Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 05.09.1985, Blaðsíða 60
TIL DAGIIGRA NOTA Vetrardagskrá hefst 9. september. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. Sjóflutningar Varnarliðsins: Stjórnvöld vestra fengu ekki frest — Krafa Rainbow um lögbann á útboð væntanlega tekin fyrir 13. september BANDARÍSKUM stjórnvöldum var á þriðjudaginn synjað um frest til að leggja fram málskjöl í dómsmáli þeirra við skipafélagið Rainbow Navigation Inc. Verður málið því líklega tekið fyrir, eins og til stóð, þann 13. september næstkomandi. Ennfremur úrskurðaði rétturinn að engin breyting yrði á sjóflutningum fyrir varnarliðið fram til 14. október. Rainbow hefur sem kunnugt er farið í mál við bandaríska flota- málaráðherrann John Lehman vegna útboðstilskipunar hans á sjóflutningum fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, og krafist þess að lögbann verði sett á útboð- ið. Rainbow lagði fram málskjöl sín sl. föstudag, en bandaríkj- astjórn vildi fá frest til 20. sept- ember til að leggja fram sín gögn. Því hafnaði undirréttur og efri réttur skömmu síðar eftir að úr- skurðinum hafði verið áfrýjað. „Það hefur engin efnislegur dómur fallið í málinu," sagði Hans G. Andersen sendiherra, eftir að hafa haft samband við bandarísk stjórnvöld í gær. „Bandaríska utanrikis- og dómsmálaráðuneytið fór aðeins fram á að fá lengri frest til að leggja fram sín skjöl, því þeir vildu gefa sér tíma til að bera verð Rainbow saman við þau til- boð sem borist hafa undanfarið. Því hafnaði rétturinn á þeim for- sendum að þeir hefðu þegar haft nægan tíma,“ sagði Hans. Frank Costello, lögmaður Rain- Mývatnsöræfí: Tvær bíl- veltur FIMM umferóaróhöpp uróu á tæpum tveim tímum í umdæmi lögreglunnar á Húsavík um bádegisbilió í gær. Er það óvenjulegt þar í sveit aó sögn lögreglumanns á Húsavík. Tvær bílveltur urðu með stuttu millibili á vegarkafla sem verið er að vinna við á Mývatnsöræfum, 3kammt vestan við Jökulsá á Fjöll- um. í öðrum bílnum voru Japanir en ítalir í hinum og sluppu þeir allir ómeiddir. Á Húsavík urðu tveir minniháttar árekstrar á þessum sömu tveimur klukku- stundum auk þess sem ekið var á konu á gangbraut. Konan skarst nokkuð og meiddist á öxl. bow, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að líklega væri frest- unarbeiðin til komin vegna þess að bandarísk stjórnvöld væru óviss um ágæti málstaðar síns og vildu leita nýrra leiða. Hann sagöist hins vegar ekki sjá að þau ættu um fleiri en tvo kosti að ræða: draga útboðstilskipunina til baka, eða leggja málið í hendur dóm- stóla og tapa. „Útboðið er fullkomlega ólög- mætt,“ sagði Costello, „og ég tel langlíklegast að dómarinn komist að þeiri , niðurstöðu og Rainbow komi því til með að halda sjóflutn- ingum áfram." Tilrauna- framleiðsla á steinull á lokastigi Tilraunaframleiósla hjá Steinull- arverksmiójunni á Sauöárkróki er nú komin á lokastig. Hefur hún gengið eftir atvikum vel aö sögn Einars Einarssonar framleiöslu- stjóra. Sagði Einar að enn væri við talsverða byrjunarörðugleika að etja og væri verksmiðjan því í gangi hálfan daginn, og tíminn síðan notaður til viðgerða og lag- færinga. Framleiðslan er nú um 20 tonn af steinull á dag en er áætluð 60 tonn þegar verksmiðjan verður komin í fulla framleiðslu sem áætlað er að verði um miðjan mánuðinn. Steinullarverksmiðjan verður vígð með sérstakri athöfn þann 15. þessa mánaðar. Þorsteinn Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri Steinullarverk- smiðjunnar sagði að verið væri að undirbúa markaðssetningu fram- leiðslunnar. Hann sagði að mark- aðurinn tæki vel við sér, mikið væri um fyrirspurnir og talsvert um pantanir. I haustsól Morgunblaðið/FriAþjófur Ólíkt hefst þaö að unga fólkið og þau sem eldri eru. Galsafenginn strákurinn fetar einstigið á girðingunni, en konan hvflir lúin bein á bekk. Bæói njóta þau sjálfsagt góóa veöursins á sinn hátt og næstu daga er ekki útlit fyrir að mikil breyting verði á veðri. Norðanátt áfram, þurrt og bjart syðra, en skúrir og jafnvel