Morgunblaðið - 05.09.1985, Page 45

Morgunblaðið - 05.09.1985, Page 45
MOJtGUlíBLAÐIÐ, FIMMTUDÁGUR 5. SEPTEMBER 1985 45 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem). Kagnar, Guðlaug, Sigrún, Atli Bent, Þór og Magnús Páll. Ég heyri, þegar grasið grær og gleðst með hverjum litlum dreng sem finnur vorsins fyrsta blóm, og fagnandi við hlið hans geng. (JónúrVör) Þetta ljóð er í gamalli afmælis- dagbók við daginn 7. maí en þann dag átti amm afmæli. Þegar mamma var lítil fannst henni þetta eiga svo vel við ömmu og yngsta barnið hennar, en þar var mikill kærleikur á milli. Svo þegar hennar börn voru orðin fullorðin og barnabörnin fóru að koma, þá snerist hugur hennar um þau. En nú er amma dáin. Við systkinin eigum bágt með að trúa þessu þar sem hún skipaði svo stórt hlutverk í okkar lífi. Við höfum aldrei efast um það að við áttum bestu ömmu í öllum heiminum. Það var alltaf gott að koma í Drápuhlíðina til ömmu og afa. Alltaf var tekið á móti okkur opnum örmum og þó vorum við þar oft daglega. Mikill samgangur var á milli heimilanna. Það verður skrítið að heyra ekki mömmu lengur segja: ég er að fara til ömmu, við ætlum að skreppa smá hring. En nú verðum við að vera dugleg og hugsa vel um afa, sem hefur misst svo mikið. Við vitum að Guð hefur tekið ömmu til sln og gert hana heilbrigða. Við þökkum henni fyrir alla gleði og umhyggju sem hún veitti okkur. Megi góður Guð styrkja elsku afa og mömmu og systkinin í sorg þeirra. Árni, Páll, Þorbjörg, Birgir og Viðar. gift Garðari Guðmundssyni, börn: Elín og Þorkell, Guðmundur, gift- ur Inger Lise f. Lund, börn: Steff- en og Kjartan, Ingi Þór, sambýlis- kona Jóhanna G. Ásgeirsdóttir, 1 barn: Ásmundur Þór, Sigrún Björg, gift Gylfa Gylfasyni, börn: Jóhanna og Ólafur Gylfi. Þegar Hanna og Ásmundur höfðu búið sér og fjölskyldu sinni hið mætasta heimili og gæfan virtist brosa við þeim syrti í álinn. Húsbóndinn, Ásmundur, þessi þreklegi og gjörvulegi maður, missti heilsuna og það dró til þess að hann lést árið 1971 aðeins 53 ára gamall, í blóma lífsins. Þetta var mikið áfall fyrir Hönnu og börnin. Nú var svo komið að tvö elstu börnin voru gift en hin yngstu ennþá í heimahúsum. Þá sýndi Hanna hvern manndóm hún hafði að bera. Áður var hún farin að vinna utan heimilis og gerði það svo lengi sem heilsan leyfði. En svo fór heilsu Hönnu að hraka og síðustu 5 árin hljóta að hafa verið þessari tápmiklu konu erfið á stundum. Börnin studdu hana þá eftir því sem við varð komið og er maður hitt hana var hún ætíð glöð í bragði og gat miðl- að öðrum þegar á móti blés fyrir þeim. Það getur sá sem þetta ritar borið hinni látnu mágkonu. Nú er Hanna okkar látin og bar dauða hennar nokkuð brátt að. Votta ég hennar nánustu fyllstu samúð mína og bið góðan Guð að blessa minningu hennar. Stefán Þorsteinsson ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast I síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Aðalfundur Prestafélags Suðurlands: Staða aðstoðarpresta innan þjóðkirkjunnar aðal umræðuefnið Holti, 3. september. DAGANA 1. og 2. september hélt Prestafélag Suðurlands aðalfund sinn að Kirkjubæjarklaustri. í tengslum við aðalfundinn voru guðs- þjónustur haldnar víðsvegar í Vest- ur-Skaftafellssýslu. Sr. Heimir Steinsson predikaði í Skeiðflatarkirkju, sr. Úlfar Guð- mundsson í Reyniskirkju, sr. Sveinbjörn Sveinbjarnarson að Prestsbakka og í Kálfafellskirkju og í Grafarkirkju prédikaði sr. Frank M. Halldórsson, sr. Gunnar Björnsson þjónaði fyrir altari og frú Ágústa Ágústsdóttir söng ein- söng. Alls staðar var góð kirkju- sókn en þess má geta að í Kálfa- fellskirkju og Grafarkirkju sóttu yfir50% sóknarbarnakirkjusína. Aðalumræðuefni