Morgunblaðið - 05.09.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 05.09.1985, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985 Grafík gerði það gott í Danmörku í búningsherbergi rétt áður en gengið var inn á sviðið. Rafn t.v. og Rúnar t.h. Kaupmannahörn. 28. ágúat. Síðustu helgina í ágúst spilaði hljómsveitin Grafik á tvennum tón- leikum í Danmörku. Hljómleikar þessir voru í Árósum á fostudags- kvöldið og hérna í Kaupmannahöfn á laugardagskvöld. Það var „Dansk Rock Samrád“, sem stóð fyrir þess- um uppákomum, og nefndust hljóm- leikarnir „Nordrock". Alls voru sex hljómsveitir, sem tóku þátt, tvær frá Danmörku og ein frá hverju hinna Norðurlandanna. Spiluðu þrjár hljómsveitir saman á hverjum tón- leikum. Undirritaður brá sér í „Saltlag- eret“ á laugardagskvöldið, en þar spiluðu Grafík ásamt „Parkering forbudt" frá Danmörku og „Lilly and the gigolos" frá Noregi. Held- ur var nú fámennt á hljómleikun- um, en ágætis stemmning meðal þeirra, sem á staðnum voru. Aug- lýsa hefði mátt tónleikana miklu betur. Fyrst kom fram á sviðið hljómsveitin „Parkering forbudt". Þessi hljómsveit vakti feikimikla athygli hér í Danmörku, þegar hún kom fyrst fram fyrir um 5 árum, enda voru meðlimir hljóm- sveitarinnar þá mjög ungir að ár- um, ca. 12—13 ára. Hljómsveitin var á margan hátt mjög áheyri- leg, en samt fannst mér eins og að vantaði herzlumuninn til að hægt væri að segja, að þeir væru í góðri samæfingu, en strákarnir eru enn ungir og eiga örugglega framtíð fyrir sér. Norska grúppan var næst á dagskrá. Mesta athygli vöktu hin miklu tilþrif söngkonunnar, en hún minnti í mörgu á stöllu sína Ninu Hagen. Spilaði hljómsveitin nokkuð lengi, og þótt leitt sé frá að segja, hafði maður það hálf- partinn á tilfinningunni, að hún hefði alltaf verið að spila sama lagið. Fjölbreytninni var sem sagt ekki fyrir að fara hjá sveitinni þeirri. Hafi það verið ætlunin hjá að- standendum hljómleikanna að geyma það besta þar til síðast, þá NÝTT NÝTT \ vetur höfum við fengið til liðs við okkur erlendan danskennara, sem kennir: ASSBALLET ITlJ MODERN DANS STEPP SPÁNSKA DANSA (FLAMENCO) AEROBIC DANSLEIKFIMI FRÁBÆRT OG KRAFTMIKIÐ Að sjálfsögðu eru líka allir samkvæmisdansarnir og nýjustu discodansarnir á dagskránni eins og venjulega INNRITUN HEFST MÁNUDAGINN 9. SEPTEMBER Athugið verðskrána — það borgar sig Mér fannst rigningin góð söng Helgi fullum hálsi vid góðar undirtektir. heppnaðist það mjög vel í þetta skiptið. Það var Grafík, sem end- aði hljómleikana. Þeir höfðu æft upp gott prógram og raðað því þannig upp, að það myndaði nokk- urs konar sinfóníu með hröðum fyrsta kafla — hægum millikafla og hröðum lokaþætti. Þetta sam- anstóð af 9 lögum, bæði nýjum og einnig af síðustu plötu hljóm- sveitarinnar „Get ég tekið sjens“, sem kom út fyrir síðustu jól. Hljómsveitin var í mjög góðri samæfingu og voru strákarnir áberandi öruggastir í hljóðfæra- leik sínum. Það vakti sérstaka at- hygli mína, hversu mörg laganna voru miklu betri í flutningi þeirra nú heldur en á plötunni. Sviðs- framkoman var líka mjög lífleg hjá þeim félögum og