
var nefnd í þá daga.
Þótti systkinin öll fjarska
skemmtileg. Og mér, stelpunni,
tekið eins og ég væri bara vel þeg-
inn gestur. Ég man alltaf þegar
Lauga mamma þeirra kom með
bakkann. Sterkt og gott kaffi, fin-
ar heimabakaðar kökur og rjómi í
fallegu, litlu könnunni. Heima var
ég auðvitað ekki látin drekka lút-
sterkt kaffi, uppeldisatriði.
Við Hildur vorum fermdar með
viku millibili. Hún 8. október 1922
hjá séra Jóhanni, ég 15. október
1922 hjá séra Bjarna. Þá var nú
Dísa frænka í essinu sínu ásamt
móður minni. Við fengum allt
nákvæmlega eins, fermingarkjól-
ana, eftir-fermingarkjólana, káp-
urnar og hvíta skó við hvítu kjól-
ana, og há upphneppt svört stígvél
með glanstá. Heldur betur fínar,
allt saumað hjá Rebekku, einni
þekktustu saumakonu bæjarins.
Veturinn eftir ferminguna vorum
við báðar sendar i handavinnu-
tíma til Gislínu frá Ólafsbakka og
Elínborgar Benediktsdóttur, þær
voru þá nýkomnar frá námi í
Kaupmannahöfn.
Svo var það sumarið 1923 að við
vorum báðar í þurrfiski í Alliance,
við breiðslu og samantekningu.
Alliance var alveg við heimili
okkar í Ánanaustum. Þarna
fannst mér Hildur vera al-
skemmtilegasta stelpan, sem ég
þá hafði kynnst. Hvað ég öfundaði
hana, hún var svo fljót að svara
þegar bæði strákarnir, sem áttu
að stjórna á stakkstæðinu og eldri
konurnar voru eitthvað að vanda
um við okkur. Hún var hnittin og
spaugsöm og öllum þótti gaman að
henni. Ég ósköp feimin og upp-
burðarlítil.
Hildur stundaði nám í kvöld-
skóla KFUM og jafnframt í
handavinnu, lærði að spila á orgel
og seinna á píanó, var músikölsk
vel. Handavinnan var henni samt
hugleiknust, hún hafði mjög gott
litaskyn. Enda kenndi hún mörg-
um konum, sem leituðu síðan til
hennar og fengu ráðleggingar og
tilsögn.
Hún hélt sýningar á hannyrð-
um, bæði á heimili sinu i Efsta-
sundi og seinna á Hallveigarstöð-
um, sem voru rómaðar fyrir
smekkvísi.
Hildur giftist dönskum manni,
Börge Petersen, þau eignuðust
einn son, Hilmar Sigurjón, f. 15.
janúar 1937. Þegar þau skildu,
Hildur og B. Petersen, var Hilmar
tekinn í fóstur til Þórdísar móð-
ursystur sinnar og manns hennar,
Sigurðar Pálssonar. Reyndust þau
honum mjög vel í alla staði.
Seinni maður Hildar var Helgi
Kjartansson skipstjóri ættaður af
Suðurnesjum. Þau eignuðust eina
dóttur, Guðriði f. 14. nóvember
1944. Hennar maður er Sigurður
Sigurðsson slökkviliðsmaður. Þau
eru búsett í Njarðvíkum ásamt
tveimur börnum sínum, Helga og
Hildi. Hilmar á einn son uppkom-
inn. Hildur og Helgi áttu mörg
seinustu árin heimili sitt á
Holtsgötu 22, sem var ákaflega
smekklegt og myndarlegt og gott
þar að koma.
Hildur rak verslun í nokkur ár,
Silkibúðina við Laufásveg. Það var