Morgunblaðið - 23.09.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
43
Kartöfluuppskera
góð í Hólminum
Stykklshólmi:
Kartöfluuppskera er góð í
Hólminum i haust. í þeim görðum
sem fréttaritari hefur haft
spurnir af er tíföld uppskera.
Einn af eldri borgurum bæjarins,
87 ára, var að taka upp í garðinum
sínum þegar fréttaritara Mbl. bar
að garði með ljósmyndavélina sína
og var hann mjög ánægður yfir
uppskerunni og gat varla gefið sér
tíma til að líta upp - og þó._
Árni
Kynlífsgamanmál
Woody Allens
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Kynlífsgamanmál á Jónsmessu-
nótt (A Midsummer Night’s Sex
Comedy). Sýnd i Austurbæj-
arbíó. Stjörnugjöf: ★★
Bandarisk. Leikstjóri og hand-
ritshöfundur: Woody Allen.
Framleiðendur: Robert Green-
hut og Charles H. Joffe.
Kvikmyndataka: Gordon Willis.
Helstu hlutverk: Woody Allen,
Mia Farrow, José Ferrer, Julie
Hagerty, Tony Roberts og
Mary Steenburgen.
Þá er hún loksins komin í Aust-
urbæjarbíó Woody Allen-myndin
A Midsummer Night’s Sex
Comedy undir hinum þekkilega
íslenska titli Kynlífsgamanmál á
Jónsmessunótt. Allen gerði þessa
mynd næst á eftir Stardust Mem-
ories (sem núna er eiginlega eina
myndin sem ekki hefur verið sýnd
hér eftir hann) eða árið 1982 svo
hún er nokkuð farin að eldast.
Og þótt hún sé ekki með því besta
sem Ailen hefur gert um dagana
er hún nauðsynleg í safn Allen-
aðdáenda.
í þetta sinn fer Allen upp í
sveit með fastastarfsliðið sitt sem
samanstendur af gömlum vinum
eins og framleiðandanum Joffe
og myndatökumanninum Gordon
Willis ásamt leikaranum Tony
Roberts úr mörgum Allen-mynd-
um og nýju elskunni sinni, Miu
Farrow. Og hann tekur fleiri með:
José Ferrer og Mary Steenburgen
og loks Julie Hagerty, sem nokkru
Woody Allen í Kynlífsgaman-
mál á Jónsmessunótt.
áður varð þekkt fyrir leik sinn í
grínmyndinni Airplane. Með þessu
liði gerði hann kynlífskómedíu um
nokkra menntamenn í byijun ald-
arinnar og einskorðar sig við
vangaveltur um kynlíf og losta,
ást án kynlífs og losta án ástar
og þar fram eftir götunum. Allt
snýst um kynlíf og ekkert annað
og það verður einhliða og leiði-
gjamt til lengdar, þrátt fyrir góða
frammistöðu leikaranna.
Persónumar em sérkennilegar
sem fyrr. Allen leikur uppfinn-
inga- og ijármálamanninn
Andrew Hobbs frá Wall Street,
sem kvæntur er Adrian (Steen-
burgen). Þeirra kynlíf er ekki upp
á það besta. Adrian þjáist af
krónískum höfuðverk vegna sekt-
arkenndar frá því hún svaf með
vini Andrews, Maxwell Jordan
(Roberts). En þeim þykir vænt
um hvort annað. Þau búa í sumar-
húsi upp í sveit og eina helgina
kemur góðvinurinn Jordan, sem
er læknir og kvennabósi, í heim-
sókn með nýjasta gamanið sitt,
Dulcy Ford (Hagerty). Að auki
kemur gáfu- og menntamaðurinn
Leopold (Ferrer) í för með heit-
mey sinni Ariel (Farrow ) til að
dvelja hjá Hobbs-hjónunum.
Eftir það snýst mestallt um að
sofa hjá og kannski ekki síst með
hveijum hver vill sofa. Þannig eru
Andrew og Ariel vinir frá fomu
fari og vilja gera það en vita það
bara ekki ennþá, Maxwell Jordan
vill gera það með Ariel en Ariel
vill það ekki með honum, a.m.k.
ekki í fyrstu. Leopold vill helst
gera það með Dulcy og Dulcy vill
gera það með öllum. Adrian er
sú eina sem ekkert vill gera.
Allt er þetta heldur ómerkilegt
og útblásið fram úr hófi. Gullfal-
leg myndataka Gordon Willis er
næstum það eina sem situr eftir
í manni að sýningu lokinni en í
lokin snýr Allen myndinni upp í
einskonar andafund er Leopold,
sem trúði aldrei á hið yfimáttúm-
lega, deyr þegar hann er að gera
það með Dulcy og sameinast
amorsöndum í skóginum.
Allen nær sér aldrei almenni-
lega á strik í Kynlífsgamanmál
sem mun vera hans útgáfa á
mynd Ingmars Bergman frá 1955
er hét Sommemattens Leende
(Kátar sumarnætur) en hún er
líkari því að hann hafi tekið
danska Rúmstokksmynd og„All-
eníserað" hana. Kynlífsgamanmál
er undanfari hins fijósama skeiðs
Allens, sem nú stendur yfir, og
er helst merkileg fyrir að marka
upphaf samstarfsins við Miu
Farrow, sem enn sér ekki fyrir
endann á.
Vinn eiginlega á þrem stöðum. Á
skrifstofunni frá klukkan níu til
fjögur. Síðan er ég að skúra gólf
hjá fyrirtæki frá fimm til sjö, fjóra
daga í viku og keyri stundum
leigubíl á kvöldin og um helgar.
Nú, þessa dagana er ég í sum-
arfríi. Er hvorki á skrifstofunni eða
að skúra gólf.
— Ertu með stóra fjölskyldu?
spurði maðurinn í leðuijakkanum.
— Konu og tvö böm, svaraði
maðurinn á bekknum.
— Og afhverju ertu að byggja
einbýlishús? Ertu ekki enn í fjög-
urra herbergja íbúð? Er hún ekki
nógu stór fyrir fjölskylduna? spurði
maðurinn í leðuijakkanum.
— Jú, jú. Hún er alveg nógu stór,
íbúðin. Það er konan sem vill þetta.
Hún vinnur úti, er einkaritari og
hefur sæmileg laun. Það hefur lengi
verið hennar draumur að búa í ein-
býlishúsi, svaraði maðurinn á
bekknum.
í því kom strætisvagn, leið eitt,
Lækjartorg-Norðurmýri, og þeir
yfirgáfu biðskýlið og héldu báðir inn
í vagninn.
Óljósar fréttir berast þessa dag-
ana af bókaútgáfunni í haust.
Frekari tíðinda er að vænta næstu
daga og vikur og margir bíða sjálf-
sagt spenntir að heyra frá forvitni-
legum bókum. Ólafur Gunnarsson,
óðalsbóndi og rithöfundur á Stóru-
Klöpp, er að senda frá sér nýja
skáldsögu eftir nokkurra ára hlé
og bíða margir spenntir eftir að fá
að lesa. Aðalsögupersónan er mið-
aldra maður sem vinnur innanbúðar
við afgreiðslustörf í hannyrðaversl-
un móður sinnar við Laugaveginn,
feiminn piltur og hlédrægur sem
vinnur það mikla afrek að bjarga
heimsbyggðinni frá kjamorkustyij-
öld. Sá drengur er allrar athygli
verður...
Samkvæmisdansar
Disko/jazz og freestyle
Danskennsla fyrir böm frá 3ja ára aldri.
SÉRNÁMSKEIÐ
Eingöngu rokk, tjútt og jitterbug.
Eingöngu gömlu dansarnir.
KENNSLUSTADIR:
Skeifan 17 (Ford-húsinu).
Gerðuberg, Fellahellir (Breiðholti).
Frostaskjól (KR-heimilið).
Flafnarfjörður: íþróttahús Flafnarfjarðar
v/Strandgötu.
Sjálfstæðishúsið Njarðvík.
Sídasti innritunardagur
KRAKKAR ATH.
Frábærir jazzdansar úr söngieiknum
Titne sem er mjög vinsæll í London.
Meiriháttar spor og æðisleg músík.
MUNIÐ FJÖLSKYLDUAFSLÁ TTINN.
Innritun daglegaisíma
656522 og 31360 frákl.
13.00-19.00.
DANSSKÓLI
AUÐAR HARALDS
S: 656522 og 31360