Morgunblaðið - 05.09.1985, Page 54

Morgunblaðið - 05.09.1985, Page 54
54 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985 — /------------------'ius&iwmju „ Einhvcr he/ur oeriá ob seJja. inol/dnunum klorincttur. O 1985 Universal Press Syndicate Bönnum innflutning á bifreiðum Holy skrifar: Kæri Velvakandi. Við lestur Velvakanda, sl. þriðjudag sá ég að einn lesandi blaðsins kom með þá ágætu hug- mynd að banna íþróttir. Er mál þetta vel við hæfi á þessum sið- ustu og verstu dögum. Tel ág að á þessum banntímum ætti einnig að athuga hættuna sem bílar vaida í hversdagsumferð á okkar tímum. Eru þeir ekki bara hættulegir heldur beinlínis eyðslugjarnir og dýrir í rekstri fyrir allt þjóðar- búið. Má þar benda á allt það fjár- magn sem fer bara í uppbyggingu og viðhald vega í landinu. Á okkar tímum þar sem fjöl- miðlun og hraði fara saman ætti landslýð að vera það ljóst að þau farartæki sem bílar nefnast geta ekki bætt ástandið í þjóðfélaginu. Margir vinir mínir, sem hafa drukkið eitthvað sem enginn veit hvað er i formi bjórlíkis, hafa misst ökuskírteini sín vegna þess eins að ekki er búið að banna nógu og mikið í landinu. Þeir hafa þurft að borga háar fjársektir vegna þess arna. Einnig hafa þeir misst vinnu sína vegna þess að bíll var þeim nauðsyn. Nú spyrnum við niður fæti og hefjum innflutning á reiðhjólum í stórum stfl. Þá skal hafa í huga að sá úrgangur er úr afturenda bíl- anna kemur getur hreinlega verið skaðlegur heilsu manna. Nokkrir menn sem ég þekki hafa séð það í kvikmyndum að hægt sé að deyða menn með því að láta fólk anda að sér þessum óþverra. Þeir sem þetta lesa og eru komnir of langt í notkun sinni á bifreiðum ættu að hætta henni og fá sér gönguferð í vinnuna, þó hún taki tvær til sex klukkustundir, maður getur ekki skollið það illa á næsta mann þannig að illa fari, a.m.k. ekki verr en skaði sá er bif- reiðir valda okkur árlega. Einsog segir hér í byrjun þá skulum við hægt og sígandi banna allt sem illt er, einsog dómsmála- ráðherra gerði. Og þá skulum vér þegnar þessa lands einnig illt út reka, því að betri er fjarvera bif- reiðanna en vera. Takk fyrir. Ást er .. ... að spyrja ekki um hvað hún keypti TM Reo U.S. H». Ofl.-aH rights reserved »1985 Lo« Angeles Times Syndkate Við getum ekki haldið áfram að eiga svona stefnumót? Með morgunkaffinu HÖGNI HREKKVlSI Fyrstu stjörn- ur síð- sumars Ingvar Agnarsson skrifar: Út varð mér gengið um lágnætt- ið, að liðnum degi mánudagsins 5. ágúst sl. Ég gekk út að Kópa- vogskirkju, en hún stendur hátt og þaðan er útsýni fagurt til allra átta. Alheiðskírt var og fegurð himins blasti við augum hvert sem litið var. Á norðurhimni sló ljóma á loft, því sól er enn ekki langt undir sjó- ndeildarhring. Birtuna lagði hátt á himinn. Þar var fagur dagur á lofti en í suðri hafði nóttin haslað sér völl. En einnig til þeirrar áttar var fagurt að líta, því nokkrar bjartar stjörnur var þar að sjá — fyrstu sjáanlegar stjörnur þessa síðsumars — þótt ekki væri him- inn þar almyrkur. Hátt á lofti mátti sjá þríhyrn- inginn stóra, sem myndaður er af stórstirninu Deneb (í Svaninum), Vega (í Hörpunni) og Altair (í Erninum). Hve fagurlega ljómuðu þessar stjörnur á bládimmum himninum svo unun var á að horfa. Hærra en á himni mátti sjá stjörnunar í hinu sérkennilega W-Iaga merki Kassiopeia, og enn vottaði fyrir fáeinum stjörnum öðrum á víð og dreif. En á mótum dags og nætur I norðausturátt blasti við sjónum hin fagurskínandi stjarna Capella (Kaupmannastjarnan í Oku- mannsmerki). Þetta var fyrsta nóttin á þessu siðsumri, sem ég hef séð stjörnum skrýddan himin ogósjálfrátt fyllt- ist hugur minn fögnuði af þessari sjón. Það var eins og að fagna vin- um á ný eftir margra vikna að- skilnað, sem reyndar hefur orsak- ast af björtum og fögrum sumar- nóttum, sem við höfum fengið að njóta um sinn. Nú lengjast nætur óðum. Dimman tekur við af björtum nóttum, og himininn tendrast æ meir fögrum stjörnuljósum. Lítum til lofts og gleðjumst af skini þessara björtu depla. Vitum að hver ein stjarna er glóandi sól I bládjúpum geimsins, og hugleið- um þá stórkostlegu vitneskju, að flestum sólum munu fylgja reiki- stjörnur, og að á mörgum þeirra mun búa mannkyn í líkingu við okkar hugsandi verur, sem reyna að skilja tilveruna á sama hátt og við jarðarmenn erum einnig að glima við. Vitum að stjörnur eru heimkynni lífsins. M.a. þessvegna eru þær okkur enn áhugaverðari. Harpan er lítið en áberandi fagurt stjörnumerki hátt á himni. Fjórar stjörnur mynda ferhyrning og er Vega (Blástjarnan) þeirra björtust, enda er hún fimmta bjartasta stjama himins. Hún geislar bláhvítu Ijósi og er í 26 Ijósára fjarlægð. Vega Altair Svanurinn er eitt af fegurstu stjörnumerkjum himinsins. Stjarnan í stéli hans heitir Deneb og er ein af raunbjörtustu stjörnum himins því hún gefur frá sér sextíu þúsundfalt Ijósmagn okkar sólar, en vegna gífurlegrar fjarlægðar (1600 Ijósár) sýnist hún ekki bjartari en raun ber vitni. Örninn er fagurt stjörnumerki suður undan Svaninum. Altair heitir þar bjartasta stjarnan og geislar frá sér bláhvítu Ijósi. Fjarlægð hennar er 16,5 Ijósár, og er því í raun ein af nágrannasólum okkar sólhverfis, því flestar eru miklu fjær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.