kunnu áheyrendur greinilega vel að meta þátt þeirra Grafíkmanna í hljóm- leikunum. Það kom einnig fram hjá Graf- íkmönnum, er ég spjallaði við þá, að þeir voru mjög ánægðir með móttökurnar. Eins kváðu þeir það hafa verið þeim mikils virði að fá tækifæri til að koma hingað og sjá, hvað kollegar þeirra á hinum Norðurlöndunum væru að fást við og hvernig hljómlist þeirra stæði í samanburði við hljómlist hinna. Það kom upp sú hugmynd með Grafík og „Lilly and the gigolos" (norska hljómsveitin), að fara saman í hljómleikaferð um Skandinavíu á næsta ári. Það er vonandi, að sú hugmynd verði að veruleika. Þeir Grafíkmenn sögð- ust ætla að spila eitthvað, þegar þeir kæmu heim aftur og hvet ég hér með alla rokkáhugamenn á íslandi til að fara og hlusta á þá spila; það er vel þess virði. Siðan munu taka við upptökur á nýrri plötu, sem væntanlega mun koma út fyrir næstu jól og hún verður örugglega góð; alla vega voru nýju lögin, sem þeir fluttu á tónleikun- um mjög góð. Verður því örugg- lega á ferðinni hin áheyrilegasta skífa, þegar hún lítur dagsins ljós. Jón Valdimarsson Höíundur er kennari og er rió nám i tölruskóla í Kaupmannahöfn. Svar til Bríetar Héðinsdóttur Frá Markúsi Erni Antonssyni I Morgunblaðinu 31. ágúst sl. beindir þú til mín þeirri fyrir- spurn hvort ég láti stjórnmála- skoðanir manna ráða úrslitum er ég ræð menn til starfa við Ríkisútvarpið. Þessi fyrirspurn kemur fram vegna ummæla Ingva Hrafns Jónssonar, nýráð- ins fréttastjóra sjónvarps, sem sagði m.a. í viðtali við Morgun- blaðið 25. ágúst sl.: „Ég hugsa, að Markús örn hefði ekki ráðið mig ef ég hefði verið kommúnisti“. Þú gefur mér kost á að staðfesta þetta eða bera það af mér. Ingva Hrafni er frjálst að hugsa það sem honum sýnist og tjá sig í blaða- viðtölum án þess að ég eða aðrir staðfesti það eða láti slíkt ógert. Ekki ætla ég heldur að leiða getum að því hvað Ingvi Hrafn á nákvæmlega við með orðinu kommúnisti. En sem svar við fyrirspurninni vil ég aðeins upplýsa að við mannaráðningar hjá Ríkisút- varpinu verða gerðar kröfur um að starfsmenn virði útvarpslög og aðrar starfsreglur. Frétta- stjórum, fréttamönnum og dag- skrárgerðarfólki ber sérstaklega að haga störfum sínum í sam- ræmi við eftirfarandi ákvæði útvarpslaga: „Ríkisútvarpið skal í öllu starfi sínu halda í heiðri lýð- ræðislegar grundvallarreglur. Það skal virða tjáningarfrelsi og gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart öll- um flokkum og stefnum i opin- berum málum, stofnunum, félög- um og einstaklingum." (Letur- breyting mín). Stríði þessar meginreglur gegn sannfæringu manna og treysti þeir sér þar af leiðandi ekki til að hlíta þeim eiga þeir ekkert erindi í störf hjá Ríkisútvarpinu. Ég hef engan aðgang að upp- lýsingum um pólitískar skoðanir umsækjenda eða starfsmanna nema þeir hafi kynnt þær opin- berlega. Svo virðist sem um- ræddan fróðleik sé helst að fá hjá þeim dagblöðum sem að undanförnu hafa birt ítarlegast- ar upplýsingar um pólitísk við- horf umsækjenda um stöður hjá Ríkisútvarpinu. Virðingarfyllst, Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.