Morgunblaðið - 13.10.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
Það fylgir því alltaf
mikil eftirvænting að
byrja í skóla. Flest börn
halda að þau geti lært
að lesa og skrifa án
örðugleika og mörg
þeirra telja sig vera að
byrja skólagöngu sína
eingöngu til þess. Þegar
til kastanna kemur er
þetta ekki alltaf svona
einfalt. Flest þeirra ná
þó þessu takmarki
átakalítið en alltaf eru
nokkur börn úr hverjum
árgangi sem ekki tekst
þetta svo auðveldlega.
Þetta er í flestum tilvik-
um ekkert tengt greind,
en veldur börnum og
aðstandendum þeirra
oft miklum áhyggjum og
erfiðleikum.
Börn eru misjafnlega í
stakk búin til að læra
að lesa þegar þau byrja
í skóla. Það hefur mikið
að segja ef barn hefur
fengið örvun heima fyrir á þann
hátt að lesið hefur verið fyrir það
og talað mikið við það. Orðaforði
þeirra barna er oftast meiri en
hinna sem ekki hafa fengið slíka
örvun. Einnig er misjafnt hvernig
bækur eru hafðar fyrir börnum.
Þau börn sem koma frá heimilum
þar sem bækur eru mikið hafðar
um hönd eru oft mun áfjáðari en
önnur börn í að læra að lesa og
kunna betur að njóta bóka.“ Þetta
eru orð þeirra Þóru Kristinsdóttur,
lektors við Kennaraháskóla Is-
lands, og Rannveigar Lund, sér-
kennara, sem starfar við Lestrar-
sérdeildina í Fellaskóla í Breið-
holti, en það er eina lestrarsérdeild
landsins. Þær hafa báðar unnið
mikið að málefnum þeirra sem
eiga í lestrar- og skriftarörðugleik-
um.
Hvað eru lestrar- og
skriftarörðugleikar?
„Einstaka börn eiga í miklum
erfiðleikum með að læra að lesa
og skrifa en skera sig ekki að öðru
leyti úr jafnaldrahópnum. Þau
eiga með öðrum orðum ekki í nein-
um erfiðleikum með aðrar náms-
greinar, nema síður sé. örðugleik-
ar þessara nemenda í lestri og
skrift hafa verið kallaðir sérstakir
lestrar- og skriftarörðugleikar eða
lestregða, en alþjóðaheitið yfir
þetta er „dyslexi", sem er grískt
orð að uppruna og þýðir að eiga í
erfiðleikum með orð. Orðblinda
eða lesblinda eru önnur íslensk orð
Það eiga ekki allir jafn
auðvelt með að lœra
að ræða í hverju tilviki þegar
grannt er skoðað. Nokkrir þættir
sem þarna spila inn í geta verið
seinn, almennur þroski, erfða-
fræðilegir þættir, seinn málþroski,
erfiðleikar með sjón- og heyrnar-
skynjun, miklar fjarverur úr skóla,
tíð skólaskipti og tíð kennara-
skipti," segir Þóra. Hún bætir við
að rétt sé að hafa í huga að börnin
séu misjafnlega þroskuð þegar þau
hefji skólagöngu þó aldurinn sé
svipaður. „Einstaka kunna að lesa,
sum þekkja aðeins nokkra stafi og
önnur kunna enga stafi. Sum þurfa
greinilega meiri aðstoð en önnur.
Kennarinn hefur erfiðu hlutverki
að gegna þar sem ætlast er til að
hann taki tillit til námsþarfa hvers
einstaks nemanda og sinni honum
samkvæmt þeim. En forsendan
fyrir því er að fá góðan tíma til
að kynnast börnunum í upphafi
og gera sér grein fyrir stöðu hvers
og eins.“
„Það glíma ekki allir við sams
konar erfiðleika í þessum efnum.
Sum börn eiga í þannig erfiðleik-
um með lesturinn að þau snúa við
orðum, hlaupa yfir og rugla bók-
stöfum og lesturinn er mjög
skrykkjóttur. Þegar þau koma að
lokum setningarinnar eru þau svo
búin að gleyma því sem þau lásu
í upphafi og því fer allur skilningur
út í veður og vind. Það er einnig
svo mikil áreynsla að lesa orðin
að þau geta alls ekki leitt hugann
að merkingu þeirra. Þar sem lest-
urinn gengur mjög hægt grípa þau
til þess ráðs að giska þegar þau
rekast á erfið orð. Þau skilja öll
orðin þegar lesið er upphátt fyrir
þau, en það er ekki raunin þegar
þau lesa sjálf," segir Þóra.
„Það er einnig erfitt að skrifa
rétt. Einkum eru löng orð erfið
viðfangs, barnið ruglar bókstöfum
sem hafa lík hljóð (g-k, d-t, b-p
o.s.frv.), sleppir úr öðrum stöfum
eða ruglar rðð þeirra í orðinu.
