Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
55
Bruni í fjölbýlishúsi
EF ELDUR er laus í íbúðinni eða
næriggjandi íbúð hrópið þá ELD-
UR og sjáið til þess að allir viti um
eldinn.
Forðist öngþveiti,
verið róleg
Hringið eftir slökkviliði. Sjáið til
þess að allir komist út. Börn geta
falið sig á hinum ótrúlegustu
stöðum þegar þau eru hrædd.
Athugið því á bak við stóla, í
fataskápum, undir borðum, inni
á baðherbergjum og fleiri stöð-
um, ef börn eru í íbúðinni. Látið
aðra íbúa hússins vita, jafnvel
líka þá í næstu stigagöngum.
I^okid eins mörgum hurðum og
hægt er til að hefta útbreiðslu
eldsins. Læsið þeim þó ekki. Lok-
ið einnig gluggum til að hindra
gegnumtrekk. Athugið að útidyr
íbúða í nýlegum húsum eiga að
geta hindrað útbreiðslu elds í
a.m.k. 15 mínútur. Athugið að
opna aldrei heitar hurðir, eldur-
inn leynist á bak við þær. Notið
aldrei lyftu ef kviknar í. Notið
eldvarða stiga ef þess er kostur.
Vegna þessa er mikilvægt að
Lokið gluggum til að hindra gegn-
umtrekk.
baktröppur, neyðarútgangar og
aðrir útgangar, sem nota má í
neyðartilfellum, séu ekki faldir
bak við ísskápa, pappakassa eða
þess háttar. Þegar allir eru komn-
ir út úr hinu brennandi húsnæði
haldið þá kyrru fyrir úti og bíðið
þar til slökkviliðið kemur. Haldið
fjölskyldunni saman. Byrjið aldr-
ei að leita að verðmætum munum
ojs.frv.
Ef þið hafið ekki möguleika á að
komast út haldið þá kyrru fyrir í
íbúðini. Lokið eins mörgum
hurðum og hægt er til að hindra
útbreiðslu eldsins. Læsið þeim þó
ekki. Haldið fjölskyldunni saman
í herbergi sem lengst frá eldin-
um. Því fleiri dyr sem eru milli
ykkar og eldsins þeim mun
betra. Haldið reyk í skefjum með
því að þétta op og rifur milli
hurða og karma með blautum
handklæðum eða samanvöðluð-
um teppum. Reykurinn er í flest-
um tilfellum hættulegri en hit-
inn og eldurinn. Hann leitar upp
á við og er mettaður eiturefnum.
Haldið ykkur því eins nálægt
gólfinu og hægt er. Athugið
einnig að þið komist lengra með
því að skríða áfram.
Vekið athygli á ykkur með því
að fara út á svalir eða út í glugga
og kalla á hjálp. Ekki hoppa niður
eða klifra út í hugaræsingi. f neyð-
artilfellum getið þið látið ykkur
síga niður eftir samanhnýttum lök-
um eða kaðli ef þið eruð á 1. eða 2.
hæð í húsinu.
Ahugamenn um úrbætur í húsnæðismálum:
Hvetja þingmenn til að beita
sér fyrir frekari útbótum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi bréf sem áhugamenn
um úrbætur í húsnæðismálum hafa
sent öllum þingmönnum:
„Kæri þingmaður.
Nú líður að þinglokum. Það ligg-
ur ljóst fyrir hvaða aðgerðum
ríkisvaldið hyggst þegar beita sér
fyrir í húsnæðismálum á yfir-
standandi ári. Við getum lýst
ánægju okkar með ýmsa þætti
þessara aðgerða, einkum hvað
varðar aukið fjármagn til
Húsnæðisstofnunar og fyrirheit
um uppstokkun á húsnæðiskerf-
inu.
Ennfremur fögnum við þeirri
ákveðnu yfirlýsingu í verkefna-
skrá ríkisstjórnarinnar að komið
verði til móts við þá húsbyggjend-
ur og íbúðakaupendur sem orðið
hafa fyrir skakkaföllum af völdum
misgengis launa og lánskjara á
undanförnum árum, eins og segir í
greinargerð með frumvarpi til
laga um fjáröflun vegna húsnæð-
ismála.
Við leggjum sérstaka áherslu á,
að þegar á næsta ári komi til
framkvæmda þær leiðréttingar
aftur í tímann sem nú eru gefin
fyrirheit um. Hins vegar stendur
vanleystur bráðavandi fjölda fólks
sem bíður skjótrar úrlausnar.
Þess vegna beinum við þeim ein-
dregnu tilmælum til þín að þú
beitir þér fyrir að gefinn verði
kostur á almennri skuldbreytingu
í bönkum og jafnframt verði
framlengdur frestur til að sækja
um viðbótarlán hjá Húsnæðis-
stofnun. Þá verði settar skýrari
reglur um þessa lánafyrirgreiðslu
stofnunarinnar, sem sætt hefur
verulegri gagnrýni.
Þessar lausnir þola enga bið.
Áhugamenn um úrbætur í húsnæð-
ismálum."
SAMA VERÐ
UM LAND ALLT!
Ef þú býrð utan Reykjavíkur og pantar í
póstkröfu einhvern af eftirtöldum vara-
hlutum, greiðum við pökkunarkostnað,
akstur í Reykjavík og póstburðargjald
hvert á land sem er.
Þannig færð þú varahlutina á sama verði
og viðskiptavinir í varahlutaverslun okkar
í Reykjavík.
Hringdu og pantaðu og við sendum
arahlutina samdægurs.
Varahlutir án flutningskostnaðar
Kerti
Platínur
Kveikjulok
Þurrkublöð
Viftureimar
Tímareimar
Stýrisendar
Spindilkúlur
Styrishöggdeyfar
Kúplingsdiskar
Kúplingslegur
Kúplingspressur
Aurhlífar
Höggdeyfar- aftan
Höggdeyf ar - f raman
• Bremsuklossar
• Bremsuborðar
• Bremsuslöngur
• Loftsíur
• Olíusíur
• Bensínsíur
• Flautur
• Bensíndælur
• Vatnsdælur
VIDURKENND VARA MED ÁBYRGD
ga (@)
RAIMQE ROVER
IhIheklahf
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Jltofgtiiiltffifrft
Askriflarsimim er 83033