Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985 29 AP/Sfmamynd Karlin karlinn slapp Kúrekinn Kevin Karlin fri Shackleston í Bandaríkjunum átti fullt I fangi meA að halda Iffl og limum er hann féll ad baki bola miklum sem hann átti aö sitja stundarkorn á á kúrekaati þar fyrir stuttu. Bola, sem gengur undir nafninu „78“, tókst að þeyta kúrekanum af baki eftir örfáar sekúndur og féll Karlin strax úr keppni, en mátti teljast heppinn að sleppa ómeiddur. Norrænar útvarpsstöðvar: „Svartur listi“ um- ræðuefnið í Óak>, 4. aepL Fri Jan Erik Laure, frittarítara MorgunblaAains. EFTIR nokkra daga munu fulltrúar útvarpsstöðva á Norðurlöndum koma saman til fundar í Reykjavík og verður þar rætt um, hvort banna skuli þeim listamönnum, sem eru á svörtum lista SÞ fyrir að hafa komið fram í Suður-Afríku, að koma fram í norrænu útvarpi. Norska ríkisútvarpið hefur enn Reykjavík ekki tekið afstöðu til þessa máls og verður það látið bíða fundarins í Reykjavík en flestar grenndar- stöðvarnar, sem svo eru kallaðar, frjálsu smástöðvarnar, hafa út- hýst þeim listamönnum, sem eru á svarta listanum. Á honum eru t.d. Rod Stewart, Cliff Richard, Shirley Bassey, Barry Manilow og Ray Charles. Finnland: Þrír flýðu frá Rússlandi llebnnKfors, 4. september. Kitzau. FINNSKA strandgæzlan fann þrjá Rússa á ey einni fyrir utan bæinn Lovisa í austurhluta Kirjálabotns í grennd við sovézku landamærin. Höfðu mennirnir ætlað sér að flýja til Svíþjóðar en gúmmíbátur þeirra sokkið. Tókst þeim síðan að komast upp í eyna við illan leik. Ekki er vitað, hve lengi menn- irnir þrír höfðu dvalizt á eyjunni, er finnska strandgæzlan fann þá. Þeim var síðan veitt þriggja mán- aða dvalarleyfi i Finnlandi, en eft- ir að það var fengið, tóku þeir strax þann kostinn að halda með ferjunni til Svíþjóðar, þar sem þeir eru nú. Noregur: Mikið um þorskseiði í N-íshafi Ósló, 4. sept. Frá Jan Erilt Laure, fréttaritara Morgunblaósina. HRYGNING þorsksins í Norður- íshafí hefur tekist mjög vel í ár og er árgangurinn talinn jafn góður og sterku árgangarnir frá 1983 og 1984. Þorskseiði hafa fundist allt frá Tromsö til Novaja Semlja í austri og til Svalbarða f norðri. Þessar eru niðurstöðurnar úr ferð rannsóknaskipsins „G.O. Sars“, sem nú er að ljúka rann- sóknum í Barentshafi. Alls tóku þrjú norsk skip og tvð sovésk þátt í rannsóknunum. Þótt niðurstöð- urnar hafi verið góðar mun þorskkvótinn ekki verða aukinn á næstunni því að árgangurinn frá 1982 var mjög slakur og veiðar úr honum munu ekki hefjast fyrr en 1988 þegar þorskurinn verður kynþroska. Rainbow Warrior- málið: Rannsókn hafin í Bandaríkjunum San Francisco, 4. sept. AP. BANDARÍSKA alríkislögreglan er nú einnig farin að rannsaka Rainbow Warrior-málið og er það gert að beiðni yfírvalda á Nýja Sjálandi. „Okkur hefur borist beiðni um þessa rannsókn frá yfirvöldum á Nýja Sjálandi og ætlum að verða við henni," sagði talsmaður alrík- islögreglunnar í Bandaríkjunum, en ekki vildi hann segja að hverju rannsóknin beindist. Fréttir eru þó um, að einhverjir menn í Kali- forníu hafi átt einhvern þátt í, að Rainbow Warrior var sökkt. Á Nýja Sjálandi hafa tveir starfs- menn frönsku leyniþjónustunnar verið handteknir vegna málsins, en einnig hafa þrír aðrir verið nefndir til sem aðilar að því. Þeir eru nú í París. I samvlnnu við sunnlenska bændur hefur Sláturfélagi Suðurlands tekist að efla framleiðslu landbúnaðarvara A Suðurlandi eru einhver bestu landbúnaðar- héruð á íslandi. Bændur á þessum slóðum hctfa lengi getið sér gott orð fyrir búmennsku og ræktun góðs bústofns. í tæp 80 ár hefur Sláturfélag Suðurlands átt ágætt samstarf við sunnlenska bændur. Fyrir- tækið hefur nýtt afurðir þeirra til hagsbóta bæði íyrir bændur og neytendur. Sláturfélagið leitar stöðugt nýrra leiða við fullvinnslu landbúnaðarafurða. Rannsóknir eru í hávegum hcifðar og gæðakröfur eru strangar. Með ötulli vinnu hefur tekist að ryðja sífellt nýjar brautir við framleiðslu landbúnaðarvara, stækka markaðinn og auka eftirspum. Við hjá Sláturfélaginu leggjum á það höfuðá- herslu að góð samvinna haldist við sunnlenska bændur, og neytendur geri sér ljósa grein fýrir þætti bændanna sjálfra í framleiðsluvörum SS. Samstarf bænda innan Sláturfélags Suður- lands og starfsfólks fýrirtækisins byggist á þrotlausri vinnu, stöðugum rannsóknum og ströngu gæðaeftirliti. Þetta er samstarf sem skilar góðum árangri. Slátnrfélag Suðurlands Skúlagötu 20 101 Reyfcjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.