Morgunblaðið - 23.09.1986, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
61
Forsætisráðherra við opnun
íslenzkrar sýningar í París
AP/eímamynd.
SteingTÍmur Hermannsson, forsætisráðherra, á tali við Harald Kröyer, seudiherra, við opnuu sýningar-
innar. Til hægri er Edda Guðmundsdóttir, eiginkona forsætisráðherra.
Paris, frá Torfa H. Tulinius fréttaritara
Morgunblaðsins.
í DAG var Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra,
viðstaddur opnun á sýningu af
ijósmyndum frá Islandi hér í
París. Sýningin heitir „ísland,
síðasta ævintýrið í Evrópu“, og
er haldin á vegum vináttufélags
Frakka og íslendinga, France—
Islande, og RATP, en það er
fyrirtæki sem sér um rekstur
allra almenningssamgangna hér
í borg. Sýningin er haldin á einni
af stærstu neðanjarðarbrautar-
stöðvun Parísarborgar, Chate-
let—Les Halles, og mun hún
standa til 6. október.
Reiknað er með að fleiri tugir
þúsunda manna fái tækifæri til að
sjá sýninguna, því henni var valinn
staður þar sem er mikill umgangur
fólks sem er að skipta um lest.
Sýningin er öllum opin og aðgangur
er ókeypis. Ljósmyndimar eru eftir
þrjá franska meðlimi France—
Islande, þá Patrick Lecellier,
Frédéric De La Mure og M. Mor-
ency, en M. Moniez og Michel Sallé
hönnuðu sýninguna. Michel Sallé,
sem er jafnframt í stjóm France—
Islande, tók á móti Steingrími, sem
var í fylgd eiginkonu sinnar, Eddu
Guðmundsdóttur, og Haraldar
Kröyer, sendiherra. Hann leiddi þau
um sýninguna og sagði hvað hefði
vakið fyrir þeim þegar þeir settu
hana upp, en markmið hennar er
að kynna frönskum almenningi ekki
aðeins landið heldur einnig þjóðina
sem byggir það. „Heitið „Island,
síðasta ævintýrið í Evrópu" var
valið vegna þess að fyrir Evrópubúa
er ferð til íslands sannkölluð ævin-
týraferð en einnig vegna þess að
það er ævintýri líkast hvemig
íslensku þjóðinni hefur tekist að
byggja upp mjmdarlegt samfélag
og skapa sér öfluga menningu í
þessu harðbýla og strjálbýla landi,"
sagði hr. Sallé.
Næst flutti Paul Reverdy, stjóm-
arformaður RATP, ávarp, þar sem
hann lýsti yfír ánægju sinni með
það að fá að halda þessa sýningu
á brautarstöðinni og rifjaði upp
menningartengsl þjóðanna og það
m.a. að íslandsferðir Frakka fyrr á
ámm hefðu gegnt mikilv
verki í uppbyggingu n«...
hafna. Síðan talaði Jean Pierre
Fourré, þingmaður og formaður
France-Islande, fyrir hönd félags-
ins, og kynnti hina umfangsmiklu
íslandskynningu sem haldin verður
á næstunni á vegum France—
Islande og franska menningarmála-
ráðuneytisins. Þar á meðal verða
ráðsteftia um Island nútímans í
næsta mánuði, íslensk kvikmynda-
vika, málverkasýning, tónleikar
o.fl.
Að lokum hélt Steingrímur Her-
mannsson tölu. Hann þakkaði öllum
aðstandendum íslandskynningar-
' "•■r og hældi sýningunni. Hann
-•* tii að hun vrði tíl
j.. ” P'-msarbúa á
Islandi og ..
og skoða landið eig...
Þess má geta að Francois
ard, menningar- og ijölmiðlaráð-
herra Frakka, gat ekki, vegna anna,
verið viðstaddur opnunina eins og
áformað hafði verið.
Fjölmargir gestir voru viðstaddir
opnun sýningarinnar frá báðum
þjóðum. Mikil öryggisgæsla var
vegna hryðjuverkaöldu síðustu vik-
una og gættu óeinkennisklæddir og
einkennisklæddir lögreglumenn
svæðisins.
Kórmynd valin í Háteigskirkju:
„Vann að verkinu
hér í kirkjunni“
- sagði Benedikt Gunnarsson, listamaður
„KROSSINN og ljós heilagrar
þrenningar“ heitir verðlauna-
mynd sem sett verður upp sem
kórmynd í Háteigskirkju.
