Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
65
Akranes:
Bjarni Olafsson með
verðmætasta aflann
Akranesi, 7. júní.
HATIÐAHÖLD Sjómannadagsins á Akranesi tókust mjög vel
að þessu sinni, enda vel til þeirra vandað og áhugi bæjarbúa
fyrir þeim mikill. Er það mál manna að framkvæmd þeirra
hafí verið með allra besta móti að þessu sinni og dagurinn því
eftirminnilegri en oft áður.
Akurnesingar í skemmtisiglingu med Sigurbjörgu á sjómannadaginn.
Morgunblaðið/ JG
Lögvemd:
Stöðvuð verði uppboð á
húseignum einstaklinga
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá samtökunum Lög-
vernd:
„Samtökin Lögvernd fara þess á
leit við Alþingi að stöðvuð verði
þegar í stað uppboð á húsgögnum
einstaklinga.
Stjórn Lögverndar hefur kynnt
sér aðdraganda og framkvæmd
uppboða í núverandi mynd og tel-
ur að í flestum tilfellum sé um
gróf mannréttindabrot að ræða af
hálfu embættismanna og stjórn-
valda.
Það er ekki hægt að ganga fram
hjá þeirri staðreynd að verðbólgan
er í mörgum tilfellum orsakavald-
ur uppboða þar sem lán eru verð-
tryggð en laun ekki.
Þúsundir manna vinna tvöfalda
vinnu en tekst samt ekki að ná
endum saman.
Þeir eru orðnir margir í þessu
landi sem fá ekki skilið mikilvægi
þess að koma bórfrumvarpi og lög-
um um útvarpsrekstur gegn um
þingið þegar við blasir jafn alvar-
legt mál og gjaldþrot heimila.
Stjórn Lögverndar hefur orðið
vör við að tilkynningaskyldu hins
opinbera er mjög ábótavant.
Stefnur eru settar í póstkassa
eða fengnar fólki i næstu íbúð.
Einnig hefur skeð að fólk fái alls
ekki tilkynningu um uppboð.
Stjórn Lögverndar fer þess
einnig á leit við Alþingi að gerð
Kennarasamband
íslands:
Lögverndun
á starfsheiti
Á FUNDI fulltrúaráðs Kennarasam-
bands íslands sem haldinn var í
Reykjavík 18. maí sl. var m.a. rætt
um lögverndun starfsheitis og
starfsréttinda kennara.
Á fundinum var gerð eftirfar-
andi samþykkt:
„Fulltrúaráðsfundur Kí, hald-
inn 18. maí 1985, fordæmir að
menntamálaráðherra skuli ekki
hafa lagt fram frumvarp til laga
um lögverndun á starfsheiti og
starfsréttindum kennara sem
nefnd á vegum menntamálaráðu-
neytisins hefur unnið að í vetur.
A Alþingi 14. maí sl. kom fram
að menntamálaráðherra fól full-
trúum ráðuneytisins í nefndinni
að vinna að frumvarpi um lög-
verndun, ekki einungis á starfs-
heiti heldur einnig á starfsrétt-
indum kennara. Samkomulag náð-
ist í nefndinni um slík frumvarps-
drög.
Fulltrúaráð KI krefst þess að
menntamálaráðherra leggi frum-
varpið tafarlaust fram.“
(Frétlatilkynning)
verði könnun á hvaða aðilar kaupa
íbuðir á uppboði.
Við vitum að okurlánarar hafa
sölsað undir sig fasteignir og látið
bera fjölskyldur út á götuna.
Við getum ekki séð að ofan-
greindar aðfarir samræmist
Stjórnarskrá íslands.
Þá viljum við vekja athygli á að
það eru takmörk fyrir því hversu
lengi fólk heldur út að berjast á
móti þeim grimmilegu aðferðum
sem viðhafðar eru við innheimtu
skulda.
Oft er um smáskuldir að ræða
en verða þess samt valdandi að
fólk missir eignir sínar langt und-
ir kostnaðarverði.
