Morgunblaðið - 05.09.1985, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 05.09.1985, Qupperneq 35
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985 35 Frá aðalfundi SSA, sem fram fór i Reyðarfirói um síðustu helgi. Sveitarstjórnir sameinist um rekst- ur Verkmenntaskóla Austurlands AÐALFUNDUR Sambands sveitar- félaga í Austurlandskjördæmi sam- þykkti samning um kjarnaskóla iðn- og tæknimenntunar í fjórðungnum eða Verkmenntaskóla Austurlands eins og skólinn mun heita. Jafn- framt skoraði fundurinn i allar sveitarstjórnir í fjórðungnum að ger- ast aðilar að samningnum sem taka i gildi 1. janúar næstk. Stofnheimild skólans er í samn- ingi frá 2. júlí 1981 milli mennta- málaráðuneytis og fjármálaráðu- neytis annars vegar og hins vegar bæjarstjórnar Neskaupstaðar og ganga aðilar inn í þann samning þar til nýr samningur hefur verið gerður. Gert er ráð fyrir því að 11 manna skólanefnd fari með mál- efni skólans fyrir hönd sveitarfé- laganna og skal hvert þjónustu- svæði SSA útnefna einn fulltrúa hvert í skólanefndina nema hvað Neskaupstaður tilnefnir þrjá full- trúa. Samkvæmt samningum er gert ráð fyrir því að stofnkostnaður skólans skiptist milli sveitarfélag- anna í réttu hlutfalli við út- svarsstofn liðins árs. Bæjarsjóður Neskaupstaðar greiðir þó þrefald- an hlut og dregst hann frá áður en til kostnaðarskiptingar kemur meðal annarra sveitarfélaga. Rekstrarkostnað skólans skipta sveitarfélögin á milli sín á þann hátt skv. samningum að 25% hans verður í réttu hlutfalli við út- svarsstofna sveitarfélaganna en 75% í réttu hlutfalli við nemenda- fjölda hvers sveitarfélags í skólan- um hverju sinni. Bæjarsjóður Nes- kaupstaðar mun greiða 2,5 faldan hlut í rekstarkostnaði sem dregst frá áður en til skiptingar kemur á sama hátt og varðandi stofnkostn- að. Gert er ráð fyrir því að samn- ingurinn verði endurskoðaður inn- an tveggja ára. Sérstök nefnd hefur unnið að undirbúningi þessa samstarfs sveitarfélaganna um verkmennta- skóla frá síðasta aðalfundi sam- bandsins og hefur nefndin kynnt málið rækilega víðs vegar um fjórðung einkum fyrir sveitar- stjórnarmönnum, skólamönnum og öðrum þeim er málið varðar sérstaklega. Þeir fundarmenn sem einkum hafa unnið að þessum undirbúningi og kynningarmálum, Smári Geirsson skólameistari í Neskaupstað og Einar Már Sig- urðsson, skólafulltrúi í Neskaup- stað, fylgdu málinu úr hlaði á að- alfundinum. Framhaldsskólinn i Neskaup- stað, kjarnaskóli iðn- og tækni- menntunar í fjórðungnum, mun því heita Verkmenntaskóli Aust- urlands eftir að samningurinn hefur tekið gildi hinn 1. jan. næstk. Kristinn V. Jóhannsson forseti bæjarstjórnar Neskaupstaðar á tali við Sig- fús Guðlaugsson oddvita á Reyðarfirði. Texti og myndir: Ólafur Guömundsson Þjónusta við ferðamenn vaxandi atvinnugrein ÞAÐ kom greinilega fram á aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi — er lauk á Reyðarfirði nú fyrir helgina — að hvers konar þjónusta við ferðamenn er vaxandi atvinnugrein hér eystra — sem sveitarstjórnarmenn binda vonir við og hafa fullan hug á að styðja og styrkja. Við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar sambandsins fyrir næsta ár var einróma samþykkt að veita nýstofnuðum Ferðamálasamtök- um Austurlands 100 þús. kr. styrk. Ferðamálasamtök Austur- lands eru samtök ferðamálafé- laga sem nú hafa verið stofnuð á öllu þjónustusvæðum SSA fyrir tilstuðlan samgöngu- og ferða- málanefndar sambandsins - sem nú kallast raunar eingöngu samgöngunefnd SSA. Þá hefur skipan sérstakrar ferðamálanefndar hinnar svo- nefndu samnorrænu Vestnor- den-nefndar orðið til að auka trú manna á ferðaþjónustu sem