Morgunblaðið - 13.10.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
SEM SPANNAR
FLESTAR GREINAR
ÍSLENSKS ATVINNULÍFS
SKEIFAN 3F
SÍMI: 91-68 71 45
Egilsstaðin
*
A haustþingi
Kennarasambands
Austurlands
^ EgilsKtöðum, 6. október.
ÁRLEGT haustþing kennarasam-
bands Austurlands var haldiA á
Eiðum um helgina. Nær helmingur
allra kennara á Austurlandi var
mættur til þings eða um 120—150
kennarar auk gesta og hóps fyrir-
lesara um hina ýmsu þætti skóla-
og uppeldismála.
Þingstörf hófust á föstudag
með opnun námsgagnasýningar
á vegum Námsgagnastofnunar.
Sýningin bar öflugu starfi Náms-
gagnastofnunar glöggt vitni.
Ragnar Gíslason, starfsmaður
Námsgagnastofnunar, gat þess
við opnun sýningarinnar að
reynsla undangenginna ára hefði
ótvírætt leitt í ljós að brýn þörf
er á þjónustu stofnunarinnar —
og meðan enginn annar aðili 1
þjóðfélaginu sinnir þessum þörf-
um skólanna á sama hátt muni
starf stofnunarinnar væntanlega
dafna.
Að lokinni opnun námsgagna-
sýningar hófust hin ýmsu nám-
skeið — sem síðan lauk í gær.
Námsstjórinn í tónmennt, Njáll
Sigurðsson, stýrði námskeiði er
nefndist „Syngjandi skóli“. Þar
voru hin ýmsu svið tónmennta-
kennslunnar tekin til meðferðar,
s.s. hljóðfærasmið og samþætt-
ing tónmennta, móðurmáls,
handmennta og íþrótta. Vilhelm
Norðfjörð, sálfræðingur, leiddi
Fjallað um tölvunotkun f skólasUrfi.
menntamálaráðuneytinu, nám-
skeið um stefnumörkun einstaka
skóla og samskipti heimila og
skóla — sem mjög hefur verið
fjallað um hin síðari ár.
Á föstudagskvöldið var efnt til
aðalfundar Kennarasambands
Austurlands — en þar fluttu
ávörp Valgeir Gestsson, formað-
ur Kennarasambands íslands,
Svanhildur Kaaber, formaður
Bandalags Kennarafélaga, og
fræðslustjórinn á Austurlandi,
Guðmundur Magnússon, en
haustþing KSA hefur ávallt verið
undirbúið í góðri samvinnu við
Fræðsluskrifstofu Austurlands.
Á aðalfundinum var m.a. fjall-
að um úrsögn KÍ úr BSRB og í
lok umræðunnar var samþykkt
samhljóða ályktun þar sem ein-
dregnum stuðningi er lýst við
ákvörðun stjórnar og fulltrúa-
ráðs KÍ um úrsögn úr BSRB.
í stjórn KSA voru kjörnir:
Rúnar Sigþórsson, Eiðum, for-
maður; Magnús Stefánsson, Fá-
skrúðsfirði, og Elna Jónsdóttir,
Egilsstöðum.
— Ólafur.
námskeið um samskipti í skóla-
stofunni, þar sem þarfir og staða
nemandans voru í fyrirrúmi —
auk þess sem fjallað var um nýtt
og breytt hlutverk kennarans og
vandamál í kjölfar þess. Þá
kynnti Stefán Jóhannsson, kenn-
ari á Eiðum, „kollegum" sínum
undirstöðuatriði í notkun tölvu í
skólastarfi — en Alþýðuskólinn
á Eiðum er nú orðinn allvel
tölvuvæddur. Bókaverðir Bóka-
safns Kennaraháskóla íslands
fjölluðu um notkun skólasafna í
kennslu og nýr námsstjóri í ís-
lensku, Guðni Olgeirsson, stýrði
íslenskunámskeiði ásamt Björg-
vini Jósteinssyni, fyrrum yfir-
kennara Æfinga- og tilrauna-
skóla KHÍ. Þá leiddi Hrólfur
Kjartansson, deildarstjóri í
Tveir nýkjörínn stjórnarmanna KSA, Magnús Stefinsson, Fáskrúðsfirði
og formaðurinn, Rúnar Sigþórason, Eiðum. Þriðja stjóraarmanninn vant-
ar á myndina, Elnu Jónsdóttur, Egilsstöðum.
Tíu sjúkraliðar frá VMA, Akureyri
Akurejri, 5. október.
VERK M E.N NTASKÓLIN N á Akur-
eyrí brautskráði 10 nýja sjúkraliða í
morgun. Athöfnin fór fram í sal
tæknisviðs skólans og hófst með
ávarpi Bernharðs Haraldssonar,
skólameistara, sem síðan afhenti
sjúkraliðunum skírteini um próf og
starfsréttindi.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri hefir annast 34 vikna starfs-
þjálfun sjúkraliðanna, en Verk-
menntaskólinn alla aðra kennslu,
sem hann tók við af Gagnfræða-
skóla Akureyrar, sem brautskráði
alls 100 sjúkraliða.
Á myndinni eru, talið frá vinstri:
Fremri röð: Selma Ásmundsdóttir,
Steina Jóna Hermannsdóttir, Bára
Einarsdóttir, Jórlaug Heimisdótt-
ir og Eyrún Egilsdóttir. Aftari
röð: Bernharð Haraldsson, skóla-
meistari, Ingibjörg Jóhannesdótt-
ir, Guðríður Sigurðardóttir, Anna
Níelsdóttir, Arna Ágústsdóttir og
Margrét Pétursdóttir, kennslu-
stjóri heilbrigðissviðs VMA. Á
myndina vantar Sigríði Kristins-
dóttur, sjúkraliða.
Vetrarstarf
Seltjarnar
að hefjast
VETRARSTARF Kvenfélagsins Sel-
tjarnar á Seltjarnarnesi mun hefjast
næstkomandi þriðjudag með opnum
fundi, sem hefst klukkan 20.30
stundvíslega.
Jóna Rúna Kvaran flytur erindi
og Jenný Guðmundsdóttir, sem er
félagi í Seltjörn, segir frá dvöl í
borginni Dubai við Persaflóa. Það
er tilgangur þessa fundar að konur
i bænum hittist, spjalli saman og
geri sér grein fyrir að Seltjarnar-
nes sé sérstakt bæjarfélag. Veit-
ingar verða seldar á fundinum.
Vetrarfagnaður félagsins verður
síðan 26. október, það er fyrsta
vetrardag, í félagsheimilinu.
Starfsemi félagsins var mikil á
síðasta starfsári. Meðal annars sá
félagið um dagskrá 17. júní, hélt
Þorrafagnað fyrir aldraða og einn-
ig er öldruðum boðið í dagsferð og
hefur verið ánægja meðal þátttak-
enda.
Fundir í vetur verða 3. þriðjudag
hvers mánaðar.
Jólatrésskemmtun barna verður
svoþann3. janúar.