Morgunblaðið - 23.09.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
23
Umsjón: Guðmundur Guðjónsson
Húkkararnir
dæma sig
sjálfir úr leik
Athugasemdir við grein Jóns Sigurðssonar
Það fór ekki hjá því að einn Blöndumaður hefur birt
á prenti greinarstúf þar sem hann gerir athugasemdir
við umfjöllun þá sem var í þessum veiðiþætti eigi alls
fyrir löngu, sem sé um þær makalausu laxveiðar sem í
Blöndu eru stundaðar og allir veiðimenn vita hvemig
fara fram. Væntanlega og vonandi hafa flestir stang-
veiðimenn lesið þessa grein sem birtist í Morgunblaðinu
17. september og er rituð af Jóni Sigurðssyni fréttarit-
ara blaðsins á Blönduósi.
Fyrst útskýrir Jón hvers vegna
menn verði að húkka í Blöndu,
það sé vegna þess að áin verði
svo mórauð þegar sól rís á himni,
að skyggni í vatninu sé aðeins
fáir sentimetrar. Segir Jón að
veiðin í Blöndu yrði lítil ef menn
„löguðu sig ekki eftir aðstæðum".
Síðan að „um veiðiaðferðina sem
notuð er þegar svona stendur á,
húkkið svokallaða, megi deila“.
Ekki vissi undirritaður að það
mætti deila um húkkið því það
er hreint lögbrot og í ám landsins
eiga menn á hættu að vera reknir
frá veiðum og afli og veiðarfæri
gerð upptæk ef þeir eru staðnir
að slíku. Hvers vegna annað ætti
að gilda í Blöndu veit ég ekki.
Síðan kennir ýmissa grasa í
grein Jóns, en eitt það skemnjti-
legasta er þetta: „Er fluguveiði-
maðurinn bestur, sem heldur
bráðinni í heljargreipum óttans,
jafnvel klukkutímum saman? Er
maðkveiðimaðurinn bestur, sem
fyrst kvelur maðkinn og dregur
síðan laxinn upp á tálknunum og
jafn vel innyflunum? Það má
draga upp dökka mynd af hveiju
sem er og gera hvem sem er tor-
tryggilegan o.s.frv." Um það hver
sé bestur er auðvitað kjánaleg
spuming, en eitt sem Jón slengir
fram í greinarstúf sínum, að í
grein undirritaðs sé verið að
flokka veiðimenn eftir því hvaða
aðferðir þeir noti, gengur engan
veginn upp. Það eru nefnilega
húkkaramir í Blöndu (og yfírleitt
allir húkkarar) sem dæma sig
sjálfír úr leik því þeir nota aðferð
til veiða sinna sem er skýlaust
brot á landslögum svo ekki sé
minnst á það yfirgengilega virð-
ingarleysi sem þeir sýna veiðidýr-
inu, því þótt fluguveiðimenn haldi
laxinum „í heljargreipum óttans
jafnvel klukkutímum saman", og
maðkveiðimenn rífi laxinn upp á
innyflunum eftir að hafa pyntað
ánamaðkinn til dauða eins og Jón
orðar það, þá verður þó um þær
veiðiaðferðir sagt að laxinn tók
þó agnið og enginn þvingaði hann
til þess. Það er sportveiði, stang-
arveiði, að beita heiðarlegum og
löglegum aðferðum til að freista
laxins. Húkk er hins vegar og
verður alltaf óhæfuverk á veiði-
stað. Betra væri að látið væri af
þeim bamaskap að veiða á stöng
{ Blöndu úr því að aðstæðumar
em stangveiðimönnum svo mjög
í óhag. Veiða heldur í net.
P.s. 10 línur í grein Jóns em
undirlagðar af því að „Blöndu-
spúnamir" séu í raun framleiddir
syðra en ekki nyrðra og heiti Tóbí,
eins og það skipti einhverju meg-
inmáli. Það er kallað að forðast
kjarna málsins.
- gg-
VETRARNAMSKEIÐ
HEFST 29. SEPT.
LIKAMSRÆKT OG MEGRUN
fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
FRAMHALDSFLOKKAR
Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
ROLEGIR TIMAR
fyrir.eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega.
MEGRUNARFLOKKAR
4x i viku fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna.
KERFI
wmf\
Ba aerobic j.s.b.
KERFI Okkar útfærsla af þrektímum með góðum teygjum. Hörku púl- og svitatímar
_ J fyrir ungar og hressar.
Morgun- dag- og kvöldtímar,
sturta — sauna — Ijós.
Allir finna flokk við
sitt hæfi hjá JSB
Innritun hafin.
Suðurver, sími 83730.
Hraunberg sími 79988.
o
LÍKAMSRÆKT
JAZZBALLETTSKÓLA
BÁRU
ÞINGHOLTSSTRÆTI 1