Morgunblaðið - 28.09.1986, Page 33

Morgunblaðið - 28.09.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986 Fundarmenn, sem sátu fund norrænu umferðaröryggisnefndarinnar í Reykjavík fyrir skömmu. í efri röð frá vinstri eru Ólafur W. Stef- ánsson, Leif A. Ellevset, framkvæmdastjóri, Noregi, Óli H. Þórðar- son, Ebbe Sörensen, framkvæmdastjóri frá Danmörku, C. G. Hammarlund, framkvæmdastjóri frá Svíþjóð, Hpo Krootila, fram- kvæmdastjóri frá Finnlandi og Haraldur Henrysson. í fremri röð sitja formennirnir Jon Fossum, Noregi, Camilla Odhnoff, Svíþjóð og Valgarð Briem. Norræna umferðisöryggisnefndin: Fundur um slys o g fyrir byggjandi aðgerðir FUNDUR norrænu umferðisör- yggisnefndarinnar var haldinn í Reykjavík fyrir skömmu á veg- um Umferðarráðs. Nefndina skipa formenn og framkvæmda- stjórar Umferðarráðs og hlið- stæðra aðila á hinum Norðurl- öndunum. Á fundinum sem Valgarð Briem, formaður Umferðarráðs, stjómaði, skýrðu fulltrúar hvers lands frá því helsta sem þar hefur verið unnið á sviði umferðarslysavama. Kom fram að í Danmörku varð veruleg íjölgun banaslysa og slysa með meiðslum árið 1985, en á þessu ári hefur dregið vemlega úr þeirri þró- un. Er það einkum þakkað nýjum reglum um minni hámarkshraða. íslandsmót kvenna í skák SKÁKÞING íslands 1986 í kvennaflokki hefst fimmtudag- inn 2. október kl. 19.30 í húsa- kynnum Skáksambands íslands að Laugavegi 71. Tefldar verða sjö umferðir Monrad og lýkur mótinu mánudaginn 6. október. Tímamörk em 1 1/2 klukkustund á 30 leiki og síðan 1/2 klukkustund til að ljúka skákinni. Fyrstu verð- laun er farmiði á skákmót erlendis. Þátttaka tilkynnist til Guðlaugar Þorsteinsdóttur í síma 45332 eða á skrifstofu Skáksambands íslands virka daga milli kl. 13.00 og 16.00 í síma 27570. Banaslysum og slysum með meiðsl- um hefur á þessu ári fjölgað vemlega í Noregi, en í Finnlandi hefur banaslysum ekki fjölgað. Slysum með meiðslum hefur hins vegar Qölgað þar. Af Svíum var það helst að frétta að slysum fækkaði nokkuð þar á síðasta ári og mótorhjólaslysum um 8% í kjölfar sérstaks átaks sem efnt var til vegna fjölgunar slíkra slysa árið 1984. Fulltrúar Norðurlandanna ræddu um aðgerðir til að draga úr slysum og var þá m.a. rætt um að koma á fjórhliða stöðvunarskyldu á hættu- legum gatnamótum, en slík til- högun hefur að undanfömu verið til umræðu hjá umferðaryfirvöldum í Reykjavík. Þetta hefur ekki verið reynt víða á Norðurlöndum, en t.d. gefist vel í Málmey í Svíþjóð. Þá var rætt um sérstakar nefndir til að rannsaka umferðarslys og graf- ast fyrir um orsakir þeirra og loks samþykkti fundurinn tvær áskoran- ir til norrænu ráðherranefndarinn- ar. Annars vegar um að samræmdar verði reglur um inn- flutning öryggisbúnaðar, t.d. öryggisstóla fyrir böm og bílbelti, í þeim tilgangi að verð þessa búnað- ar verði sem hagstæðast. Hins vegar var gerð ályktun þar sem lýst er áhyggjum vegna hinna mörgu umferðarslysa sem verða á ári hveiju. Á síðasta ári létust um 2400 manns í umferðarslysum á Norðurlöndunum öllum og liðlega 56000 manns urðu fyrir meiðslum. Skoraði fundurinn á norrænu ráð- herranefndina að eiga frumkvæði að því að framlög til fyrirbyggjandi aðgerða verði stórlega hækkuð. miiiiiiníríiBm Haust- taukár loföfö um litrikt vor Erum nú að setjafram mesta urval haustlauka sem nokkum tima hefur sést á íslandi. Gífuriegtúrval afTúliponum, Páskaliljum, Krókusum, Jólalaukum og ýmsum harðgemm smálaukum, sem reynst hafa vel Vegnahagstæðra innkaupa tekst oSaðbióðaótrúlegaWverða þessum vörum a magntilboði. Nlagntilboð: / 1,50slk.Túllpanar.Bn»(tauaroggulir), ggg_ ........................ 399" 2- 25 slk. ........................ QQQ . 3. 35 slk. lágir og pærirTúlípanar. 4. 100 söt. blandaðir laukar i oskju. pag^enn á aaSnum * «9» "« «•1 <« 6 blómouql If intcrflora 5K'"kl Gró^rtiúsinu víö Sigtún: Símar 3(3770-686340 VlS'NViSnNQMVONl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.