Morgunblaðið - 13.12.1985, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
11
Þetta er fólk sem tók til hendinni.
Sögusviðið er Suðurland. Jón Gísli
lætur fólk segja frá lífshlaupi sínu
gervöllu, einnig frá foreldrum ef
svo ber undir, stundum líka öðrum
ættingjum og samferðamönnum á
lífsleiðinni. Stöku sinnum verður
mannfjöldinn slíkur að maður
verður að gæta sín að halda þræð-
inum. Aldurhnignir sveitungar
sögumanna munu þó varla þurfa
að nema staðar í lestrinum því hér
er langmest sagt frá fólki og at-
burðum sem margur mun enn
geyma í minni, ef ekki af sjón og
raun þá að minnsta kosti af spurn.
Sögufólk Jóns Gísla varð að
heyja stranga lífsbaráttu, það varð
eins og aðrir að strita til að hafa
í sig og á. Hitt er athyglisvert
hversu mikil hreyfing hefur verið
á fólki fyrr á tíð, hve oft fólk flutt-
ist bæja og jafnvel sveita á milli.
í einu dæminu er það rakið til
eirðarleysis — „tolldi hvergi". En
vafalaust munu fleiri ástæður hafa
valdið, svo sem löngun eftir til-
breytingu, hagnaðarvon, eða per-
sónulegar ástæður af ýmsu tagi.
Fyrir karlmenn var um tvenns
konar atvinnu að velja: bústörf og
sjómennsku. Konur voru nánast
útilokaðar frá hinu síðar talda svo
þær höfðu ekki um neitt að velja.
Og vinnukonustarf í sveit var
sjaldnast neitt sældarbrauð. Væri
kona ein á báti gat hún nokkurn
veginn fætt sig og klætt miðað við
sinnar tíðar kröfur. Hefði hún
barn á framfæri varð lífsbaráttan
sýnu tvísýnni eins og lesa má um
í þáttum þessum.
Bók þessari fylgir skrá yfir
mannanöfn sem sýnir hversu fjöl-
mennt er í frásögnum Jóns Gísla,
einnig skrá yfir bæjanöfn sem
tekur yfir fjórar blaðsíður. Nokkr-
ar gamlar ljósmyndir eru í bók-
inni. Gamlar myndir eru ekki allt-
af skýrar og greinilegar og þurfa
því góða meðhöndlun á öllum
vinnslustigum til prentunar. Eitt-
hvað sýnist mér á það vanta hér.
É
Dóra Stefánsdóttir
atburðir séu sannferðugir, vantar
eitthvað í þessa sögu. Eitthvað sem
lesandi leitar að til þess að fá
samhengi í persónugerðir. Páll er
gerður óvenjulegt átta ára barn.
Höfundur ofhleður þroskaferil
hans.
Hin börnin tvö frá Félagsmála-
stofnun fá kuldaleg meðhöndlun.
Pálína er þokukennd persóna og
lesandi fær fremur litla mynd af
henni aðra en umsagnir af at-
hafnaleysi hennar. Þó nóg til þess
að renna grun í að eitthvað mikið
er að. Hlýja og skilningur gagn-
vart einmana unglingi eru víðs
fjarri.
Umsagnir heimafólks, atburðir
og framkoma tólf ára drengsins
frá stofnuninni er allt á einn veg.
Lesandi sér inn í hyldýpi örvænt-
ingar hjá þessum ógæfusama
dreng. Enginn virðist eiga þá var-
færni og uppörvun sem slíku barni
er lífsnauðsyn, að láta það finna
að þrátt fyrir allt er það mikils
virði sem mannvera. Nei, hér
streymir kuldinn að barnssálinni.
Aldrei hefi ég áður heyrt um
skurði þá í sveitinni sem nefndir
eru „líkskurðir" af því að lamba-
hræjum er kastað í þá um sauð-
burðinn.
Myndir eru að mínu mati mjög
góðar og myndin framan á kápu
bókarinnar segir mikið.
k sem
Slökkvitæki, reykskynjarar
Arinsett
Rafmagnsverkfæri
íöllverk
i'-v
i.'-x-.Vír-.v.vVv:-:
.v.í'.Aff.
Handverkfæri
íöll önnurverk
Vasaljós, luktir
Olíulamparogluktir
Lyklasett USAG
Ulpur — jakkar —
frakkar — siglinga
jakkar og fatnaður
í úrvali.
Loftvogir, klukkur,
sjónaukar
oglíkaallttil
aðmála
Norsku
ullarnærfötin
Opið til kl. 18
laugardag.
Vöruúrvalið kem-
ur þér á óvart.
■: \v.\vv v.v:
:• vV.-.:.;.;.;.;.:.:
Loðfóðraðir samfestingar
Ánanaustum, Grandagaröi 2, sími 28855
Vertu velkominn!
I fatadeildinni