Morgunblaðið - 13.10.1985, Síða 62

Morgunblaðið - 13.10.1985, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985 62 - Þegar komið var út (horf&st í augu grámyglur tvsr). Allflestir íslendingar kann- ast við Kerlingarfjöll og tengja þau við stórfeng- lega náttúru og skemmti- legt sumarskíðasvæði. Fsstir vita að undir jökulhettunni, skammt frá skíðasvæðinu, hafa myndast nokkuð stórir íshellar í kringum árfarveg, er liggur nærri því eftir jöklinum endi- löngum. Okkur félögunum hafði lengi langað til að kanna þessa íshella eða allt frá árinu 1982. Þá komust nokkrir okkar fyrir tilviljun niður í aðalgang hellisins eftir jökul- sprungu sem við vorum að kanna. í það skipti urðum við frá að hverfa þar sem mikill tími fór í að komast á botn sprungunnar. Vor- um við því komnir í tímaþröng. Síðan höfum við fylgst með sprungumyndun á svæðinu, ef í ljós kæmi að hægt væri að komast niður í hellana en þeir eru annars algjörlega lokaðir. Seinast i ágúst á þessu ári feng- um við þær fréttir að sprungur væru að opnast á þeim stað á jökl- inum þar sem vænta mátti að ís- hellarnir lægju undir. Við ákváð- um að fara strax í Kerlingarfjöll og taka þar til er frá var horfið 1982. Föstudaginn 7. september síð- astliðinn lögðum við svo af stað upp í Kerlingarfiöll. Vorum við komnir inn að Asgarði (en svo heitir staðurinn þar sem skálar skíðaskólans eru staðsettir) um kl. 4 aðfaranótt 8. september. Kl. 11 næsta morgun bjuggumst við af stað í helialeiðangurinn. Hellirinn Þegar við félagarnir Eiríkur, Björn, Guðmundur og Þorkell vor- um búnir að finna sprungu, sem hægt var að komast eftir inní gang hellisins, urðum við fyrir nokkrum vonbrigðum. Sprungan gengur nefnilega niður í hellinn, þar sem hann er einna næstur yf- irborði snjóþekjunnar. Var það ólíkt sprungunni 3 árum áður sem var um 40—50 m djúp. Niðurgang- an var því mjög auðveld enda ekki nema 15—20 m niður á botn sprungunnar. Þegar inn i hellinn var komið, var um tvær leiðir að ræða. Annars vegar niður með árfarveginum, sem þarna liggur, og út um 250 m neðar. Hinsvegar upp eftir farveginum tæplega 1 km langa leið að botni hellisins. Við ákváðum að kanna efri leiðina fyrst enda virtist hún mun áhuga- verðari. Hæð hvelfingarinnar þar sem við lögðum af stað var á að giska 3 m en lækkaði nokkuð á fyrstu 200 m og komst niður i tæpa 2 m áður en hún fór hækkandi aftur. Fyrstu 300 m voru lítið áhugaverðir. Að- eins grýttur botn og seitlandi hveralækur og falleg íshvelfing yfir. Á næstu 200 m þrengdist hellirinn nokkuð, þar sem vatn hefur brotið sér leið gegnum berg. Breidd árfarvegsins er þarna rétt um metri og lofthæð 5—8 m. Af þessu drógum við þá ályktun að lækurinn, sem rann sakleysislega eftir botninum líktist meira stór- fljóti þegar mest væri í honum. Sprungan sem farið var niðrum. Rétt við op hellisins. GEGNUM MÐJ0KUL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.