Morgunblaðið - 23.09.1986, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Aage Lorange, hljómlistarmaður. Morgunblaðið/Ámi
Eldri Hólmari
vitjar átthaganna
Stykkishólmi.
AAGE Lorange, hljómlistarmaður, sem fæddur er í Stykkishólmi
og sleit þar barnsskónum, kemur oft á heimaslóðir því æskudagarnir
eru svo litríkir í hans augum og svo mun vera flestum heilbrigðum
mönnum. Hann fylgist með þróun og framförum í Hólminum og
gleðst yfir unnum sigrum um leið og hugurinn leitar til gamalla
stunda. Framfarirnar segir hann stórkostlegar og bros færist um
vanga.
Við ókum um bæinn. Undarlega voru þeir margir staðimir, sem hann
átti bundnar minningar við. „Hér var leikvöllurinn okkar strákanna." Ég
held hann hafi getað tekið undir með Jóni Helgasyni þar sem hann segir
„Hugann grunar við grassins rót, gamalt spor eftir lítinn fót“.
I það minnsta var grasið og klettamir vel augum skyggndir. Þá mátti
ekki minna vera en taka í gamla orgelið, sem hún Kristín Sveinsdóttir
organisti lék á í gamla daga. Hann settist og gleymdi sér og auðvitað
fannst fréttaritara Mbl. ekki annað koma til greina en taka mynd við það
tækifæri. En á þessari stundu rifjaðist svo margt upp og aftur varð
gamall maður bam ef má orða það svo. Gott er að vita til þess að
átthagatryggðin er við líði í landi voru. Hún getur ekkert nema gott gert.
Árni
Meryl Streen og Jack Nicholson í
hlutverkum hjónanna
Noru Ephorn
og Carls
Bernstein í
kvikmyndinni
„Heartburn"
NY BANDARISK
KVIKMYND
Streep og Nicholson í
sannsögulegum samleik
B,
• ráðlega kemur á markaðinn ný bandarísk
bíómynd, sem mörgum mun eflaust þykja
forvitnileg. Bæði er, að efniviðurinn er sóttur í
raunverulega atburði í lífi frægs fólks þar vestra
og víðar og ekki skaðar síðan að stjömumar í
myndinni eru þau Meryl Streep og Jack Nicholson,
einhveijar skæmstu stjömumar á
leikarahimninum í dag.
Að auki kemur svo, að talsverðar sögusagnir
hafa spunnist um gerð myndarinnar og samband
aðalleikaranna, sem sumir vilja halda fram að
hafí orðið nánara en til stóð í upphafí að það
yrði, a.m.k. annars staðar en á hvíta tjaldinu.
Allt þetta á upphaf sitt að rekja til
Watergate-málsins mikla hér um árið, sem velti
bæði Bandaríkjaforseta og mörgum minni
spámönnum úr sessi, en varð upphafíð að frægð
og frama annarra.
Til þeirra síðarnefndu má hiklaust telja
Litla krúttið
líkist
afa sínum
Loksins varð Christinu Onassis
að þeirri ósk sinni að eignast
bam, en það gekk ekki þrautalaust
og liggja nokkrir eiginmenn í valn-
um eftir milljónaerfingjann. Sá
fjórði virðist þó hafa kunnað eitt-
hvað fyrir sér sem hinum yfirsást
og er hún Athena litla Onassis lif-
andi sönnun þess.
Athena er hið mesta myndar-
bam, enda herma kunnugir að hana
skorti ekki lífsviðurværið. Það mun
einnig vera móður hennar mikill
yndisauki, að sú litla líkist afa
sínum meir með hverjum deginum
sem líður.
Hins vegar em menn eitthvað
ósáttir við fatasmekk móðurinnar.
Elða hvers á ríkasta bam í heimi
að gjalda, að þurfa endilega að
vera með blúnduhatt, sem er þrem-
ur númerum of lítill, á höfðinu?
Washington Post blaðamanninn Carl Bemstein,
sem ásamt félaga sínum Bob Woodward, varð til
þess að upp komst um svikamylluna.
Þeir Woodward og Bernstein urðu umsvifalaust
fyrirmyndir allra vaskra blaðamanna, sem vildu
komast til botns í málunum og hvergi hlífa
kerfísköllum með óhreint mjöl í pokahominu.
En það er erfítt að bera geislabaug á öllum
vígstöðvum og hvað Carl Bemstein varðaði, þá
kom á daginn skömmu eftir að Watergate-málið
var afstaðið, að ýmislegt í einkalífí hans sjálfs
mafti betur fara. Bemstein var kvæntur
rithöfundinum Nom Ephom. Áttu þau hjón
nokkur börn og varð ekki annað séð en að á
þeim bæ væri allt í sómanum. En eitthvað virðist
frægðin hafa stigið rannsóknarblaðamanninum
til höfuðs, því eftir að hún kom til sögunnar
lagðist hann í framhjáhöld og klykkti út með því
að hlaupast að heiman með annarri konu, er
eiginkonan var langt gengin með þriðja bam
þeirra hjóna.
Ekki mun hafa gróið um heilt í hjónabandinu
eftir þetta og em þau Ephom og Bemstein nú
skilin að skiptum og kærleikar litlir. En það geta
fleiri skrifað bækur en Bernstein. Það gat fyrrum
eiginkona hans til dæmis með miklum ágætum
og er þar komin ástæðan fyrir því að
hjónabandsharmleikur þeirra hjóna varð annað
og meira en lítil sorgarsaga úr hversdagslífí
venjulegra hjóna. Nora settist sem sagt niður og
skrifaði bókina „Heartbum“, eða „Hjartasár",
skáldsögu, „byggða á sannsögulegum atburðum",
þar sem hún rakti þessi mál og þótti takast
afburða vel upp á að lýsa því áfalli sem það varð
henni þegar maður hennar yfírgaf hana
bamshafandi.
Sagan seldist í milljónaupplagi um heim allan
og er nú svo komið að Carls Bemstein verður
ekkert síður minnst sem aðalpersónunnar í þessari
bók, en mannsins sem átti þátt í að koma upp
um Watergate-hneykslið, eða a.m.k. ekki meðal
samtímamanna.
Vinsælar skáldsögur em síðan hémmbil
borðleggjandi efniviður í vinsælar kvikmyndir,
þó að misjafnlega geti tekist til að koma þeim
til skila í nýju formi.
Framleiðendur myndarinnar „Heartburn“ hafa
greinilega ákveðið að taka engri áhættu í vali
leikara, heldur fá þau Streep og Nicholson til
þess að túlka hjónin Bernstein og Ephom og
tryggja þar með aðsóknina. Árangurinn á eftir
að koma í ljós, en nú þegar ganga ýmsar
sögusagnir þess eðlis að mun kærara hafí verið
með aðalleikurunum í myndinni en persónunum
sem þeim er ætlað að túlka. Engar sannanir
liggja þó fyrir aðrar en orðrómur frá annarri og
þriðju hendi. Það eina sem Meryl Streep hefur
látið eftir sér hafa um gerð þessarar myndar, er
að það gangi kraftaverki næst að hún skuli
yfírhöfuð hafa verið gerð.
Leikkonan var nefnilega í sama ástandi og
söguhetjan, þ.e. bamshafandi, meðan verið var
að gera myndina og segir að ef eitthvað sé sést
efst í huga eftir kvikmyndatökumar þá sé það
ógleðin sem hijáði hana stöðugt. Og svo eru'illar
tungur að gera því skóna, að hún hafí ekki
einbeitt sér að öðru en að vera skotin í Jack
Nicholson ...
Meryl Streep þykir hins vegar með afbrigðum
nákvæm leikkona og vilja sumir halda því fram
að það hafí ekki verið tilviljun ein sem réði því
að hún varð bamshafandi um svipað leyti og
tökur hófust á „Heartbum", slík sé eftirsókn
hennar eftir fullkomnun, að hún leggi allt að sér
til þess að lifa sig sem best inn í andlegt og
líkamlegt ástand persónanna sem hún leikur.
Allt um það, kvikmyndin „Heartbum“ ætti að
verða hin forvitnilegasta á að líta, ef marka má
efniviðinn og leikenduma og svona til að slá
botninn í þessar vangaveltur um tilurð hennar
má geta þess, að þau Streep og Nicholson vom
bæði þegar síðast fréttist í lukkulegri sambúð —
og ekki hvort með öðru.