Morgunblaðið - 23.09.1986, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1986
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í kvöid ki.
20.30 að Síðumúla 35, uppi.
Allir velkomnir.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANiR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
o
STJÓRIMUIVARSKOLIIMIXI
% Konráð Adolphsson. Eínkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðm"
ROYAL
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
Mynd frá hjartaaðgerð sem fram fór í Svfþjód.
Níu sjúklingar hafa
verið skornir upp
Hjartaaðgerðir hefjast að nýju:
RÚMIR þrír mánuðir eru liðnir frá því fyrsta hjartaskurðaðgerð-
in var gerð hér á landi. Á fyrsta mánuðinum eftir að deildin tók
tii starfa fóru 9 sjúklingar í aðgerð, í öllum tilfellunum var gert
við kransæðar. Vegna sumarfria lækna og annars starfsfólks
hafa aðgerðirnar legið niðri nú í tvo mánuði, en í dag hefjast
þær að nýju. í því tilefni var rætt við Þórarin Arnórsson skurð-
lækni.
Þórarinn sagði aðgerðimar níu
hafa tekist vel, en þær voru gerð-
ar á átta körlum og einni konu.
í öllum tilfellunum var tekin blá-
æð úr fótlegg sjúklingsins og hún
tengd frá aðalslagæð við krans-
æðar utan á hjartað til að blóðið
gæti runnið óhindrað fram hjá
þrengingum eða stíflum í krans-
æðunum. í öllum sjúklingunum
voru gerðar tvær tengingar eða
fleiri, en auk þess að tengja blá-
æðar á kransæðar var slagæð í
bijósti, svonefnd „mammaria int-
ema“, tengd kransæð í öllum
sjúklingunum, notkun þeirrar
aeðar hefur reynst vel en aðgerðin
þótt fremur vandasöm, og var til
skamms tíma að mestu fram-
kvæmd í Bandaríkjunum.
Þórarinn sagði að árlega hefðu
á annað hundrað íslendingar farið
utan í hjartaaðgerðir. Ætlunin
væri að flytja um 90% þeirra hing-
að, auk kransæðaaðgerðanna yrði
farið að framkvæma lokuaðgerðir
á fullorðnum einhvemtíma í vet-
ur. Aður en það gæti þó hafist í
einhveijum mæli þyrfti að koma
upp lager af hjartalokum.
Þórarinn sagði að margir biðu
nú eftir uppskurði og sagðist hann
búast við að til að byija með fæm
tveir uppskurðir fram í hverri
viku, en ætlunin væri að fjölga
þeim upp í þijá þegar fram liðu
stundir.
Tvö skip seldu afla erlendis
TVÖ fiskiskip seldu erlendis
á mánudag, samtals 356 tonn.
Þá voru seld 211 tonn af
gámafiski í Englandi fyrir
64.40 krónur að meðalverði.
Engey RE seldi 175 tonn í
Hull fyrir rúmar 10.7 milljónir
króna að meðalverði 61.22 krón-
ur. Megnið af aflanum var
þorskur, eða 164 tonn. Kambaröst
SU seldi 181 tonn í Bremenhaven
fyrir tæpar 7.2 milljónir króna.
Aflinn var aðallega karfí og ufsi
og meðalverð var 39 krónur.
ÚRKI.NSlA •