Morgunblaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR13. DESEMBER1985
Ragnhildur Davíðs-
dóttir — Minning
Fædd 9. september 1909
Dáin 4. desember 1985
Amma okkar, Ragnhildur Dav-
íðsdóttir, er horfin á annað tilveru-
stig eftir baráttu við erfiðan sjúk-
dóm.
Hún fæddist þann 9. september
1909 á Kambi í Vopnafirði, dóttir
hjónanna Herdísar Benediktsdótt-
ur og Davíðs Ólafssonar, útgerðar-
bónda þar.
Ung giftist hún afa, Guðna Er-
lendi Sigurjónssyni, og bjuggu þau
á Vopnafirði fyrstu búskaparár
sín, en vegna veikinda afa fluttust
þau suður til Reykjavíkur 1941, þar
sem afi þurfti að leita sér lækninga
og leggjast á sjúkrahús. Þetta hafa
vafalítið verið erfiðir tímar þar
sem fyrirvinnan var frá vinnu í
langan tíma og hefur eflaust oft
verið þröngt í búi. En með dugnaði
hjálpuðust amma og elstu börnin
að, og tókst þeim að halda heimil-
inu gangandi.
Amma og afi eignuðust 6 börn
*
t
Móöir mín og tengdamóðir,
BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
frá Svansvík,
Reykjafjarðarhreppi,
lést aö kvöldi 11. desember í dvalarheimilinu Hrafnistu, Reykjavtk.
Fyrir hönd vandamanna,
Friögeröur Siguröardóttir,
Kristmundur Gíslason.
t
Faöir okkar,
HANNES EÐVARÐ ÍVARSSON
frá Neskaupstaö,
Háaleitisbraut 115, Reykjavík,
andaöist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfiröi aö morgni 12.
desember.
ívar Hannesson og systur.
t
Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
SIGRÍDUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Bolungavík,
veröur jarösungin frá Akranesskirkju laugardaginn 14. desember
kl. 11.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Börn, tengdabörn, ömmu- og
langömmubörn.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
JÓHANNA OKTAVÍA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Vallholtí 11,
Ólafsvík,
veröur jarösungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 14. desember
kl. 14.00.
Börn og tengdabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu,
AÐALHEIÐAR SIGURVEIGAR JÓHANNESDÓTTUR,
Hringbraut 91,
Keflavík,
fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 14. desember kl. 14.00.
Steinar Skúla-
son — Kveðjuorð
og eru 5 þeirra á lífi, þau eru:
Hermann, f. 1929, giftur Elsu
Níelsdóttur, Lára, f. 1935, gift Ás-
grími Kristjánssyni, Davíð, f. 1938,
Einar, f. 1945, giftur Helgu Krist-
mundsdóttur, og Sveinn, f. 1952,
giftur ólöfu Halldórsdóttur.
Barnabörnin eru orðin 15 og
barnabarnabörnin 8.
Amma var mikii hannyrðakona
og eru þeir ófáir vettlingarnir og
sokkarnir sem hún hefur prjónað
og gefið okkur systkinunum, og þó
hún væri orðin hálfblind síðustu
árin, var hún dugleg við að prjóna
jólagjafirnar handa langömmu-
börnunum sínum. Einnig hafði
hún mikið dálæti á söng, enda með
góða söngrödd og iðulega tók hún
lagið á góðri stund og þurfti oft
ekki annað en að hún heyrði fallegt
lag í útvarpinu, þá var hún byrjuð
að syngj a og dansa.
Amma okkar var heilsulítil alla
sína tíð og eftir að afi lést fyrir
fimm árum fór henni síhrakandi,
enda náði hún sér aldrei eftir frá-
fall hans. En nú er hún búin að
fá langþráða hvíld.
Hafi amma okkar þökk fyrir
yndislegar stundir og við biðjum
Guð að varðveita hana og blessa
minningu hennar. R„„.tórn
Fæddur 20. apríl 1964
Dáinn 25. nóvember 1985
Mig langar að minnast elskulegs
bróðursonar míns þar sem ég gat
ekki verið viðstödd jarðarför hans,
hinn 28. nóvember síðastliðinn,
vegna dvalar minnar í Þýskalandi.
Það dró bliku fyrir sólu, þegar
ég frétti að Steinar væri dáinn.
