Morgunblaðið - 13.10.1985, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 13.10.1985, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985 DAGARí DJIBUTI TEXTI: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR Ifímmtíu stíga híta tfl Assalvatns Ali Omar, bílstjóri kemur aö sækja mig á landróvern- um eftir að ég hef dvalið í skugganum við sundlaug- ina fram eftir degi. Ali ætlar að fara með mér í skoðunarferð á markaðinn eins og ég hafði beðið um. Hann reyndist mér hin mesta hjálparhella, þegar mér gekk satt að segja ekki bermilega með frönskuna og enn verr með mállýzku Sómalí-Djibuta. Þetta voru að vísu dálítið flókin tjáskipti, svo að mér hugkvæmdist að draga fram litla vasaorðabók enskfranska. En það hrekkur skammt. Ali er meðal þeirra áttatíu prósent íbúa Djibuti, sem eru hvorki læs né skrifandi. Hins vegar átti ég eftir að kynnast því, þegar við fórum með herra Zariah til Assalvatns, að betri torfærubílstjóra getur varla, né ljúf- ari mann og viðmótsþýðari. í vél Air Djibuti frá Sana’a gengu flugliðarnir um og spurðu farþega, hvað þeir vildu fá að drekka. Þetta er stutt flug, rétt fimmtíu mínútur. Ég hafði verið í telandinu í tíu daga, og sagðist vilja te. Ekki með mjólk, takk fyrir. Mér var náttúrlega boðið te. Eg sá, að hjónin hinum megin í sætaröðinni voru að drekka eitt- hvað sem var grunsamlega líkt bjór. Ég ákvað að halda upp á daginn og fá mér einn koníakk. Jafnvel þótt mér þyki það ekki sérlega gott. Maður getur greini- lega komist á mótþróaskeiðið á öllum aldri, ef því er að skipta. Ég hafði smám saman vanizt ljómandi vel hitanum í Jemen, 32-35 stig og þurrt loft er prýðilegt veðurlag. Þegar komið er á völlinn i Djibuti grípur maður svo andann á lofti, hér er maður eins og stadd- ur í hressilegu saunabaði. fjörutíu og þriggja stiga rakur hiti. En auðvitað má öllu venjast — næst- um því svo að gott þyki. Á landakortinu lítur Djibuti út eins og örlítill depill. Það er ekki ýkja stórt, en þó um 23 þúsund ferkílómetrar með ótrúlega fjöl- breyttu landslagi og litríku mann- lífi. Djibuti hefur ekki verið sjálf- stætt ríki nema í átta ár. Samt er það á sinn hátteitt af furðuverkum álfunnar og eins og öll furðuverk, brýtur það líka allar reglur. Landið er eins og því hafi verið þrýst inn á milli Eþíópíu og Sómal- íu. Þó að Djibuti hafi orðið að taka við nokkrum tugum þúsunda flóttamanna frá Eþíópíu og Sómal- íu hafa hagvöxtur og þjóðartekjur samt vaxið og landið hefur komist hjá innri átökum og það hefur heldur ekki blandast inn í átökin allt í kring. Það er furðulegt hvað Frakkar hafa skilið illa við lendur sínar í menntunarlegu tilliti. Þegar þeir fóru frá Djibuti og leyfðu því að verða sjálfstætt, var ástandið í þessu efni verra nýlendum Breta Aftur á móti er en í til dæmis og Þjóðverja. stjórnvöldum í Djibuti mjög áfram um að þjóðin nái sér á strik, hvað þetta varðar og er gengið hart eftir því að fólk sendi börn sín í skóla. Frönsk áhrif sjást hvarvetna og þó að fólk tali mállýzkur ættbálka sinna virðast allir tala frönsku. Enda voru Frakkar hér allsráð- andi í meira en öld og þrátt fyrir sjálfstæði og ótrúlegan dugnað þeirra Djibuta er áframhaldandi stuðningur Frakka við landið betri en enginn. Mér skilst að málum hafi verið ráðið til lykta með eins konar vináttusamningi höfðingjanna í landinu innbyrðis árið 1862. Tutt- ugu árum síðar var Djibuti höfuð- borg svæðisins og það er ekki fyrr en eftir seinni heimsstyrjöldina sem Djibuti fékk eins konar heimastjórn og þing, þótt það lyti enn yfirráðum Frakka. Það er svo í marz 1967 að Franska Sómalíu- land, eins og það var kallað, verður franskt verndarsvæði Afara og Issara. Sjálfstæðishreyfingunni hafði þá vaxið fiskur um hrygg og voru allir á einu máli um að krefj- ast fullkomins sjálfstæðis. Franska stjórnin gaf út yfirlýs- ingu; nokkuð þykir mér hún hafa verið hrokalega orðuð þar sem Djibouti, á litlu myndinni sézt hvernig landið er merkt eins o<» lítill depill. Æ Eyjan í Ghoubet. segir „að Djibuti sé senn tilbúið að verða ríki". I þjóðaratkvæði nokkru síðar sýndi sig svo hver var vilji þjóðarinnar og lýðveldið Djib- uti verður til síðla júnímánaðar 1977. Um fjögur hundruð þúsund manns búa í lýðveldinu, sú tala er á reiki og meiningin að efna til allsherjar manntals á næsta ári. Hvorttveggja er að hirðingjarnir inni í landinu hafa lítið skeytt um að tilkynna fæðingar og andlát á sínum heimilum og svo hefur nátt- úrlega hlutfallið eitthvað breytzt við komu flóttamanna frá Sómalíu og einkum Eþíópíu. En meirihluti telst vera Afar og síðan koma Sóm- alíu-Djibutar. Þá er hér allfjöl- mennt arabalið, flest komið frá Jemen-ríkjunum handan Rauða hafsins. Djibutiborg — þar sem um helmingur þjóðarinnar býr er afar fjörleg og litrík borg. Þar ægir öllum mögulegum áhrifum saman og ekki er ég viss um að Djibuti sé dæmigerð Afríka, alténd ekki borgin sjálf. Mjög margir útlend- ingar eru búsettir þar og enda borgin á mikilvægum hernaðarleg- um og landfræðilegum stað. Hvergi varð vart að fólk liði hér skort, allir voru vel klæddir, að hætti síns lands, verzlanir troð- fullar af varningi hvaðanæva að, markaðurinn í litlu búðunum með miklu magni af vörum og skemmtilegt að prútta þar. Á hinn bóginn kom mér á óvart, hversu erfitt var að hafa upp á einhverju því sem var óumdeilanlega frá Djibuti sjálfu; ekki skorti útskurð og gripi frá Kenya hins vegar. Með góðri aðstoð heimamanns eins og Alis fundum við þó sitt af hverju Ali komst allra ferða yfír hraunið. Úr Arroukobahrauni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.