atvinnugreinar í fjórðungnum. Ferðamálanefnd Vestnorden— nefndarinnar hefur opnað skrif- stofu á Egilsstöðum og ráðið til sín ferðamálafulltrúa, Reyni Adólfsson, er áður var framkvstj. Ferðaskrifstofu Vestfjarða. Skrifstofu ferðamálanefndar Vestnorden-nefndarinnar er ætl- að að aðstoða við uppbyggingu og samræmingu ferðamála á þeim landssvæðum sem starfs- svið Vestnorden-nefndarinnar nær yfir, þ.e.a.s. Vestur-Noreg, Færeyjar, Grænland og ísland. Á aðalfundi SSA var lögð fram skýrsla formanns Ferðamála- nefndar Vestnorden-nefndarinn- ar, Jónasar Hallgrimssonar á Seyðisfirði, þar sem hann leggur áherslu á mikilvægi ferðaþjón- ustunnar sem atvinnugreinar í fjórðungnum og hvetur til dáða innan hinnar nýju starfsgreinar á Austurlandi. Að sögn Rúnars Pálssonar, formanns Ferðamálasamtaka Austurlands, er í ráði að samtök- in beiti sér fyrir stórátaki varð- andi kynningu ferðaþjónustunn- ar á Austurlandi og á möguleik- um ferðamanna hér eystra, t.d. með útgáfu bæklinga og gerð myndbanda — og stuðli á allan hátt að bættri og aukinni ferða- þjónustu. Þá má geta þess að aukið samstarf við Færeyinga á þessu sviði sem og öðrum hefur án efa opnað augu margra hér um slóðir á ónotuðum möguleikum ferða- þjónustunnar. Keflavík: Víkurbær gjaldþrota SKIPTAMEÐFERÐ hófst í gær hjá bæjarfógetanum í Keflavík á eigum verslunarinnar Víkurbæjar í Kefla- vík, en verslunin var lýst gjaldþrota sl. mánudag. Víkurbær fór fram á greiðslu- stöðvun á skuldum sinum fyrir fimm mánuðum en með því er fyrirtækinu óskylt og óheimilt að greiða skuldir sínar þann tíma. Ekki er þó veitt lengri greiðslu- stöðvun en fimm mánuðir. Að sögn Guðmundar Kristjáns- sonar, fulltrúa hjá bæjarfógeta Keflavíkur, verður væntanlega lýst eftir kröfuhöfum á hendur versluninni í næsta tölublaði Lögbirtingablaðsins. Víkurbær á húsnæði verslunar sinnar á Hafn- argötu 23 og rekur aðra verslun sína á Hólmgarði 2 í leiguhúsnæði. Bandaríski jógakennarinn Ac. Mahaprajinananda, sem nú er staddur hér á landi á vegum hins nýstofnana Hugræktarskóla. Bandarískur jógakennari heldur fyrirlestra Námskeiðahald í hugleiðslu, jóga- æfingum og jógaheimspeki, seni ýmsir aðilar hafa staðið fyrir í Aðal- stræti 16 í Reykjavík, hefur nú verið cndurskipulagt og stofnaður sérstak- ur hugræktarskóli. Markmið skólans er tvíþætt, annars vegar að halda námskeið í hugleiðslu og jóga fyrir almenning og hinns vegar að auka umræðu um innsæisvísindi, með fyrir- lestrahaldi, umræðum og útgáfu- starfi. í tilefni af opnun Hugræktar- skólans heldur bandaríski jóga- kennarinn Ac. Mahaprajinananda tvo fyrirlestra í húsakynnun skól- ans. Hinn fyrri er í kvöld, fimmtu- dagskvöld og fjallar um áhrif jóga- æfinga, heilsufæðis og hugleiðslu á daglegt líf. Seinni fyrirlesturinn verður annað kvöld og fjallar hann um hvernig stjórna má líkamanum meðeinbeitingu hugans. Ac. Mahaprajinananda mun einnig leiðbeina á námskeiði sem Hugræktarskólinn gengst fyrir nk. laugardag og sunnudag frá kl. 14-18 báða dagana. Á námskeiðinu verður fjallað um jógaheimspeki, hugleiðslu og tengsl innsæisvís- inda við þjóðfélagsheimspeki. Námskeiðsgjald er kr. 150. Inn- ritun og upplýsingar eru veittar í SÍma 23588. (Kréttatilkynning.) Tvö ný fé- lög í BSRB STJÓRN BSRB hefur veitt tveim- ur nýjum starfsmannafélögum að- ild að Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Eru það starfs- mannafélag Dalvikurbæjar og Dalbæjar og Starfsmannafélag Borgarness, en félögin voru stofn- uð 11. júlí síðastliðinn. Formaður Dalvíkurfélagsins er Einar Emils- son og Borgarnessfélagsins Ásdís Baldvinsdóttir. -f r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.