Morgunblaðið - 06.11.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1985
7
Fiskveiðasjóður:
Leggur til nýjar
reglur um endur-
nýjun fiskiskipa
Ekki tímabært að ganga frá slíku fyrr en fiskveiði-
stefnan liggur fyrir, segir sjávarútvegsrádherra
STJÓRN Fiskveiðasjód8 hefur nú
lagt til við stjórnvöld, að ákveðnar
reglur um endurnýjun fiskiskipa-
stólsins verði samþykktar. Þar er
meðal annars miðað við að lejfð
verið nýsmíði skipa innanlands og
innflutningur gamalla og nýrra skipa
svo fremi sem skip hverfí úr rekstri
á móti. Úr Fiskveiðasjóði hafa engin
lán verið veitt til skipakaupa síðast-
liðin þrjú og hálft ár. Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra, seg-
ir margt gott um tillögurnar að segja,
en hann telji ekki tímabært að ganga
frá slíkum reglum fyrr en fiskveiði-
stefnan hafí verið mótuð.
Tillögur Fiskveiðasjóðs eru á þá
leið, að skilyrði fyrir lánveitingu
úr sjóðnum til nýsmíði innanlands
eða utan svo og til kaupa á fiski-
skipi erlendis frá, séu að skip af
10 milljónum var-
ið til fræðslumála
á næsta ári?
— Tillaga þess efnis samþykkt af samgönguráðherra
Samgönguráðherra Matthías
Bjarnason, hefur samþykkt tillögur
sérstakrar nefndar um öryggismál
og námskeið fyrir sjómenn, sem skal
vera skilyrði lögskráningu á skip
innan ákveðins tíma. I tillögum
nefndarinnar felst einnig að til nám-
skeiðahaldsins verði varið 10 milljón-
um króna á næsta ári.
Guðjón A. Kristjánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, ræddi mál þetta við
setningu þings FFSÍ á þriðjudag.
Hann gat þess, að markmið nefnd-
arinnar væri að haldin yrðu
þriggja til fjögurra daga farnám-
skeið með svipuðu sniði og SVFf
hefur að undanförnu gengizt fyrir.
Sjómenn væru 6.000 til 7.000 og
teldi nefndin æskilegt að ná til
þeirra allra á þremur til fimm
árum. Varðskipið Þór, sem Slysa-
varnafélagið hefði nú eignazt, væri
vissulega góður kostur til að hýsa
slík námskeið og auðveldaði flutn-
ing þeirra milli staða.
Guðjón taldi mikið hafa áunnizt
í öryggismálum síðustu tvö ár, en
þetta mál sagði hann einn af
stærstu áföngum öryggismálanna
á síðustu árum.
Umrædda nefnd skipa: Ólafur
S. Valdimarsson, Árni Johnsen,
Haraldur Henrýsson og Magnús
Jóhannesson.
Loðnuaflinn
330 þús. lestir
ENGIN loðnuveiði hefur verið síðan á sunnudag vegna brælu, en hún
var farin að ganga niður seinnihluta mánudagsins. Alls hafa nú 330.000
lestir borizt á land frá upphafi vertíðar af áður ákveðnum kvóta, 500.000
lestir.
Á föstudag síðastliðinn varð
heildaraflinn 2.700 lestir af 16
skipum og á laugardag 6.140 af
12 skipum, en þá var brælunnar
þegar farið að gæta.
Auk þeirra skipa, sem áður
hefur verið getið í Morgunblað-
inu, tilkynntu eftirtalin skip um
afla á föstudag: ísleifur VE,
730, Eldborg HF, 1.480, Húna-
röst ÁR, 620, Guðmundur RE,
950, I lákon ÞH, 800, Súlan EA,
800 og Örn KE, 590. Á laugardag
tilkynntu eftirtalin skip um
afla: Þórshamar GK, 600, Bjarni
ólafsson AK, 1.080, Hrafn GK,
600, Sæberg SU, 580, Sjávarborg
GK, 650, Heimaey VE, 250, Ljós-
fari RE, 470, Gullberg VE, 250,
Jón Kjartansson SU, 450, Börk-
ur NK, 660, Guðrún Þorkels-
dóttir SU, 450 og Guðmundur
ÓlafurÓFlOOlestir.
Öryggismál sjómannæ
Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSl, flytur yfirlitsræðu sína á þingi sambandsins í gærmorgun. Morgunblaði«/Bjami
32. þing FFSÍ sett:
sömu eða svipaðri stærð verði úr-
elt, selt úr landi eða strikað út af
skipaskrá af öðrum ástæðum. Sé
um kaup á skipi að utan að ræða
verði aldur þess ekki yfir fjögur
ár. Að þessum skilyrðum uppfyllt-
um leggur sjóðurinn til, að lán til
nýsmíði innanlands verði 65% af
byggingarkostnaði, til nýsmiði
erlendis 60% og sömuleiðis til
kaupa notaðra skipa að utan. Þá
verði kaupendur að leggja eigið
framlag inn á reikning í Seðla-
bankanum og staðfest söluverð á
seldu skipi i stað hins nýja liggi
fyrir eigi síðar en 12 mánuðum
eftir að fyrri skilyrði hafi verið
uppfyllt. Ekki verði heimilaðar
erlendar lántökur til skipakaupa
umfram lánveitingar Fiskveiða-
sjóðs.
Andvígur kvóta á hvert skip
— segir Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSI
32. þing Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands var sett í gær af
forseta þess, Guðjóni A. Kristjáns-
syni. Þá fluttu gestir ávörp, meðal
annarra Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra.
í ræðu sinni rakti Guðjón helztu
atburði frá síðasti þingi FFSÍ, sem
haldið var fyrir tveimur árum og
það, sem framundan væri. Hann
lýsti sig andvígan kvóta á hvert
fiskiskip eins og verið hefur og
sagði, að yrði fylgi við þá hugmynd
ofan á, yrðu fylgismenn hennar
að fylgja því máli eftir. Guðjón
ræddi einnig öryggismál sjómanna
og lífeyrismál og taldi mikið hafa
áunnizt í þeim. Hann ræddi einnig
tillögur Fiskveiðasjóðs um end-
urnýjun fiskiskipastólsins og gat
þess, að meðalaldur hans væri
orðinn full hár, þó mikið af eldri
skipunum hefðu verið endurbyggð
og þeim breytt.
Helztu viðfangsefni þingsins
verða öryggis- og kjarmál og fisk-
veiðistefna næstu ára. Áætlað er
að þinginu ljúki í lok vikunnar.
ÞESSI
PLASTKASSI
FREINN
AFMÖRGUM
FRA PERSIÖRP...
Uppröðun á mismunandi gerðum Peretorp
kassa er einföld.
NES ffr*
PORTHF
Perstoip verksmiðjan í
Svíþjóð, er meðal stærstu
plastkassaframleiðenda í
Evrópu. Nesport hf. hefur tekið
að sér umboð fy rir Perstorp Form
á íslandi.
Við bjóðum þér að
kvnnast möguleikum Perstorp
píastkassa. með því að hringja í
sölumenn okkar í síma 621190
og fá sendan bækling með nánari
upplýsingum, eða líta við í
sýningarsal okkar að
Austurströnd 1. Seltjamamesi.
Perstorp plastkassar
henta vel fyrir: Frystihús,
fiskverkanir. sláturhús. pósthús,
bakarí. gróðurhús, kartöflur.
grænmeti og fyrir allskonar
iðnað.
UMBODS OG HEILDVERSLJUN
Austurströnd 1 sími 621190
Seltjamamesi
-hafðu samband
og kynntu þér urvalið.