Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 53
eftir að Helgi hætti á sjónum og
var hann henni hjálplegur með
ýmsar útréttingar. En svo veiktist
Helgi og varð þá Hildur að hætta
með verslunina, sem ég veit að
henni þótti miður.
En hvað skal gera þegar veik-
indi steðja að. Hildur annaðist
mann sinn af mikilli alúð, bæði
heima og þegar hann var á sjúkra-
húsum. Helgi lést 8. maí 1978.
Eftir að Hildur missti mann
sinn kenndi hún töluvert hannyrð-
ir heima hjá sér. Hilmar, sonur
hennar, hefur verið til heimilis
hjá henni þegar hann er í landi.
Hildur var alltaf ungleg, kvik á
fæti og vel á sig komin, skemmti-
leg og greind í besta lagi.
Hún var farin að missa sjón, svo
hún gat ekki með góðu móti lesið
eða unnið handavinnu. Voru það
henni eðlilega mikil vonbrigði. En
við sem eldumst verðum að sætta
okkur við að missa eitthvað af því,
sem okkur var gefið í upphafi.
Hildur fékk hjartaáfall í mars í
vetur, en komst á fætur og dvaldi
eftir það mest á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar í góðu yfir-
læti.
Fékk hún svo aftur áfall 31. maí
og var þar með hennar jarðneska
lífi lokið. Blessuð sé minning
hennar.
Ég sendi ykkur, börnum hennar,
tengdasyni, barnabörnum, Mar-
gréti, fóstursystur hennar, og öðr-
um ættingjum innilegar samúðar-
kveðjur. ^
Friður sé mfeð hinni látnu.
Ásta li. Björnsdóttir
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má
næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir
nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá
mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum
mínum;
þú smyr höfuð mitt með olíu;
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla æfidaga
mína,
og í húsi Drottins bý ég langa æfi.
(Davíðssálmur)
Látin er nú frábær amma, fórn-
fús móðir og mikil hannyrðakona.
Hún fæddist í Björnsbæ í Ána-
naustum 17. júlí 1908. Foreldrar
hennar voru hjónin Þórdís Sigur-
laug Benónýsdóttir og Jón Jóns-
son. Amma var yngst af stórum
systkinahópi, eftirlifandi er fóst-
ursystirin Anna Margrét Carlson.
Amma var tvígift og seinni
maður hennar var afi okkar, Helgi
Kjartansson skipstjóri, sem lést
fyrir sjö árum.
Amma var þekkt hannyrðakona
og hélt hún nokkrar sýningar á
verkum sínum. Einnig kenndi hún
útsaum í Reykjavík og út um land.
Amma var einnig unnandi kvæða
og klassískrar tónlistar og spilaði
hún oft á píanóið fyrir okkur
systkinin. Hún kunni ógrynni
kvæða og málshátta og var með
afbrigðum orðheppin. Sögurnar
sem hún amma sagði okkur fyrir
svefninn voru orðnar margar.
Seinna tók hún okkur með upp i
sumarbústað kvenfélags Öldunn-
ar, þar sem við skemmtum okkur
vel og áttum saman góðar stundir.
Amma var líka matreiðslusnill-
ingur, hafði hún gaman af því að
gefa okkur að borða og þá sér-
staklega vöfflurnar sem hún var
sérfræðingur í að baka.
Ekki er hægt að minnast ömmu
án þess að nefna hann afa. Afi var
skipstjóri á togurum og því oftast
til sjós. Hann var góður drengur
hann afi og virtur og vel látinn
skipstjóri. Hann andaðist eftir
langa og erfiða sjúkralegu aðeins
64 ára gamall.
Við systkinin munum alltaf
varðveita minningu þeirra innra
með okkur, hjálpsöm og góð voru
þau alla tíð. Við þökkum þeim all-
ar samverustundirnar og óskum
þeim blessunar Guðs.