Aldrei er maður viðbúinn þegar
sorgin ber að dyrum og þó sérstak-
lega ekki, þegar höggið er þungt
og snöggt. Söknuður sækir að og
minningarnar streyma fram.
Ég var 8 ára gömul þegar Stein-
ar fæddist og var hann mikið á
heimili afa síns og ömmu, foreldra
minna. Hann var mér sem litli
bróðir. Ég man þegar við vorum
lítil. Þá var ég að segja honum
skrýtlur, þær var hann fljótur að
grípa og hvað hann gat hlegið.
Þegar ég minnist þessara stunda
þá heyri ég hláturinn.
Steinar var einstakur drengur.
Alltaf fór hann með ömmu Fjólu
út í skóla til að hjálpa henni að
skúra. Það eru ekki margir ungl-
ingar sem fara með ömmu að
skúra, en það gerði Steinar.
Frá barnsaldri var hann ætíð
hjálpsamur, boðinn og búinn til
að veita öðrum aðstoð sína, ljúfur,
kátur og glaður og hvers manns
hugljúfi.
Senn mun ég halda heim til
íslands með fjölskyldu minni til
að halda jól. Þá leita minningar
síðustu jóla fram í hugann. Þau
síðustu sem við áttum með Stein-
ari. Þá ríkti gleði og hamingja í
bæ. Þegar öll fjölskyldan kom
saman, gaf hann sér alltaf tíma
til að leika sér við litlu frændsystk-
inin sín sem elskuðu hann og dáðu.
Það verður dapurt í okkar brjóst-
um á komandi jólum.
Það er sárt til þess að hugsa að
eiga ekki eftir að hitta Steinar
aftur í þessu jarðneska lífi. Hann
var alltaf svo elskulegur og mér
leið svo vel í návist hans. Hann
hefur verið kallaður til að vinna
annað verk á æðri stöðum. Hafi
hann þökk fyrir allt og allt.
Elsku Erla, Skúli og Villi. Ég
og fjölskylda mín biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur og styðja.
Hjartans kveðjur.
Sigga,Péturog
Jón Bjarni í Aachen.
Þór Kristjáns-
son — Kveðjuorð
Fæddur 21. maí 1951
Dáinn 1. desember 1985
Föstudaginn 6. desember var til
moldar borinn vinur minn og jafn-
aldri, Þór Kristjánsson. Vinur er
raunar ekki rétta orðið, bróður
sönnu nær, svo nálægt sem við
stóðum hvor öðrum í rétt 10 ár.
Margt áttum við sameiginlegt og
samrýmdir vorum við. Ég vil færa
honum þakkir fyrir samfylgdina
og vona að ég megi eiga vináttu
hans og hans nánustu. Við sýsluð-
um margt, unnum saman til sjós
og lands. Að hverju verki gekk ég
óhikað og óhræddur um góð verk-
lok, þegar hann var með í ráðum.
Ég minnist ekki margra slíkra
manna sem voru hamhleypur til
allra verka. Var þá stundum vakað
lengi. Þetta voru þó léttar stundir
því samtöl okkar einkenndust af
glaðværð og gáska og við sáum
broslegu hliðarnar í lífinu og á
tilverunni. Ef annar byrjaði setn-
ingu botnaði hinn og við höfðum
gaman af. Kímnigáfa okkar fylgdi
sömu nótum. Ferðalög og tóm-
stundirnar voru meira en sam-
verustundir, það voru stundir
sjaldgæfrar vináttu og þá gekk
eitt yfir báða. Þannig hélst það til
loka, þótt samfundir yrðu færri.
Víst er það að margar af mínum
hugstæðustu minningum tengjast
Tóta. Trúar minna vegna er ég
þess fullviss að einhvern tíma,
einhvers staðar munum við aftur
hittast. Þá munu sem fyrr verða
fagnaðarfundir. Ég þakka vini
mínum og bið Guð að leiða hann
og styðja hans nánustu.
Einar
Guðrún Björg Halldórsdóttir,
Elsa Hildur Halldórsdóttir,
Hilmar Halldórsson,
Jóhannes Daöi Halldórsson,
Aóalbjörg Grétarsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúö við andlát
EYJÓLFS GRÍMSSONAR,
Lækjarhvammi, Laugardal
Útförin hefur farið fram.