fundarins var staða aðstoðarpresta innan þjóð- kirkjunnar og flutti sr. Örn Bárður Jónsson framsögu. Eftirfarandi ályktun var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum fundar- manna eftir miklar umræður: Samkeppni um hönnun íslensks tónlistarhúss: eftir þeim. Vígsla prests er einn af hornsteinum kirkjunnar. Allir prestsvígðir menn eru jafnir. Brýnt er að slá skjaldborg um þann skilning. Stjórn félagsins var öll endur- kosin, en hana skipa: Sr. Frank M. Halldórsson, form., sr. Gísli Jónasson og sr. Kjartan Örn Sigur- björnsson. Fundurinn kaus tvær starfsnefndir, aðra til að standa að útgáfu afmælisrits á fimmtíu ára afmæli félagsins eftir tvö ár og hina til að huga að stöðu félags- ins, en miðað við önnur prestafélög er Prestafélag Suðurlands lang- samlega stærst, nær yfir stórt svæði og hefur um helming allra presta innan félagsins. Þvi hefur komið til álita að skipta félaginu í tvær sjálfstætt starfandi deildir eða tvö félög. — Fréttaritari. Sr. Gísli Jónsson þjónaði fyrir altari. MoripinblaAiO/HalMór Gunnarsson Sígild tónlist, óperur og popp undir sama þaki Morgunblaðið/Júllus Vigdísi Finnbogadóttur forseta tslands afhent fyrsta eintakió af þeim gögnum sem Samtök um byggingu tónlistarhúss senda til norrænna arkitekta. Armann örn Ármannsson formaður samtakanna afhendir henni plöggin. Morfrunblaðið/Ámi Sseberg Stjórn samtaka um byggingu tónlistarhúss ásamt dómnefnd. Frá vinstri: Geirharður Þorsteinsson arkitekt, Bernharður Guðmundsson, Þórhallur Þórhallsson arkitekt, Einar Jóhannesson tónlistarmaður, Valdís Bjarnadóttir arkitekt, Rut Magnússon ritari, Bragi Jónsson, Ármann Örn Ármannsson formaður og Gunnar S. Björnsson Aðalfundur Prestafélags Suður- lands haldinn að Kirkjubæjar- klaustri 1. og 2. sept. 1985 ályktar eftirfarandi um stöðu embætta í íslensku þjóðkirkjunni: 1. Knýjandi þörf er fyrir aukna þjónustu í stærstu prestaköllum landsins og að fjölgað sé biskupum þjóðkirkjunnar. 2. Fagnað er starfsmannafrum- varpi þjóðkirkjunnar, einkum biskupafrumvarpi, og þess vænst, að það nái hið fyrsta fram að ganga. Bent er á nauðsyn þess, að framvinda mála á biskupsstólun- um fornu verði innan laga, sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Fagnað er ákvæðum sama frum- varps um að kandídatar starfi með sóknarpresti eigi skemur en þrjá mánuði á undan vígslu. Skorað er á væntanlegt kirkjuþing, að taka til endurskoðunar 27. grein þessa frumvarps um aðstoðarpresta og fella hana niður, enda er heimild fyrir ráðningu starfsmanna safn- aða í öðrum lögum. Minnt er á, að aðstoðarprestsembættið er ekki til í núgildandi lögum og fundurinn telur ekki ástæðu til þess að breyta lögunum í því efni. 3. Tekið er fram, að ákvæði gild- andi laga nr. 35/1970 um Reykja- víkurprófastsdæmi kveður á um, að þar skuli vera einn prestur handa sem næst 5000 manns. Lögð er áhersla á, að söfnuðir þjóðkirkj- unnar, einkum hinir fjölmennari, sæki það fast, að þessum lögum verði framfylgt. í þeim þremur prestaköllum, þar sem aðstoðar- prestar þjóna nú, ættu að vera ráðnir prestar, samkvæmt þessum lögum. 4. Lögð er áhersla á endurskoðun laga um prestskosningar og laga um prestakallaskipun og að staða sóknarpresta í tvímenningspresta- köllum breytist í þeirri endurskoð- un. 5. Varað er við því, að starfs- menn þjóðkirkjunnar séu skipaðir í þjónustu í kirkjunni án skilgrein- ingar og lagagrundvallar embætta. Óverjandi er, að mismuna prest- vígðum mönnum með ráðningu þeirra til starfa við embætti, sem lög um prestskosningar ná til. Ennfremur er nauðsynlegt að auglýsa öll störf, sem ráðið er til innan þjóðkirkjunnar. kirkju- stjórnin er hvött til þess að bregð- ast skipulega við nýjungum, er upp koma og kappkosta að kanna ýtar- lega áhrif og afleiðingar þeirra aðgerða, sem ákveðnar eru hverju sinni. 