Morgunblaðið - 13.10.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
7
Kvikmyndahátíð kvenna:
„Átti erfitt með að hasla mér
völl sem kvikmyndaleikstjóri"
— segir þýski kvik-
myndaleikstjór-
inn Margarete
von Trotta
Kvikmyndahatíö kvenna stendur
nú yflr í Reykjavík og meðal annars
verða þar á dagskrá þrjár mynda
þýska kvikmyndaleikstjórans,
Margaretar von Trotta, myndirnar
„Ærumissir Katarínu Blum“,
„Önnur vitundarvakning Kristínu
Klages**, sem hún fékk æðstu kvik-
myndaverðlaun Þýskalands fyrir,
og „Algjört óráð - þýsku systurnar",
en fyrir þá mynd fékk hún „Gulk
Ijónið" í Feneyjum. Margarete er
nú stödd hér á landi og rabbaði
hún við blaðamenn sl. föstudag.
„Ég hef nýlokið við mína fjórðu
kvikmynd, „Rósa Lúxemborg" og
er með fimmta handritið í undir-
búningi. Vissulega var erfitt fyrir
mig, sem kvenmann, að hasla mér
völl sem kvikmyndaleikstjóri í
Þýskalandi. Kvenmenn komast
ekki til metorða sem kvikmynda-
Morgunblaðið/Júlíus
Margarete von Trotta
leikstjórar fyrr en í fyrsta lagi
um fertugt eða síðar á meðan
karlleikstjórar í sömu stöðu geta
hafist handa rúmlega tvítugir.
Ég fór til Parísar 18 ára og
kynntist þá kvikmyndalistinni
fyrst. Ég sá þá allar nýju frönsku
myndirnar, en á þeim tíma hafði
hin nýja þýska kvikmyndastefna
ekki hafist, heldur voru gömlu
grínmyndirnar enn í blóma lífs-
ins í Þýskalandi.
Ég var alltaf staðráðin í að
verða kvikmyndaleikstjóri en
kvenmannshlutverkið gerði mér
erfitt fyrir. Ég byrjaði sem leik-
kona og vann síðan mikið með
öðrum leikstjórum við gerð kvik-
mynda, meðal annars manninum
mínum, Volker Schlöndorff, og
var það ekki fyrr en árið 1978 að
fyrsta myndin mín var sýnd.“
Margarete von Trotta fæddist
árið 1942 í Berlín, dóttir aðals-
konu af rússneskum ættum og
sambýlismanns hennar, sem var
listmálari. Faðir hennar dó
snemma og á stríðsárunum
bjuggu mæðgurnar við kröpp
kjör. Sem lítil stúlka átti hún þá
ósk heitasta að verða loftfim-
leikakona eða listdansari. Móðir-
in, hinsvegar, vildi frekar láta
hana læra eitthvað nytsamlegt
því henni var umhugað um að
dóttirin gæti seinna meir lifað
fjárhagslega sjálfstæðu lífi.
Margarete tók því landspróf og
verslunarpróf og fór að vinna á
skrifstofu. Eftir átta mánuði
pakkaði hún svo niður og hélt til
Parísar, eins og áður sagði, sem
„au-pair“ stúlka.
Þegar hún kom aftur til Þýska-
lands, settist hún aftur á skóla-
bekk, tók stúdentspróf og fór út
í háskólanám í rómönskum mál-
um, þýsku og listasögu. Hún
hætti því námi eftir skamman
tíma og hóf þá nám í leiklistar-
skóla.
SA BESTI' VARÐ FYRIR VALINU
Aðferðin var í sjálfu sér einföld: Við kynntum okkur alla
þekktustu skíðastaði Austurríkis og völdum síðan þann besta
EINSTÖK AÐSTAÐA
(Sölden færð þú á einum stað allt sem til þarf í frábæra
skíðaferð. Hvort sem þú ert einn á ferð, með
fjölskylduna eða í stærri hóp, uppfyllir Sölden allar þínar
kröfur - og heldur meira.
Umhverfið er heillandi og veðursæld mikil. Ótrúlega þétt
lyftukerfi teygir sig upp eftir hlíðunum og skilar þér í allt
að 3.100 m hæð. Brautimar eru vel merktar og allt lagt
upp úr því að hver maður finni brekkur við sitt hæfi.
Mörg hundmð skíðakennarar eru til taks, útsýnisstaðir,
veitingastaðir og hvíldarstaðir eru á hverju „strái“ og
dagurinn líður hratt, fullur af skemmtilegum atvikum, -
ævintýri líkastur.
FRÁBÆRT NÆTURLÍF
Þegar líður að kvöldi læturðu notalega þreytuna
líða úr skrokknum í sundlaugum, nuddpottum og
gufuböðum, og færð þér síðan hressingu á
huggulegum bar þar sem útsýnin til snæviþakinna
fjalla verður ógleymanleg í Ijósaskiptunum.
Kvöldið tekur síðan við í eldfjörugum Tírólabænum:
Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir, nætur-
klúbbar og hressilegt götulíf gefur hverju kvöldi
nýjan lit og setur punktinn yfir i-ið í glæsilegri
skíðaferð.
SÖLDEN Á EKKI SINN LÍKAN - ÞVÍ GETURÐU TREYST
VERÐ FRA KR.
27.600
og mjög góðir greiðsluskilmálar að auki!
(Mlftað vlð gengl 20. sept. 85.)
Gisting er fjölbreytt og viö allra hæfi.
Ferðatilhögun gæti ekki veriö öllu þægilegri: Beint flug til
Salzburg og 3 klst. akstur til Sölden.
Brottfarardagar: 21. des., 1. feb. og 1. mars.
* Sbr. niðurstöður fjölmargra skíðasérfræðinga evrópskra tímarita.
««35? °9 -—
-----------
Samvinnuferóir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SIMAR 21400 & 23727