Áslaug Eyjólfsdóttir og synir.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts
ÞORSTEINS HANNESSONAR,
Laugateig 3,
Reykjavík.
Hrefna Milner,
Ásdís Þ. Stross,
Wolfgang Stross
og barnabörn.
Sjósókn og aflabrögð frá Vestfjörðum:
Gæftir voru góðar
og sæmilegasti afli
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi aflayfirlit frá skrifstofu
Fiskifélags íslands á ísafirði. Afll í
október var heldur minni en á síð-
asta ári, en ársaflinn í lok mánaðar-
ins er svipaður og í fyrra:
Gæftir voru góðar í október og
sæmilegasti afli, en yfirleitt mjög
blandaður, sérstaklega hjá togur-
unum, sem margir eru komnir
langt með að veiða aflamarkið í
þorski. Færri bátar róa nú með
línu, heldur en um langt árabil og
lítið útlit fyrir fjölgun á þessari
haustvertíð.
Botnfiskaflinn í mánuðinum var
3.944 lestir, en var 4.513 lestir í
október í fyrra. En ársaflinn þá
orðinn 63.529 lestir, en var 63.148
lestir í lok október í fyrra.
Þeir bátar, sem stunduðu rækju-
veiðar á djúpslóð í sumar, eru nú
allir hættir veiðum, nema þrjú
stærstu skipin, sem öll frysta
aflann um borð. Var afli þeirra í
mánuðinum 120 lestir.
Innfjarða-rækjuveiði hefir að-
eins verið leyfileg í Húnaflóa, en
þar voru 11 bátar frá Drangsnesi
og Hólmavík að veiðum í mánuðin-
um og öfluðu 53 lestir. Allt er í
óvissu með rækjuveiðar í Arnar-
firði og ísafjarðardjúpi á þessari
haustvertíð og heldur ólíklegt að
þær hefjist fyrir áramót. Nokkrir
bátar á þessum svæðum stunduðu
skelfiskveiðar í mánuðinum og
öfluðu 450 lestir.
Botnfiskaflinn í einstökum ver-
stöðvum:
PATREKSFJÖROUR:
Sigureytv. 228,5 lestirí 3feröum
Vestril. 58,6 lest.r
Þrymurl. 30,5 lestirí 6feröum
Dagur 1. 17,6 lestirí 6feróum
Brimnes 1. 12,8 lestírí 4feröum
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Tálknfiröingurtv. 242,9 lestirí 3 feröum
ÞINGEYRI:
Sléttanes tv. 318,4 lestirí 3 feröum
Framnestv. 223,4 lestirí 3 feröum
FLATEYRI:
Gyllirtv. 346,4 lestiri 4 feróum
Jónina 1. 38,6 lestiri 10feróum
Byrl. 10,0 lestirí 6 feröum
SUDUREYRI:
Sigurvon dr 31,0 lestiri 4 feröum
Ingimar Magnúss. 1 . 18,2 lestirí 8feröum
Eín Þorbj.d.tv. 16,0 lestirí 1ferö
JónGuómundss. 1. 13,9 lestiri 7feröum
BOLUNGARVÍK:
Heiörúntv. 182,1 lestiri 2 feröum
Dagrún tv. 121,7 lestirí 1ferö
Flosil. 131,3 lestirí 21feró
Kristján n. 56,5 lestirí 26feröum
Halldóra Jónsd.n. 51,8 lestirí 25feröum
Jakob Valgeir 1. 26,7 lestiri 15feróum
Haukurl. 17,2 lestirí 13feróum
Páll Helgi n. 14,5 lestiri 8 feröum
Sigurfaril. 11,4 lestiri 9 feröum
færabá* ir 47,6 lestir
l'SAFJÖROUR:
Páll Pálsson tv. 395,3 lestirí 4 feröum
Guöbjarturtv. 269,4 lestirí 3 feröum
JúlíusGeirm.s. tv. 108,7 lestirí 2 feröum
Orril. 98,5 lestirí 18feröum
Guönýl. 83,2 lestlrí 18feröum
Víkingur III dr. 49,1 lestirí 4 feróum
Framnes tv. 20,6 lestir í 2feröum