Morgunblaðið - 13.10.1985, Síða 63

Morgunblaðið - 13.10.1985, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985 63 Texti & myndir/Þorkell Þorkelsson F.r. Eiríkur og Björn Guðmundur þar sem hellirinn er hvað þrengstur. Eiríkur klifrar niður smá klett Þegar fram hjá þrengsta kafl- anum var komið víkkuðu gðngin og líktust nú nokkuð stórum sal. Hátt var til lofts eða um 20 m Mikið hafði hrunið af ís úr loftinu. Fyllti ískögglahrúgan næstum út í op gangsins, sem þarna opnast. Sum ísstykkin voru á stærð við niyndarlegan hægindastól. Er við höfðum litast um stund- arkorn héldum við áfram eftir nlíka þröngum gangi og þeim ^yrri. Var hann þó heldur erfiðari yfirferðar. Sumstaðar höfðu niyndast holur á botninn frá 50 cm upp í 150 cm djúpar. Eftir að hafa klöngrast áfram eftir u.þ.b. 100 m löngum göngum til viðbótar kom- um við inn í stóra hvelfingu mun stærri en þá fyrri. Hvelfingin var um 35 m á breidd, 125 m á lengd og um 20—25 m á hæð. Þegar við höfðum grandskoðað hvelfinguna vorum við þess full- vissir að við værum búnir að ná botni hellisins. Þó vakti það furðu okkar að undan einum ísveggnum rann lækur án þess þess sæust öokkur merki á ísveggnum. Að þessu loknu héldum við til baka til að skoða útganga hellisins. Nú fórum við aftur að ískögglahrúg- unni sem viö fórum framhjá á leiðinni inn í hellinn. Þá klifruð- um við yfir hrúguna sem var ookkuð torfarin. Ofan af hrúgunni súst mjór og illfær gangur. Þetta gladdi okkur vegna þess að okkur 'angaði að láta reyna svolítið á °kkur. Gangurinn, sem var all- uokkuð torfarinn fyrir, þrengdist nú stöðugt og varð æ erfiðari yfir- ferðar. Þegar við vorum komnir um 75 m inn í hann komum við að u.þ.b. 4 m háum kletti, sem reyndist okkur nokkur þrándur í götu. Niður hann rann lækjarspræna sem gerði hann hálan og þar með erfiðan að klifra. Eftir nokkurt þóf tókst okkur þó að komast upp klettinn. Næsti 25 m kafli var vægast sagt erfiður yfirferðar, þar sem þrengsli til lofts og veggja var orðið óþægilegt auk þess sem mik- ið stórgrvti fyllti næstum upp í göngin. A einum stað var u.þ.b. 4—5 m djúp og 3 m löng gjóta sem þurfti að klifra yfir. Síðustu 10 m áður en botni var náð gátum við varla skriðið á maganum þvílík voru þrengslin orðin. Þegar við komum inn í botn, köstuðum við mæðinni stundarkorn, við stöns- uðum þó ekki lengi þar sem ekki var notalegt að hvíla sig liggjandi í grýttum drullupolli með 20 cm milli lofts og gólfs. Að svo búnu héldum við til baka út úr hellinum og vorum komnir að sprungunni sem við lögðum af stað frá u.þ.b. ‘A tíma síðar. Hafði þá ferðin tek- ið um 2 tíma. Þegar hér var komið sögu áttum við einungis eftir 250 m langan spotta sem liggur frá sprungunni að opinu þar sem lækurinn kemur út. Gangan niður að opinu er auð- veld og tekur ekki nema 10—15 mínútur. Þegar við loks komumst út, drif- um við okkur að tína saman dótið okkar og flýttum okkur svo í elda- mennskuna niðrí skála. á —■■r’ Pi"*r4«t«li Bobby Ewing er blindur eftir skotárás. J.R. er sýnt banatilræöi, en hann sleppur. Er Cliff hinn seki? Fjölmargir hafa beöiö þáttanna, - nú er framhaldið komið. Fyrst um sinn aðeins á Reykjavíkursvæöinu, Keflavík, Akranesi og Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.