Hjá öðrum börnum lýsa örðugleik-
arnir sér á þann hátt að þau lesa
e.t.v. flest orðin rétt, en lesturinn
verður frámunalega hægur vegna
þess að þau hljóða sig nákvæmlega
gegnum hvert orð og þessi mjög
Rannveig Lund og Þóra Kristinsdóttir.
yfir þetta fyrirbæri, en eru ekki
nægilega góð. Þau gefa til kynna
að eitthvað sé að sjón (sbr. blinda)
en þessir örðugleikar tengjast ekki
sjón eða augunum sem slíkum,
heidur er oftast um að ræða galla
á skynjun, þ.e. þeirri túlkun sem
á sér stað í heilanum eftir að við-
komandi hefur séð orðið. Þess
vegna er talað um skynræna
lestrarörðugleika,“ segir Þóra. Það
eru ekki til nákvæmar tölur yfir
nemendur í íslenskum skólum eiga
við lestrar- og skriftarörðugleika
að stríða. Þetta hefur hins vegar
verið kannað í nágrannalöndunum
og hafa verið nefndar tölur frá
5-15%. „Ætla má að um svipuð
hlutföll sé að ræða hér á landi.
Þar eru alltaf tveir til þrír nem-
endur í hverjum bekk sem eiga
erfiðara en hinir bekkjarfélagarn-
Morgunbla6iö/RAX
ir með að læra að lesa og skrifa.
Nokkur munur er á kynjum í þessu
tilviki, drengir virðast frekar eiga
í þessum erfiðleikum en stúlkur,
eða u.þ.b. þrisvar sinnum oftar.“
Orsakir
„Það er ekki til neitt einfalt svar
við því hvers vegna sumir eiga í
þessum örðugleikum en aðrir ekki.
Oftast er um fleiri en eina orsök
Akureyri:
Lagningu vegar um Vaðlareit að ljúka
„Alfarnir hafa verið okkur hliðhollir,“ segir forstjóri Samtaks h.f.
(ircnbóli, Akureyri, 6. okt.
NÚ ER að Ijúka lagningu vegarins
um Vaðlareit og Halllandsklappir.
Eftir miklar deilur um þetta vegar-
stæói, vegna trjágróðurs og álfa-
byggðar sem þarna kvað vera, var
verkið boðið út á síðastliðnu hausti.
Samtak hf. sem stofnað var um þetta
verk af eigendum Ýtunnar hf. á
Akureyri og Stefáns og Reynis hf. á
Sauðárkróki, áttu Isgsta tilboð í
verkið. Var það 46% af kostnaðar-
áætlun Vegagerðarinnar eða rúmar
12 milljónir kr. og var þeim falið að
leggja veginn.
Illa var spáð fyrir þessum ungu
mönnum í byrjun, en þeir hafa
haldið áfram af ótrúlegri elju og
dugnaði. Þarna er um að ræða sjö
menn, tvo ýtumenn með tvær ýtur,
stóra gröfu og mann á henni, þrjá
vörubíla og menn á þeim og einn
verkfræðing.
Það vekur athygli að verkfræð-
ingurinn hefur unnið þarna í allt
sumar og mælt fyrir hverjum verk-
þætti jafnóðum, og leyst aðsteðj-
andi vandamál þegar þau bar að.
Einnig vekur athygli þegar farið
er um þetta vinnusvæði hve vel er
um allt gengið. Hvergi er far eftir
nokkurt tæki utan vegarstæðis
nema þar sem aðsetur verktakanna
er, svo og efnistaka. Verkið ber það
með sér að það er unnið af mönnum
sem bera mikla umhyggju fyrir
náttúrunni. Víða sést hvar ungri
plöntu hefur verið þyrmt þar sem
þess var kostur án þess að verkið
liði fyrir það.
Fréttamaður Mbl. hitti Stefán
Árnason, annan forsvarsmann
verktaka og spurði hann hvort
nokkrir óvæntir erfiðleikar hefðu
komið upp. Taldi hann þá enga
nema ef vera kynni skipti þeirra
við eftirlitsmenn Vegagerðarinnar,
en þeim hætti til að vilja ráða
hvernig staðið væri að verkinu
fremur en hver árangurinn væri.
Hörður Blöndal verkfræðingur
verktaka var spurður hvernig verk-
ið kæmi út fjárhagslega. „Þetta
ætlar að hafast, en það verður
ekkert eftir.“ Og engir erfiðleikar?
„Litlir. Þó gengu sprengingarnar
ver en reiknað var með vegna vætu-
tíðarinnar. Við notuðum nefnilega
ekki dínamít."
Hvað um álfabyggðina í Hall-
landsklöppunum?
„Okkur hefur komið vel saman,“
segir Hörður og brosir. „Þeir hafa
verið okkur hliðhollir."