slydda nyrðra. Hjúkrunarfólk á Kristnesspítala: Uppsagnir vegna launamismunar ALLIR starfandi hjúkrunarfræðing- ar og sjúkraliðar á Kristnesspítala í Eyjafirði hafa sagt upp störfum með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Astæða uppsagnar sjúkraliðanna er launamunur þeirra og sjúkraliða við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og ástæða uppsagnar hjúkrunarfræðing- anna er 15 þúsund kr. launauppbót sem hjúkrunarfræðingar við FSA Fiskvinnslan á Austfjörðum: Styrkir Einar fram að næstu Ólympíuleikum HELZTU fiskvinnslufyrirtæki á Austfjörðum hafa nú ákveðið að veita Einari Vilhjálmssyni, spjótkastara, fjárhagslegan stuðning fram að næstu Ölympíuleikum árið 1988. Er þá miðað við að tryggja fjárhagslega af- komu Einars og fjölskyldu hans svo hann geti helgað sig íþrótt sinni. Vilhjálmur Einarsson, faðir uði. Á þann hátt yrði greiðsla Einars, sagði i samtali við Morg- unblaðið, að stofnaður hefði ver- ið styrktarsjóður í ákveðnum banka og væru að minnsta kosti tvö fyrirtæki búin að greiða inn á hann. Hugmyndin væri að tryggja Einari lágmarksafkomu með um 30.000 krónum á mán- viðkomandi fyrirtækja og ann- arra hugsanlegra stuðnings- manna lítil hverju sinni, en skil- aði Einari engu að síður mjög miklu. Mikilvægt væri að stuðn- ingur sem þessi, kæmi fram nægilega löngu fyrir lokatak- markið til þess að viðkomandi íþróttamenn gætu skipulagt æf- ingar og keppni án þess að hafa áhyggur af fjármálum og stæðu jafnfætis helztu keppinautum sínum. Þetta framlag fyrirtækj- anna til íþróttamála væri stór- kostlega eftirbreytnivert og von- andi veittist fleiru ungu fólki möguleiki sem þessi i framtíð- inni svo það þyrfti ekki að hætta íþróttaiðkun vegna brauðstrits- ins. Um það væri þegar allt of mikið. fengu frá 1. september en þær ekki. Á Kristnesspítala eru 58 langlegu- sjúklingar og telur framkvæmda- stjóri spítalans að hvergi verði hægt að koma þeim fyrir komi uppsagnir hjúkrunarfólksins til framkvæmda. Ellefu sjúkraliðar eru starfandi á Kristnesspitala og undirrituðu þeir allir uppsagnarbréf í gær og afhentu framkvæmdastjóra spít- alans. Þær segja upp verði ekki leiðréttur sá launamunur sem verið hefur á launum sjúkraliða á Kristnesspítala og FSA frá 1. júní. Komið hefur fram að 14-17% munur er á launum sjúkraliðanna á þessum tveimur vinnustöðum. „Við erum að ýta eftir að fá þennan mismun leiðréttan, enda teljum við ekki hægt að una við hann,“ sagði Lif Stefánsdóttir sjúkraliði á Kristnesspítala í samtali við Morgunblaðið í gær. Allir sex starfandi hjúkrunar- fræðingar spítalans sögðu upp störfum í fyrradag frá og með 15. september fái þær ekki þá 15 þús- und króna launauppbót á mánuði frá 1. september sem hjúkrunar- fræðingar á FSA hafa fengið miðað við fullt starf. Björg Guð- mundsdóttir hjúkrunarfræðingur á Kristnesspítala sagði að þær hefðu sagt upp vegna þess að þær hefðu ekki fengið þessa launaupp- bót. Hún sagði að þær hlytu að ganga út að loknum uppsagnar- fresti ef þær fengju ekki leiðrétt- ingu mála sinna. Að sögn Bjarna Arhurssonar framkvæmdastjóra Kristnesspít- ala eru 58 langlegusjúklingar á spítalanum, að stærstum hluta aldrað fólk. „Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda,“ sagði Bjarni þegar hann var spurður um rekst- ur spítalans ef uppsagnirnar kæmu til framkvæmda. Hann sagði að á spitalanum væru ein- göngu langlegusjúklingar og hvergi væru laus pláss til að koma fólkinu fyrir á ef uppsagnirnar kæmu til framkvæmda en ekki væri hægt að reka stofnunina eingöngu með ófaglærðu starfs- fólki. „Ég sé ekki að hægt sé að leysa þetta mál öðruvísi en með samkomulagi við starfsfólkið, enda eru kröfur þess sanngjarnar," sagði Bjarni. Fyrstu réttir um helgina FYRSTU réttirnar verða um helg- ina. Á laugardag verður réttað í Hraunsrétt í Aðaldal í Suður Þing- eyjarsýslu og verða það fyrstu réttirnar á þessu hausti. Á sunnu- dag verða síðan Hrútatunguréttir í Hrútafirði og Miðfjarðarréttir i Miðfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.