Myndin er verk Benedikts
Gunnarssonar listamanns. Til-
drög málsins eru þau, að í
upphafi árs 1985 ákvað Kvenfé-
lag Háteigssóknar að færa
kirkjunni altaristöflu að gjöf
og vildi kosta allan undirbún-
ing, gerð og uppsetningu
hennar.
Leitað var ráða Bjöms Th.
Bjömssonar og úr varð að ráðnir
vom þrír listamenn sem gera áttu
tillögur, er unnar yrðu í mósaík.
Listamennimir vom Benedikt
Gunnarsson, Björg Þorsteinsdótt-
ir og Þorbjörg Höskuldsdóttir.
Alls bárast 7 fullnaðartillögur
og 9 aukatillögur eða útfærslur.
Var dómnefndin á einu máli um
að „Krossinn" væri best fallin sem
kórmynd.
„Verkið sýnir vel þann gmnd-
völí sem kristin kirkja byggir á,
þ.e. hinn eilífa Guð, sem sendir í
syni sínum ljósið til jarðarinnar —
Guð reisir kirkju sína á jörð,“
sagði sr. Tómas Sverrrisson,
sóknarprestur í Háteigsskirkju,
sem sat í dómnefnd, á fundi með
blaðamönnum þegar verkið var
kynnt. Sagði sr. Tómas það einn-
ig hafa ráðið vali dómneftidar, hve
vel form verksins falli að gerð
kirkjunnar og stíl.
„Ég vann að verkinu hér í kirkj-
unni, sagði listamaðurinn,"
Benedikt Gunnarsson. „Ég sat og
gerði skyssur og reyndi að lifa
Séð inn f kórinn, þar sem Iista-
verkið verður sett upp.
mig inn í þennan arkitektúr sem
verkið átti að falla að. Mósaík
býður upp á litauðgi, en krefst
fjarlægðar. Fjarðlægðin er til
staðar hér og ég reyni í verki
mínu að segja mikið í stuttu máli,
þannig að kirkjugestir sjái strax
heildina í því.“
Benedikt hefur áður unnið verk
í kirkjur. Hann gerði glugga bæði
í Hábæjarkirkju í Þykkvabæ og í
Keflavíkurkirkju.
Benedikt Gunnarsson með líkan af kórmyndinni, uppsettri. Á
bakvið er myndin sjálf, en fullgerð er hún fjórum sinnum stærri.
Bjöm Th. Bjömsson vakti máls
á þeirri leið sem farin var við val
myndarinnar. Hann sagði það
óvenjulegt að ráðnir væm til
starfa nokkrir listamenn til að
gera tillögur sem valið væri úr,
og einstakt að svo lítið féiag sem
kvenfélag Háteigssóknar er, skuli
standa alfarið að slfku.
Nú verður leitað eftir tilboðum
í mósaíkverkið erlendis. „Þetta er
fjárfrek framkvæmd og við eigum
mikið eftir að pijóna og baka
áður en nóg er komið inn fyrir
þessu,“ sögðu kvenfelágskonur í
Háteigssókn. Þær hefjast þegar
handa og munu halda kökubasar
í Blómavali 4. okt. nk. Er vonast
eftir stuðningi og velvild sóknar-
bama í Háteigssöfnuði til að
fjársöfnunin gangi sem best.
Allar tillögur sem bámst vegna
verksins verða til sýnis í Lista-
safni ASÍ dagana 27. sept. til 5.
okt. nk.
Hr-
STEYPIBAÐ
Þú stillir vatnshitann með
einu handtaki á hitastýrða
baðblöndunartækinu frá
Danfoss, og nýtur síðan
steypibaðsins vel og lengi.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2.SÍMI 24260
Fóðringa-
efni
Fyrirliggjandi fóðringaefni
Í2ja metrastöngum:
40-50-60mm. í þvermál.
Gottslitþol.
Þægilegt í vinnslu.
Viðurkennt í
matvælaiðnaði.
Hitaþol frá 100 til +80°.
Leitið nánari upplýsinga.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
BÍLDSHÖFDA 16 SÍML672444
'ir-'
- mr
Niður
með hita-
kostnaðinn
OFNHITASTILLAR
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA