Morgunblaðið - 23.09.1986, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
+ Eiginkona mín, móöir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ELÍN TÓMASDÓTTIR frá Stykkishólmi, andaðist í Landspítalanum þann 17. sept. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þann 25. sept. kl. 10.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Ingi Kristjánsson, Haraldur Gislason, Guörún Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, STEFANÍA ÁSTRÓS SIGURÐARDÓTTIR, Nýlendugötu 4, lést í Landakotsspítala aöfaranótt 22. september. Kristfn Jónsdóttir og börn, Sigurður Jónsson ogbörn, Rögnvaldur Jónsson, Ásdfs Guðmundsdóttir, Þórir Jónsson, Jóna Guönadóttir.
+ Móöir okkar, SÓLVEIG HELGADÓTTIR, andaöist á heimili dóttur sinnar í Gautaborg aöfaranótt sunnu- dagsins 21. sept. 1986. Ása Aðalsteinsdóttir, Ragnar Aðalsteinsson, Unnur Aðalsteinsdóttir.
+ Dóttir okkar, systir og mágkona, KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR, Fossvogsbletti 2a, andaðist þann 13. september. Útför hennar fer fram miðvikudag- inn 24. september kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Guðrún A. Thorlacius, Halldór Geir Halldórsson, Auður Friðgeröur Halldórsdóttlr, Jens Sigurðsson.
+ Faðir okkar, STEFÁN RUNÓLFSSON, er látinn. HátúnilO, Gyða Stefánsdóttir, Jakobfna Birna Stefánsdóttir.
+ Móöir mín og tengdamóöir, BJARNEY ELÍSABET NARFADÓTTIR, lést á Hrafnistu, Hafnarfiröi föstudaginn 19. september. Hörður Hallbergsson, Dúfa Kristjánsdóttir.
+ Vinkona okkar, MAGNEA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Akureyri, andaðist í Kaupmannahöfn 19. september. Petra og August Hákansson.
+ Moöir min, inGUNN KRISTÍN EINARSDÓTTIR, andaöist í Vífilsstaðaspítala 19. september. Jón Sigurbjörnsson.
+ Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, FRIÐGEIRS GUÐJÓNSSONAR, vörubifreiöastjóra, Álfhólsvegi 111, Kópavogi, fer fram miðvikudaginn 24. september kl. 15.00 frá Fossvogs- kirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfólag íslands. Ólöf Sigurbjörnsdóttlr, Erla Friögeirsdóttlr, Guömundur Jakobsson, Þóra Frlðgeirsdóttir, Rafn Ólafsson, Sigurbjörg Fríðgeirsdóttir, Jón St. Hermannsson, Pálína Friðgeirsdóttir, Jón Nordquist, Hulda Friðgeirsdóttir, Sigurður Magnússon, Frfða Friðgeirsdóttir, Helgi F. Jónsson, Guðjón Fríðgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Jörgen G. Þorbergs
son tollvörður
Fæddur 6. desember 1900
Dáinn 16. september 1986
Elskulegur tengdafaðir minn er
látinn.
Eg var ung að árum þegar ég
kynntist manni mínum, Sigurði, og
flölskyldu hans. Mér er minnisstætt
þegar mér í fyrsta sinn var boðið
heim til }>essarar nýju flölskyldu
minnar. Eg var feimin og kvíðin.
Hvemig yrði mér nú tekið og hvem-
ig mundi þetta ganga. Þá kynntist
ég tengdaföður mínum í fyrsta sinn
og þeim viðtökum mun ég aldrei
gleyma. Hann tók á móti mér með
útbreiddan faðminn, heilsaði mér
og bauð mig velkomna með þeirri
hlýju og einlægni sem honum var
svo eðlileg. Hann veitti mér þá það
traust sem ég þarfnaðist og æ síðan
naut ég einlægni hans og hlýju.
Betri og elskulegri tengdaföður
held ég að ekki sé hægt að eignast.
Jörgen Guðni Þorbergsson var
einstakur öðlingur. Drengskapur
var honum í blóð borinn, drengskap-
ur sem skýrt kom fram í leik og
starfí. Á sínum yngri ámm iðkaði
hann íþróttir og keppti bæði í frjáls-
um íþróttum og glímu. Hann var
landskunnur glímumaður um árabil
og þar sem annars staðar sat dreng-
skapur í fyrirrúmi. Á þeim árum
voru veitt verðlaun fyrir faliega
glímu og komu þá fegurðarglímu-
verðlaun ósjaldan í hlut tengdaföður
míns. Ég hygg að því hafi að miklu
leyti ráðið sú virðing sem Jörgen
bar fyrir því sanna og rétta. Því
var aldrei bolað né böðlast áfram
heldur staðið rétt að íþróttinni og
aldrei ólöglegum brögðum beitt.
Þannig var Jörgen í öllum sínum
háttum. Hann umgekkst alla með
hlýju og vinsemd, enda eignaðist
hann marga trausta vini bæði fyrr
og síðar.
Þegar hann missti konu sína,
Laufeyju Jónsdóttur, 26. nóvember
1980, van hann orðinn nærri blind-
ur og gat því ekki búið einn, þá
stóð honum til boða að flytja til
bama sinna og mátti hann ráða hjá
hveiju okkar hann vildi búa. Það
vildi hann ekki, sagðist ekki vilja
vera bömum sínum til byrði, þótt
hann væri velkominn. í maí 1981
fluttist hann því að Hrafnistu í
Hafnarfírði. Þar hefur hann dvalið
síðan og vil ég fyrir hönd okkar
allra bama hans, tengdabama og
baraabama þakka af hjarta fyrir
þá umhyggju sem hann hefur notið
þar, bæði af hálfu starfsfólks og
heimilisfólks.
Á Hrafnistu var hann ánægður
og allir góðir við hann, en þar eins
og annars staðar uppskar hann eins
og hann sáði, þeir sem alltaf em
hlýir og notalegir við aðra hljóta
líka að laða fram það besta í fari
samferðamannanna.
Nú er hann búinn að fá lang-
þráða hvfld eftir erfíð veikindi
síðustu ár. Hann var líka orðinn
alveg blindur og þegar ég fyrir
nokkm talaði við hann um hve erf-
itt hlyti að vera að sjá ekkert og
hvað dagamir hlytu að vera langir,
sagði hann að það gerði ekki svo
mikið til. Hann hlustaði á útvarpið
og hljóðbækur og svo legði hann
sig bara og sofnaði á milli og þá
sæi hann alveg jafn vel og við hin.
Bömum okkar, Guðna Þór og
Sigþrúði, var hann kærleiksríkur
afí og lét hann sér annt um velferð
þeirra. Þetta fundu þau að sjálf-
sögðu og þótti þeim mjög vænt um
afa sinn og gaman að heimsækja
hann og ræða við hann. Nú vilja
þau þakka afa fyrir allar góðu
stundimar.
Nú em allir erfíðleikar tengda-
föður míns að baki og hann búinn
að hitta aftur ástvini sína sem fam-
ir vom á undan.
Guð blessi minningu hans.
Sigrún
Á Litlu-Laugum í Reykjadal,
Suður-Þingeyjarsýslu, fæddist
Jörgen Þorbergsson á aðventu alda-
mótaárið 1900. Foreldrar hans vom
SigurveigJónatansdóttir, ljósmóðir,
fædd 1858 og Þorbergur bóndi
Davíðsson, fæddur 1865. Systkini
Jörgens vom þau: Herdís
(1891—1965) eiginkona Júlíusar
Jóhannessonar á Svalbarðsströnd;
Guðrún (1893—1959), sem var
lengst af til heimilis í Klambraseli;
Þuríður (1895—1977) húsfreyja í
Klambraseli í Reykjahverfí, gift
Kristjáni bónda Jóhannessyni; As-
valdur (1898-1949) bóndi að
Ökmm í Reykjadal kvongaður
Sigríði Jónsdóttur.
Jörgen ólst upp við hefðbundin
sveitastörf. í Reykjadal starfaði
ötullega ungmennafél. Efling. Vett-
vang fyrir fundi og íþróttaæfíngar
átti félagið að Breiðumýri. Þar vom
hreppshús og víðar gmndir. Fundir
hófúst á glímu, en að loknum fund-
arstörfum var dansað fram eftir
kvöldi. Tíðum var eftit til knatt-
spymuæfínga. Til þessa funda og
æfínga sóttu auk unglinga, full-
roskið fólk. Til leikja, jafnvel
knattspymu gengu menn á kú-
skinnsskóm og glímt var með
buxnatökum. Um skeið hafði Pétur
Sigfússon frá Halldórsstöðum for-
göngu um þetta félagslíf. Hann var
í hópi þeim, sem sýndi glímu á
Ólympíuleikum í London 1908 og
var eitt ár í sýningarflokki Jóhann-
esar Jósefssonar. Pétur var frábær
glímumaður, lipur og snar. Jörgen
rómaði oft hve heppinn hann var
að læra glímu af honum. Vorið
1915 sótti hann íþróttanámskeið,
Blómastofa
FriÖfinns
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opfð öllkvöld
til kl. 22,- éinnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
GUÐNÝJAR JÓNSDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 23. september,
kl. 13.30.
Þórarínn J. Elnarsson,
Gyða Þórarinsdóttir,
Elfn Þórarinsdóttir, Gísli Guðmundsson,
Jón Þórarinsson, Guðlaug Ólafsdóttir,
Ragnhildur Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
ÞÓR ERLING JÓNSSON,
Funafold 16,
verður jarösunginn miövikudaginn 24. september frá Kópavogs-
kirkju kl. 15.00.
Guöný Sverrisdóttir,
Hildur Haraldsdóttir,
Inga Þórsdóttir, Þorsteinn Sigtryggsson,
Sverrir Þórsson,
Jón Kristinn Þórsson,
Ingibjörg Þórsdóttir,
Selma Þórsdóttir,
Brynjar Þór Þórsson,
Steinþór Þorsteinsson.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa
og tengdasonar,
HAFSTEINS SIGURÐSSONAR,
Stigahlið 84.
Sérstakar þakkir færum viö stjórn og starfsfólki Verzlunarbanka
fslands.
Lára Hansdóttir,
Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, Ingvi Hrafn Jónsson,
Kristinn Már Hafsteinsson,
Ólöf Lára Hafsteinsdóttir,
Ólöf Jónsdóttir, Hans Kr. Eyjólfsson
og barnabörn.
Legsteinar
ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður