Morgunblaðið - 23.09.1986, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Norröna og Smyrill sigla inn til Þórshafnar
Dronning Alexandrine frá Samein-
aða. Það síðastnefnda náði mesta
farþegafjölda í íslandssiglingum
fyrr og síðar eða yfir 500 talsins á
33 árum. Egill og Waagen sigldu
lengi á vegum Wathne; Sterling,
Austri og Vestri voru þekktust
Thore-skipanna; hjá Bergenska
voru Flóra, Lyra og Nova lengst í
förum. Af skipum Eimskipafélags
íslands sigldi gamli Gullfoss milli
Danmerkur, Skotlands og íslands í
aldarfjórðung, og síðar í 6-7 ár
milli Danmerkur og Færeyja, undir
nafninu Tjaldur. Yngri Gullfoss
sigldi á þessari leið með nokkrum
frávikum í tæp 23 ár. íslensku
strandferðaskipin voru oft notuð til
millilandasiglinga, einkum að sum-
arlagi. Má har nefna crnmln Friii
I, sem sigldi þijú sumur milli
Reykjavíkur og Glasgow rétt fyrir
síðari heimsstyijöldina og nýju Esju
II, sem þekkt varð fyrir gifturíka
ferð til Petsamo í sömu styijöld,
en hún var einnig fyrsta farþega-
skipið, sem sigldi til Norðurland-
anna eftir stríðslok í Evrópu
sumarið 1945. Hekla sigldi á leið-
inni Reykjavík — Glasgow í 5 sumur
og milli Reykjavíkur og Norður-
landa í 13 sumur.
Oft hefur verið á það bent að
eitt áhrifaríkasta sporið í sjálfstæð-
isbaráttu íslendinga hafi verið er
þeir tóku kaupskipasiglingamar
smám saman í sínar hendur til og
frá landinu og við strendur þess
með stofnun Eimskipafélags ís-
lon/ío 1Q1/1 A/r alfinalfaimum lnnHfi-
sjóðs 1917. Þeir atburðir tvinnast
á áhrifaríkan hátt saman við upp-
haf eins mesta framfaraskeiðs
íslensku þjóðarinnar. Um skeið, upp
úr miðri þessari öld, réðu íslending-
ar orðið yfir meginhluta vöru- og
farþegaflutninga á sjó milli íslands
og annarra landa. En það ótrúlega
hefur gerst, að tveir stórir liðir
kaupsiglinga hafa gengið okkur úr
greipum. Má þar nefna olíuflutn-
inga til landsins, eftir að Sambandið
varð að selja Hamrafellið til útlanda
1966, og farþegaflutningana, þegar
Hekla, Esja og Gullfoss voru öll
seld til útlanda með nokkurra ára
millibili 1966—1973, án þess að
nokkurt stórt farþegaskip kæmi í
staðinn. Þegar íslendingar héldu
udd á 11 alda afmæli bvecðar (
iandinu, þjóðhátíðarárið 1974, var
ekkert farþegaskip í förum frá ís-
landi. Þótti þá mörgum sem íslensk
sigling hefði brugðist. Um þetta
leyti var ný þróun varðandi far-
þegaflutninga á sjó að hefjast sem
Islendingar virtust vera blindir fyr-
ir, en tengist þó almennri bílaeign
manna á Vesturlöndum og auknum
ferðalögum fólks á eigin bílum.
Þetta voru farþega/bílfeijuskipin
sem flytja milljónir bíla og ferða-
manna um víða veröld. Til ársins
1975 var íslaiid nær eina eylandið
í Evrópu sem ekki hafði vegasam-
band við umheiminn á þennan hátt.
Ekki voru það þó íslensku útgerðar-
félögin, sem komu auga á þetta
nauðsynjamál í upphafí — heldur
voru það frændur okkar í Færeyj-
um. Þökk sé þeim fyrir framtakið
og megi Smyril-Line vaxa og dafna
um ókomin ár.
Undir miðnættið varð mér gengið
með krökkunum upp á þilfar Nor-
rönu áður en við fórum að sofa.
Aðeins kjölfar skipsins setti mark
sitt á annars spegilsléttan hafflöt-
inn, en framundan var þokubakki
sem von bráðar lagðist eins og
fíngerð slæða yfír skipið. Skyldi
Sófus Gjövera, sem lengi bjó á
Norðfirði, hafa hitt á svona gott
veður þegar hann sigldi á litlu trill-
unni sinni milli Islands og Færeyja
hér á árum áður, a.m.k. fímm sinn-
um, að ég held.
Uppi í brúnni á Norrönu fylgjast
frán augu manna og tækja með
siglunni undir stjóm Jegvan í Dal-
astova skipstjóra, en niðri í vél er
það Petur Hojgaard 1. vélstjóri og
menn hans sem leysa úr læðingi
mörg þúsund hestafla orku sem
þarf til þess að knýja þetta fríða
skip yfir úthafíð. Síðla nætur vorum
við komin undir Færeyjar. Siglingin
var á enda.
Höfundur er iðnaðarmaður en
hefur skrifað greinar um flug og
sighngar fyrir blöð, tímaritog
útvam.
49
Fjórtán ára brezk stúlka með
áhuga á íþróttum, tónlist o.fl.
Joanne Richardson,
85 Park Ave,
Park Estate,
Shiremoor,
Newcastle,
Tyne and Wear,
NE27 OLG,
England.
Fjörutíu og tveggja ára Banda-
ríkjamaður skrifar og segist vera
vinnusamur, forvitinn, hress og
ævintýragjarn. Langar til að ferð-
ast og kynnast fólki. Hefur áhuga
á bréfaskriftum við konur á aldrin-
um 25-35 ára. Vill fá myndir með
fyrsta bréfí. Hann er verkfræðingur
og tekur fram að hann sé fráskilinn.
Norman L. Ginther,
P.O.Box 9394,
Brea,
California 92622,
USA.
Brezk húsmóðir vill komast í
bréfasamband við íslendinga. Getur
ekki aldurs né áhugamála:
Mrs. Ann Jones,
Outremont,
London Road,
Brimscombe,
Stroud,
Glos.GL5 2TR,
England.
Nætandl og Myrk|nndi. getur krouitltjl |
• og gott útllt brotlr meltlnguna t
Empire State
byggingin
381,0m.
21% ODYRARA
í LÍTRAFLÖSKUM
Eiffel tuminn
321,8 m.
Crysler
byggingin
318,8 m.
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON
AðsjáMsögðu