Dótturbörnin, Hildur og Helgi.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
53
Jón Gunnar Kristins-
son (Billy) - Minning
Fæddur 12. mars 1932
Dáinn 3. júní 1985
Ekki grunaði mig, að ég væri að
kveðja vin minn í hinzta sinn er
við kvöddumst á Sjómannadaginn
hinn 2. júní sl., að hann yrði allur
tæpum degi síðar. Hann lézt að
morgni 3. júní. Þetta sýnir glöggt
hve skammt er milli lífs og dauða
og nauðsyn þess að kveðjast vel
hverju sinni, því enginn veit hve-
nær feigðin kallar. Bálför hans
verður gerð í dag.
Billý, eins og hann var alltaf
kallaður af okkur vinum hans, var
fæddur í Reykjavík hinn 12. marz
1932, Reykjavíkurbarn í húð og
hár. Foreldrar hans voru þau
hjónin Einara A. Jónsdóttir,
saumakennari og kjólameistari og
eiginmaður hennar, Kristinn
Helgason. Einara lifir son sinn,
öldruð móðir og rúmföst á Landa-
kotsspítala, og er harmur hennar
og söknuður mikill. Föður sinn
missti Billý á barnsaldri og var
alinn upp hjá móður sinni og síðar
einnig fóstra sínum, Hirti Krist-
mundssyni f.v. skólastjóra Breiða-
gerðisskóla, en þau Einara og
Hjörtur giftust og bjuggu lengst
af á æskuheimili Billýs, Skóla-
vörðustíg 21 í Reýkjavík.
Kynni okkar Billýs hðfust innan
við fermingaraldur í Láugarnes-
skóla, og tókst strax með okkur
vinátta sem hélzt til hins síðasta
dags þótt leiðir skildu um tíma
vegna skólagöngu og vinnu. Ég
átti þvi láni að fagna að fá að
kynnast heimili og gestrisni hús-
ráðenda á Skólavörðustígnum, og
á góðar minningar þar um. Með
Billý og Hirti tókst mikil vinátta,
sem entist aila tíð unz Hjörtur féll
frá, 17. júní 1983, og var hann öll-
um harmdauði. Hjörtur var ákaf-
lega mikill íslenzkufræðingur,
bæði í nýjum og fornum þók-
menntum og skáldskap, enda vel
hagmæltur sjálfur.
Alla þessa þekkingu og speki
drakk Billý í sig frá unga aldri og
varð nákunnugur íslenzkum
bókmenntum og skáldskap, sér-
staklega íslendingasögunum, sem
voru honum svo kærar og í þær
vitnaði hann alltaf og hafði á
hraðbergi orðréttar tilvitnanir af
mönnum og atvikum, kryddaðar
vísum og kvæðum. Sögurnar og at-
burðirnir gerð svo augljós, sem
skeð hefðu í gær.
Árið 1957 gekk Billý að eiga fai-
lega og glæsilega konu, Sigríði E.
Þórðardóttur frá Vík í Mýrdal, og
eignuðust þau 3 börn saman, Ein-
ar Kristin, Guðna Þór og Ingi-
björgu Völu. Einn son átti Billý
áður, Hjört Magnús. Allt eru þetta
myndarleg og efniieg börn, og er
harmur þeirra og barnabarnanna
sár. Þau Sigríður og Billý siitu
samvistir fyrir fáum árum síðan.
Biliý hóf ungur störf hj4,Slipp-
félaginu í Reykjavík, og var yfir-
maður hans þar hinn kunaí skip-
stjóri og kempa, Karl Guðmunds-
son deildarstjóri timburverzlunar-
innar. Síðar tók Billý við starfi
hans, og vann hann alls u.þ.b. 30
ár hjá Slippfélaginu, unz hann
varð að hætta vegna veikinda.
SVAR
MITT
eftir Billy (íraham
Ég er kristinn æskumaður. Mig langar til að vitna fyrir öðru
æskufólki. Ég er kvíöinn, þegar ég hugsa um framtíð kynslóðar
minnar. Þú ert ríkur að reynslu. Hvaða ráð viltu gefa mér?
Ég gleðst yfir að lesa, að þú vilt ávinna ungt fólk fyrir
Jesúm Krist. Ég hef líka kynnzt þessu hungri meðal
æskufólks og verð þess var í æ ríkara mæli. Það er
eftirtektarvert, að meirihluti þeirra, sem sækja sam-
komur í herferðum okkar, er einmitt ungt fólk, og flestir,
sem taka ákvörðun um að ganga Guði á hönd eru yngri
en 25 ára.
