Morgunblaðið - 05.09.1985, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.09.1985, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985 Hlutabréf ríkisins í Eimskip og Rafha: Engin til- boð borist en mikið spurt ENN hafa engin formleg tilboð bor- ist í hlutabréf ríkisins í Eimskips og Rafha, sem eru til sölu hjá Fjárfest- ingarfélagi íslands út þennan mán- uð. Að sögn Þorsteins Guðnasonar hjá Fjárfestingarfélaginu er hins regar töluvert spurst fyrir um bréfin, og sagði hann að stöðugt bsttust fieiri aðilar f þann hóp. Þorsteinn sagði að einkanlega hefði „eftir- spurnin eftir Rafha-upplýsingum aukist nokkuð," eins og hann orðaði það. Ríkið á 5% f Eimskip og er sölu- verð hlutabréfanna 48 milljónir, eða 10,9-falt nafnverð. í Rafha á ríkið 30,05% og þau bréf á að selja á 8,55 milljónir, sem er 9,5-falt nafnverð. Túngata 23, eigendur Anna Tómasdóttir og Símon Kristjánsson. Ilhigagata 58, eigendur Rósa Snorradóttir og Hilmar Rósmundsson. Brattagata 35, eigendur Elsa G. Einarsdóttir og Sigurður Guðmundsson. Vestmannaeyjan Fegurstu garðar verðlaunaðir _ VestmauMjrjaa, 2. aeptember. ÁRLEGA veitir Vestmannaeyjadeild Garðyrkjufélags íslands viður- kcnningar fyrir snyrtilega og fallega garða í Vestmannaeyjum. Fyrir skömmu var kunngert um það hvaða húseigendur hefðu hlotið þessar viðukenningar fyrir árið í ár og brá Sigurgeir Jónasson, Ijósmyndari Mbl., sér á staðina og tók þessar myndir. - hkj. STÓRGLÆSILEG SUNDFÖT TTVDTD AT T A Nýjasta línan frá ARENA r il\ll\ sundfatatískan ’85 iivmv arena'V Verð frá Sundbolir kr. 663.- Sundskýlur kr. 320.- Sundgleraugu, sundhettur o.íl. smrvðmmm INGOLFS ÓSKARSSONAR Á HORNIKLAPPARSTÍGS 0G GRETTISGÖW S:i17S3 ^VÖNDUÐ VARA GLÆSILEG HÖNNUN I^GOTTVERÐ ARENA er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu sundfatnaðar. Sundföt frá Arena voru notuð af íjölmörgum þjóðum á Ólympíuleikunum s.l. sumar. Siglufjörður: Hótel Hvanneyri breytt í verbúðir — Fólk vantar til starfa við fiskvinnslu GAGNGERAR endurbætur standa nú yfir á Hótel Hvanneyri á Siglu- firði. Það er útgerðarfyrirtækið Þormóður rammi, sem á húsið og er að innrétta húsnæði fyrir starfsfólk sitt á efri hæðum þess. Hafa þegar 10—12 manns flutt inn. Þormóður rammi keypti húsið fyrir nokkrum árum og hefur haft skrifstofur á fyrstu hæð þess og auk þess leigt hluta þess undir starfsemi Tónskóla Siglufjarðar. Nú er hins vegar unnið að því að taka húsið í notkun sem verbúðir og er verið að gera tvær efri hæðir þess upp, en þar eru 15 herbergi. Að sögn Matthíasar Jóhanns- sonar fréttaritara Morgunblaðsins á Siglufirði er atvinnuástand nú gott þar í bæ og stafar það að sögn hans einkum af því að vel hefur tekist til með að skipuleggja veið- ar togaranna. Fólk vantar til starfa í fiskvinnslu á Siglufirði og mun ástæðan fyrir því að Þormóð- ur rammi ræðst í þessar fram- kvæmdir vera sú að með því að bjóða upp á gott húsnæði hyggjast forráðamenn fyrirtækisins laða fólk til starfa. Það fólk, sem þegar er farið að búa á Hótel Hvanneyri, er flest frá Ólafsfirði, en þar er nú mikið atvinnuleysi, sem kunnugt er. Er fólkinu ekið með bílum til sfns heima um helgar, en býr þess á milli á Hótel Hvanneyri. „Vil breikka stöpul minnismerkisins" — segir Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri „ÉG SENDI tillögur mínar til borg- arráðs um 20. ágúst sl. um breyt- ingar á stöpli minnismerkis Tómasar Guðmundssonar, sem staðsett var í Háskóli íslands: Fyrirlestur um íslend- ingasögur JESSE L BYOCK, prófessor í nor- rænum fræðum við Kaliforníuhá- skóla í Los Angeles, flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla íslands mánudaginn 9. september nk. kl. 17.15 í stofu 423 í Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist „Society and Dispute in a Family Saga“ og verður fluttur á ensku. Hann fjall- ar um tengsl milli þjóðfélagsgerð- ar á íslandi og byggingar íslend- ingasagna og notar Droplaugar- sona sögu sem dæmi. öllum er heimill aðgangur. (Frétt frá Háskóla Islands.) Austurstræti, en hef ekki enn fengið svör,“ sagði Hafiiði Jónsson, garð- yrkjustjóri Reykjavíkurborgar í sam- tali við Morgunblaöið. Andlit8myndin va tekin niður áður en hafist var handa við breytingar þær sem gerðar voru í Austurstræti í sumar. Hafliði sagði að tillögur sinar fælust í þvf að breikka stöpulinn, sem and- litsmyndin hvildi á þannig að myndin trónaði ekki svo upp f loft- ið eins og hún gerði. „Ég geri ráð fyrir að setja upp veggi sitt hvor- um megin við myndina ef tillagan verður samþykkt og töflur þar á til að geta stillt upp nokkrum ljóð- línum úr Reykjavíkurljóðum skáldins. önnur þeirra myndi visa að Reykjavfkurapóteki og hin að Pósthúsinu. Hafliði sagði að á meðan að ker- in hefðu verið í Austurstræti hefði stöpullinn notið stuðnings af þeim, en nú myndi andlistsmyndin stinga nokkuð f stúf ef hún yrði sett upp f núverandi mynd. „Und- irlag styttunnar er enn til staðar og mun ég hefjast handa um leið og samþykki þeirra fæst, sem um- sjón hafa með fjármálum borgar- innar,“ sagði Hafliði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.