6. Minnt er á þau skilyrði, sem biskup hefur sett og eðlileg eru til þess að menn hljóti prestsvígslu og er lögð áhersla á, að farið sé Á þriðjudag hófst samkeppni meðal norrænna arkitekta um hönnun ís- lensks tónlistarhúss. I*ví hefur verið valinn staður í Laugardalnum á 45.000 fermetra lóð sem borgaryfirvöld hafa afhent samtökunum. Á blaðamannafundi er haldinn var á þrriðjudag kom fram að líklega er hér um að ræða fyrstu alþjóðlegu samkeppnina sem íslendingar boða til á þessu sviði. í gögnum sem send eru arkitektum koma fram óskir samtakanna og er lögð áhersla á að hvers konar tónlistarflutningur geti farið þar fram, hvort sem um er að ræða óperur, einleikstónleika, djass eða popp. Ætlunin er að húsið verði um 35.000 rúmmetrar og er nægt landrými í kring fyrir væntanlegan tónlistarháskóla ef þurfa þykir. Gert er ráð fyrir að aðalsalur hússins rúmi 1.400 áheyrendur en í hliðarsal verða sæti fyrir 300 manns. I stærri salnum verður 240 fermetra svið á pallalyftum til að hljómsveit- argryfja verði til staðar þegar flytja skal óperur, söngleiki og fleira f þeim dúr auk þess sem hugsanlegt verður að stækka salinn enn frekar út í anddyrið ef svo ber undir. Ætlunin er að Sinfóníuhljómsveit íslands hafi fast aðsetur i húsinu og mun þannig leysast húsnæðisekla hljómsveitarinnar. Gert er ráð fyrir aðstöðu til að taka við viðameiri ráðstefnum en hingað til hefur verið, með aðstöðu fyrir þýðendaklefa og upptöku hljóðs og myndar. Jafn- framt verður búnaður til popptón- leikahalds, sem erlendir listamenn f þessu fagi hafa hingað til þurft að flytja með sér til tónleikahalds hér. Ármann Örn Ármannsson for- maður samtaka um byggingu tón- listarhúss sagði að loks nú þegar húsinu hefði verið valinn staður og samkeppnin hafin væri að því komið að leita á náðir almennings um fé til byggingarinnar. „Hingað til hefur það fé sem runnið hefur til samtak- anna komið frá rúmlega eitt þúsund félögum þess og við sjáum fram á að geta fjármagnað samkeppnina með þeim peningum. En nú hefst hin eig- inlega fjársöfnun fyrir byggingu hússins og fyrsta skrefið í þá átt er happdrættið sem nú hefur verið hleypt af stokkunum." Ármann sagði að margar hug- myndir væru á lofti um fjáröflun og þótt byggingunni hefðu borist góðar gjafir erlendis frá væri ekki hægt að treysta því að fleiri slíkar bærust. „Enda er ætlunin að reisa húsið fyrir íslenskt fé og hvort það tekst veltur á íslensku þjóðinni. Að minu mati gera of fáir sér grein fyrir hversu almenn þátttaka er í tónlist á íslandi. Sem dæmi voru haldnir 35 tónleikar á Reykjavík- ursvæðinu í júní og í sama mánuði voru sjö íslenskir kórar á söngferða- lögum ei lendis auk Frakklandsfarar sinfóníuhljómsveitarinnar. Gott tónlistarhús er mikil skraut- fjöður í menningarhatt hverrar þjóðar og frægir listamenn sækjast eftir að flytja list sína þar. Þannig er ekki einungis um að ræða stórbætta aðstöðu til handa íslensku tónlistar- lífi heldur eykur húsið hróður Is- lendinga á erlendri grund." Samkeppnin stendur til 1. mars á næsta ári og er verðlaunaféð 2,6 milljónir sem skiptist á milli verð- launahafanna. Dómnefnd skipa Ármann Örn Ármannsson formaður samtaka um byggingu tónlistarhúss, Einar Jóhannesson tónlistarmaður, N. Keith Scott arkitekt, Stefán Ein- arsson hljómburðarfræðingur, Geir- harður Þorsteinsson arkitekt, Valdís Bjarnadóttir aikitekt og Kristian Gullichsen arkitekt. Ritari dóm- nefndar er Rut Magnússon en trún- aðarmaður Þórhallur Þórhallsson arkitekt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.