En snúum okkur að spurningu þinni. Ég hef komizt að
þeirri niðurstöðu, að bezta aðferðin til að ná til unglinga
nú á dögum sé að tala opinskátt og málefnalega um
afstöðu þeirra til Guðs. Þeir kæra sig ekki um málskrúð
eða guðfræðilegt tal. Þeir kunna líka vel að meta, þegar
kristnir menn eru vel að sér í Biblíunni og rökstyðja
vitnisburð sin með tilvitnunum úr heilagri ritningu.
Væri ekki gleðilegt, ef þú gætir stofnað Biblíulestrar-
hóp í skólanum þínum? Þú gætir kallað saman ungt fólk,
sem er sama sinnis. Þarna gæti þér gefizt gott tækifæri
til að vitna um hjálpræði Guðs. Láttu samverustundirn-
ar vera ánægjulegar og markvissar.
Þú skalt bjoða með þér öðrum trúuðum, kristnum
æskumönnum. Syngið mikið. Enumframt allt: Rannsak-
ið Biblíuna sameiginlega. Orð Guðs er áhrifamikið. Já,
það er þrungið krafti. — En minnztu þess, að bezti
vitnisburðurinn er lífernið. Hugsaðu um það!
Tökum að okkur að rétta og
tagfæra legsteina í kirkjugörðum.
|
S.HELGASOK HF
STEINSMKMA
SKEMMUVEGl 48 SÍMI ?0657
Hvert veikindaáfallið rak ann-
að, líkamskraftar hans létu undan
smátt og smátt, en andlegur kraft-
ur jafnvel efldist og voru allir sem
furðu lostnir yfir hinum mikla
krafti, sem hann miðlaði öðrum í
ríkum mæli, jafnt sjúkum sem
heilbrigðum. Æðruleysi og trú á
annað líf eftir dauðann var hans
aðal, ásamt kímninni, þessari
makalausu hnitmiðuðu og giettnu
kímni.
Hinn 3. marz sl. var stór dagur
fyrir Billý, er hann réðst í það
stórvirki að flytja eftir nær árs-
dvöl á sjúkrahúsum, bundinn
hjólastól og þjáður, í húsnæði
móður sinnar að Þórsgötu 21,
komast í bækur og menningarleg-
ar minjar, bókasafn fóstra síns.
Þetta var erfitt, en andlegur
kraftur hans jókst samt með
ánægju og gleði. Sverrir konungur
var kominn heim í ríki sitt, og
mánuði síðar, á skírdag hélt hann
vinum sínum hóf eitt mikið og
glæsilegt. Þar veitti höfðingi
glæsilega og var reisn hans og
andlegur styrkur aðdáanlegur.
Hann fann feigð sína nálgast.
Ég veit, að koma hans til fyrir-
heitna landsins hefur verið með
glæsibrag.
Ég veit að ég mæli fyrir hönd
allra vina og vandamanna, og færi
alúðarþakkir öllum þeim sem
stunduðu hann í erfiðum veikind-
um, hjúkruðu honum og önnuðust
um hann af stakri natni. Ég votta
honum Einöru minni elskulegri,
öllum börnunum, ættingjum og
venzlafólki innilega samúð við
fráfall góðs drengs.
Blessuð sé minning hans.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjalfr it sama;
en orðstírr
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getr.
(Hávamál)
Ólafur H. Jónsson
HAG&TÆr/
VERB i
Viðskiptavinir Heklu!
Við bendum á hagstætt
verð á Bremsuklossum.
Komið og gerið góð kaup.
Bremsuklossar í:
Verðkr.:
Golf ...................... 350
Jetta ..................... 350
Passat .................... 360
Colt ...................... 360
Lancer..................... 350
Galant .................... 355
Pajero .................... 550
RangeRoverfr............... 610
Range Rover aft.............490
VIÐURKENND VARA rje
MEÐ ÁBYRGÐ
VISA
SAMA VERÐ
UM LAND ALLT!
RANGE RGVER
[mIheklahf
'' Laugavegi 170 -172 Sími 212 40