Við vísum til umfjöllunar Al-
þingis um vandamál húsbyggj-
enda og íbúðarkaupenda þar sem
þau ummæli hafa fallið að það séu
sjálfsögð mannréttindi að allir
eigi möguieika á þaki yfir höfuðið.
Við vonumst til að háttvirtir Al-
þingismenn sjái hve brýn nauðsyn
er að vinna í þessum málum því
það erum líf eða dauða að efla.„
í raun má segja að hátíðahöidin
hafi hafist á laugardag því þá var
sundmót í Bjarnalaug, keppt var
þar bæði í hinum hefðbundnu
sundgreinum og einnig í stakka-
sundi og björgunarsundi. Um
miðjan daginn var börnum boðið á
kvikmyndasýningu.
Árdegis á sjómannadaginn fjöl-
menntu börn ásamt foreldrum
sínum í skemmtisiglingu með fjór-
um af stærri fiskiskipunum
Skírni, Rauðsey, Bjarna Ólafssyni
og Sigurborgu og voru þau öll full-
hiaðin fólki. Þessi liður í dagskrá
dagsins er nýjung hér á Akranesi
og tókst sérstaklega vel. Öllum var
boðið upp á veitingar í ferðinni.
Eftir siglinguna var hátíða-
messa í Akraneskirkju, þar sem
þrír aldraðir sjómenn voru heiðr-
aðir, þeir Kristján Sigurðsson,
Sigurður Jónsson og Pálmi
Sveinsson. Frá kirkjunni var farið
í skrúðgöngu að Akratorgi og
lagður blómsveigur að styttunni á
torginu sem reist var til minn-
ingar um drukknaða sjómenn.
Eftir hádegið hófst dagskráin
við höfnina með kappróðri, kodda-
slag og björgunarsýningu Slysa-
varnasveitarinnar og þyrlu Land-
helgisgæslunnar. Sýningin tókst
mjög vel. Frá höfninni var gengið
fylktu liði að byggðasafninu í
Görðum og þar var efnt til
knattspyrnukeppni milli undir-
manna og yfirmanna á skipunum
og síðan var keppt í reiptogi. Um
kvöldið var síðan sjómannadans-
leikur á Hótel Akranesi sem er
fastur liður í dagskránni og þar
voru m.a. afhent verðlaun fyrir
aflahæstu bátana. Haraldur Böðv-
arsson var aflahæstur togaranna,
Skírnir aflahæsti vertíðar-
báturinn og Bjarni ólafsson kom
með mest aflaverðmæti að landi.
Eins og áður segir var mikil
þátttaka í hátíðahöldunum enda
veður mjög gott. Sjómannadags-
ráð á þakkir skildar fyrir undir-
búning og skipuiag og að hefja
daginn til þeirrar virðingar sem
áður var.
JG.
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Því ekki að ókveða f eitt skiptl fyrlr öll
hverá aövaskauppíkvöld!
Á meðalheimili fara rúmar 180
klukkustundir í uppþvott á ári, -
rífleg mánaðarvinna! Já, upp-
þvottavél ersjálfsögð heimilishjálp, -vinnukona nútímans.
Philips býður þrjár gerðir uppþvottavéla:
Philips AD6 820, verð kr. 19.980.- staðgreitt. Mjög
fullkomin uppþvottavél. Rúmar 12 manna matar- og
kaffistell, 4 þvottakerfi auk forþvottar, stillanlegt
vatns-hitastig og þrýstingur, tekur inn heitt eða kalt vatn.
Philips ADG 822, verð kr. 23.990.- staðgreitt. Eins og
ADG 820 að viðbættum spamaðarrofa og frábærri
hljóðeinangrun.
Philips ADG 824, verð kr. 25.735.- staðgreitt. Ein
fullkomnasta uppþvottavél, sem fáanleg er. 6 þvottakerfi,
stillanlegt hitastig, sparnaðartakki og frábær
hljóðeinangrun.
PHILIPS UPPÞVOTTAVÉLARNAR
NEITA ALDREI AÐ VASKA UPP!
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655