Morgunblaðið - 13.10.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
45
„Viljum ná
árangri án þess
að íþyngja fólki"
— sagði Þorsteinn Pálsson
á fjölmennum fundi á Selfossi
Selfossi, 10. október.
UM 200 manns sóttu almennan stjórnmálafund í Inghóli á Selfossi þar sem
frummælendur voru Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins og
Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra. Frummælendur ræddu stöðu þjóð-
og nyafstaðnar breytingar a
Þorsteinn sagði í upphafi máls
síns að breytingarnar á ríkis-
stjórninni hefðu verið fyrirferð-
armeiri í fjölmiðlum en ástæða
hefði verið til þar sem ekki yrði
um neina stefnubreytingu að
ræða.
„Til að ná árangri þarf ríkis-
stjórn að hafa fólkið með sér,“
sagði Þorsteinn og lagði áherslu á
að ekki væru áform uppi um að
íþyngja fólki með nýjum álögum.
„Við viljum ná árangri án þess að
íþyngja fólki frekar." Hann benti
og á að þær aðstæður hefðu skap-
ast að sparnaður hefði aukist sem
væri grundvöllur breytinga. „Þjóð
sem ekki sparar getur ekki unnið
sig út úr vandamálum," sagði
Þorsteinn.
Hann sagði að virðisaukaskatt-
ur yrði tekinn upp og vel væri at-
hugandi að undanskilja matvörur
frá þeim skatti. Hann sagði og að
staðið yrði við afnám tekjuskatts í
þremur áföngum, fyrsta áfanga
væri lokið, annar áfangi væri á
næsta ári og eftir 1987 yrði tekju-
skatturinn horfinn. „Við þetta
verður staðið," sagði Þorsteinn.
f lok máls síns benti hann á
hver úrræði stjórnarandstaðan
byði upp á við þær aðstæður sem
nú væru í þjóðfélaginu, Alþýðu-
flokkurinn vildi hækka skatta og
Alþýðubandalagið legði áherslu á
stéttaátök.
„Þetta þjóðfélag þarf á sam-
stöðu og gagnkvæmum skilningi
að halda," sagði Þorsteinn í lok
máls síns.
Sverrir Hermannsson ræddi
jorninni komu einnig til umræðu.
orkumál í sinni framsögu svo og
það sem honum yrði efst í huga í
nýju embætti menntamálaráð-
herra.
„Ég er blóðugur til axla af
niðurskurði," sagði Sverrir og
benti á að hann hefði slitið orku-
veislu Hjörleifs og skorið niður út-
gjöld sem næmi 2.800 milljónum
króna. „Menn hafa leikið lausum
hala undanfarna áratugi," sagði
Sverrir og að umframfjárfest-
ingar á valdatíma fyrirrennara
hans hefðu numið 4 milljörðum
króna.
Sverrir sagði að nýleg skýrsla
um fíkniefnaneyslu ungmenna
hefði haft mikil áhrif á sig og
hann hefði ákveðið að leggja sig
allan fram um að ráða bót á
ástandinu í þeim efnum. „Við
þurfum að bjarga fjölda manns-
lífa,“ sagði hann og ennfremur:
„Við getum ráðið við efnaleg
vandamál, en ef óáran kemur í
fólkið sjálft sem byggir landið, þá
er þjóðin illa stödd."
Frummælendur fengu fjölda
fyrirspurna, meðal þeirra voru
fyrirspurnir um skólamál, orku-
mál og stjórnarstefnuna. Sverrir
sagðist ákveðinn i að taka til
endurskoðunar lög um rekstur
framhaldsskóla og koma á jafnri
aðstöðu í þeim efnum. Hann sagð-
ist vilja gera RARIK að sjálfs-
eignarstofnun og stuðla með því
að fjárhagslegri og stjórnunar-
legri valddreifingu. „Ég er enginn
einskeftingur í þessu efni,“ sagði
Sverrir, „aðalatriðið er að losa um
miðstýringuna og fjarlægðar-
Morgunbladiö/Sigurdur
Þorsteinn Pálsson í ræðustóli á Selfossi, Sverrir Hermannsson lengst til hægri á myndinni.
stjórnunina." Hann sagði að verð-
jöfnunargjald yrði lækkað í 12% á
næsta ári og látið hverfa smátt og
smátt og verð á raforku þannig
lækkað.
Dyggðir fyrri kynslóða varðandi
fjármál voru Sverri tamar á tungu
og hann sagði í lok máls síns: „Við
þurfum að fóstra vel systurnar
ráðdeild og sparsemi og sækja þær
út í urðina þangað sem þær hafa
verið bornar undanfarna áratugi".
Þorsteinn lagði áherslu á það í
lok máls síns að áfram yrði byggt
á sömu viðhorfum varðandi
stjórnarstefnuna. „íslensk þjóð er
lítil en stór í sniðum," sagði Þor-
steinn og lagði áherslu á að lands-
menn þyrftu á bjartsýni og áræði
að halda í náinni framtíð.
— SigJóns.
Gabriele 9009
BRAÐFALLEG
Marks:
Good industrial
design
RAFEINDARITVÉL MEÐ LETURKRÓNU
Gabriele 9009 fékk hina eftirsóttu umsögn
„Good Industrial Design“ fyrir frábæra hönnun.
Gabriele 9009 er nýr mælikvaröi fyrir ritvélar.
SÉRSTAKLEGA GOTT ÍSLENSKT LETUR.
Leiöréttingaminni 2 línur.
Einkaritvél fyrir atvinnumanninn.
Heimilisritvél.
Skólaritvél.
Verð kr. 29.800,-____________
EinarJ. Skúlason hf.
Hverfisgötu 89, sími 24130.
Þaö geta ekki allir
unnið hjálparstarf —
en flestir geta hjálpað...
RACIÐI KROSS
ÍSLANDS
HJALPARSJÓÐOR
GÍRÓ 90.000-1