Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
35
Annað bindi
Aldarspegils
ANNAÐ bindi í bókaflokknum Ald-
arspegill eftir Elías Snæland Jónsson
er komiö út hjá Vöku-Helgafelli og
heitir bókin Undir högg aö sækja.
í bókinni eru þrír heimildaþætt-
ir frá fyrri hluta aldarinnar, sá
lengsti um „kollumálið" svo-
nefnda, og hinir tveir fjalla um
illa meðferð á börnum. í fréttatil-
kynningu frá útgefandi segir m.a.:
Aðalpersóna „Kollumálsins" var
Hermann Jónasson, fyrrum for-
sætisráðherra, sem þá var lög-
reglustjóri í Reykjavík. Hann var
sakaður um að hafa skotið á fugla
í Örfirisey og drepið þar æðar-
kollu, en það athæfi hefði verið
brot á lögreglusamþykkt bæjarins.
„Kollumálið" varð pólitísk stór-
bomba ársins 1934 og blandaðist
bæði inn í kosningabaráttu fyrir
bæjarstjórnarkosningar og al-
þingiskosningar það ár. En hvað
segja lögregluskýrslur og skjöl um
þetta sérstæða mál? Skaut Her-
mann kolluna eða ekki?
Undir högg að sækja heitir þessi
Aldarspegill. Sá titill á bæði við
um Hermann Jónason og börnin
tvö, sem einnig er sagt frá í þessari
bók, þótt aðstaða þeirra hafi verið
harla ólík. Það mun vafalaust
koma mörgum á óvart, hversu
skammt er síðan saklaus börn
hlutu þvílíka meðferð, sem hér er
lýst.“
Bókin er sett, filmuunnin og
prentuð í Prenttækni hf. en bundin
í Bókfelli hf.
Unglingabók
eftir Ármann
Kr. Einarsson
Ný unglingasaga eftir Ármann Kr.
Einarsson er komin út hjá útgáfunni
Vaka - Helgafell. Hún heitir Lagt út
ílíflð.
I fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir m.a.: „Þessi nýja ungl-
ingasaga metsöluhöfundarins Ar-
manns Kr. Einarssonar er lífs-
ævintýri ungs manns. Lífið er
óráðið og áhugavert. Bjart fram-
undan.
Æskuár hans eru þrungin ævin-
týrum og spennandi atburðum og
allt í kringum hann er fjölskrúðugt
mannlíf. Unglingsárin taka við;
hann fer að veita stelpunum í
kringum sig meiri athygli, en er
eins og fleiri á því sviði heldur
óframfærinn gagnvart þeim.
Framtíðaráform ogdraumar eru
ofarlega á baugi, en fyrstu sporin
í átt að því sem hugurinn stendur
til, reynast erfið í fyrstu, en allt
fer vel. Skemmtileg atvik frá ferli
Ármanns hafa orðið kveikja að
Ármann Kr. Einarsson
ýmsum spaugilegustu uppákomum
bókarinnar og ekki er aðalpersón-
an alls óskyld honum."
Lagt út í lífið er sett, filmuunnin
og prentuð í Prentstofu G. Bene-
diktssonar, en bundin í Bókfelli hf.
Minningar Huldu
Á. Stefánsdóttur
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur gefiö út fyrsta bindi minninga
Huldu Á. Stefánsdóttur. Hulda hefur
skráö bók sína sjálf en Hjörtur Páls-
son bjó hana til prentunar.
Á bókarkápu segir m.a.: f fyrsta
bindi endurminninga sinna segir
Hulda Á. Stefánsdóttir frá ætt
sinni og uppruna, foreldrum sínum
og bernskudögum í Hörgárdal, en
breiddin í frásögn hennar tengir
sögu og samtíð og bregður ljósi
yfir liðinn tíma, m.a. með gömlum
bréfum og óbirtum kveðskap. Fólk,
atvik og staðir verða ljóslifandi í
frásögn Huldu. Mannlýsingar
hennar eru skýrar og hispurslaus-
ar, yljaðar kímni og næmum lífs-
skilningi. Þar er dregin upp mynd
af gömlum búskaparháttum og
daglegu lífi í sveit og bæ fyrir ára-
tugum. Alþýða og höfðingjar, karl-
ar og konur, bændur og Hafnar-
stúdentar, hefðarkonur og heldri-
menn koma við sögu í ólíkum
verkahring og misjöfnu umhverfi
sem vel er lýst. Þess vegna verða
minningar hennar náma fyrir alla
sem unna mannfræði og menning-
arsögu og þjóðlegum fróðleik í
víðum skilningi.
Öll frásögnin er eðlileg og yfir-
lætislaus. Penninn leikur í höndum
Huldu sem kann þá list að segja
sögu, þannig að mál og stíll hlýði
höfundinum og hrífi með sér les-
andann.
Bernska
Kápumynd er málverk sem Kristín
Jónsdóttir listmálari málaði af
Huldu þegar hún var um tvítugt.
Minningar Huldu Á. Stefáns-
dóttur munu, ef að líkum lætur,
skipa henni á bekk með nokkrum
þeim löndum hennar sem samið
hafa merkastar minningabækur á
síðustu áratugum."
Bókin Minningar Huldu Á. Stef-
ánsdóttur er sett og prentuð í
Prentstofu G. Benediktssonar en
bundin í Arnarfelli.
“ Gamli “
;m miðbær inn 1
gefur út
auglýsingablað
Næstkomandi þriðjudag
hafa samtökin um gamla
miðbæinn ákveðið að gefa út
auglýsinga- og upplýsinga
blað um gamla
miðbæinn.
Þeir, sem hafa áhuga á að
auglýsa i blaðinu, eru beðnir
að hafa samband við auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins
fyrir nk. laugardag.
GAMLIMIÐBÆRINN
LAUGAVEGI37 (UPPI), SÍM118777
IBETEL
'Rödd Einars hefui náð eyrum fólksins vegna
opinskarrar og væmnislausrar boðunar. Hann segir hressi-
lega frá með tungutaki sjómannsins og Eyjapeyjans.
Þessi bók geymir endurminningar Einars frá
Vestmannaeyjum. Einar segir frá bernskuheimili sínu,
uppvexti á kreppuárunum, atvinnu- og mannlífi í Eyjum,
bátasmíði, útgerð og sjósókn. Hann greinir frá merkilegum
trúarreynslum, persónulegri sorg og dapurri lífsreynslu.
Lesandinn fær að skyggnast inn í huga sálusorgarans, sem
verður að veita huggun og ráð á erfiðum stundum.
Frásögnin er lífleg og krydduð skemmtilegum sögum eins
og Einars er vandi.
FÍLADELFlA
FORLAG
Hátúni 2, 105 Reykjavík, símar 91-20735/25155