Morgunblaðið - 28.09.1986, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986
67
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Ritstjóri
Útgáfufélagið Fjölnir hf. óskar að ráða rit-
stjóra að tímaritinu Gróandanum, tímariti um
gróður og garðyrkju.
Gróandinn hefur komið út í þrjú ár og er
eitt útbreiddasta tímarit landsins, með á
sjötta þúsund áskrifendur.
Leitað er að hugmyndaríkum og áhugasöm-
um ritstjóra, sem bæði hefur lifandi áhuga
á blaðamennsku og öllu því er viðkemur
blómarækt og garðyrkju. Um er að ræða
fullt starf, sem krefst þess að viðkomandi
leggi sig allan fram um að gera tímaritið sem
best úr garði.
Boðin eru góð laun og mjög góð vinnuað-
staða.
Áhugasamir umsækjendur eru beðnir að
skila skriflegri umsókn á skrifstofu Fjölnis
hf. fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 1. október
nk. Með allar umsóknir verður farið sem trún-
aðarmál og öllum verður svarað.
Fjölnir hf.
útgáfufélag
Bíldshöföa 18, 110 Reykjavik
Sími: 91-687474
Rafvirki
Hagvirki hf. óskar nú þegar eftir rafvirkja til
að annast almennt viðhald á vegum fyrirtæk-
isins. Þarf að geta unnið sjálfstætt.
Upplýsingar í síma 53999.
Vélar og verkfæri
Innflutnings-
fyrirtæki
óskar að ráða nú þegar sölu- og afgreiðslu-
mann. Umsóknir sendist auglýsingad. Mbl.
fyrir 1. okt. merktar: „V — 8290“.
Verkamenn
Hagvirki óskar nú þegar eftir verkamönnum
til starfa á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar í síma 53999.
HAGVIBKI HF
SfMI 53999
Fjórðungssjúkrahúsið
á ísafirði
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
Óskum að ráða nú þegar:
• Hjúkrunarfræðinga
• Sjúkraliða
Húsnæði og barnagæsla engin fyrirstaða.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
94-3014 eða 94-3020 frá kl. 8.00-16.00.
HAGVIBKI HF
SfMI 53999
Aðstoðarmenn
óskast nú þegar til starfa á trésmíðaverk-
stæði Hagvirkis hf. í Hafnarfirði.
Upplýsingar gefur Ólafur Guðnason í síma
53999.
Múrarar
Óskum eftir múrurum í tímavinnu og/eða
uppmælingu.
Upplýsingar í síma 44770.
HAGVIBKI HF
SfMI 53999
Afgreiðslumaður
óskast í vélaverslun.
Nafn og launaósk sendist augldeild Mbl.
merkt: “Afgreiðslumaður — 1939“.
Hjúkrunarfræðingar
Staða deildarstjóra á hjúkrunar- og endur-
hæfingardeild Heilsuverndarstöð er laus til
umsóknar frá 1. október 1986. Á deildinni
er rúm fyrir 25 sjúklinga. Miklar breytingar
hafa verið gerðar á húsnæðinu, sem bæta
mjög aðstöðu fyrir sjúklinga og starfslið.
Staða aðstoðardeildarstjóra á hjúkrunar-
og endurhæfingardeild Grensás er laus nú
þegar.
Hjúkrunarfræðingar
— Sjúkraliðar
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða á hjúkrunar- og endurhæfingar-
deild Grensás. Fullt starf og hlutastarf.
Samkomulag um vaktir og breyttan vinnu-
tíma. Möguleiki er á dagvistun barna.
Ræsting
Starfsmaður óskast til ræstinga í 70% starf
á hjúkrunar- og endurhæfingadeild heilsu-
verndarstöð, vaktir kl. 8-16 og 11-19, frí
aðra hvora helgi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, sími 696600-357.
Deildarstjóri
Deildarstjóra vantar við sjúkradeild Borg-
arspítalans á Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Samkvæmt nýju stjórnskipulagi eru aðalsér-
greinar: Kvensjúkdómalækningar, bæklunar-
lækningar og háls-, nef- og eyrnalækningar.
Endurbótum er nýlega lokið á húsnæði deild-
arinnar.
Upplýsingar veitir aðstoðarframkvæmda-
stjóri Borgarspítalans í síma 696600-205.
BORGARSPÍTAUNN
£><696600
| raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Trésmíðavélar
SCM Tölvustýrð plötusög Z32.
KALMAG — Spónlímingarpressa.
SCM — FM51 — Dýlaborvél.
IDM — kantlímingarvél. (m/endaskurði).
STETON — Sambyggð sög og fræsari.
Mikið úrval af lítið notuðum trésmíðavélum.
Iðnvélar og tækni
Smiðjuvegi 28,
200 Kópavogi.
Sími: 91-76444,76100.
Hárgreiðslustofa
í Breiðholti er til sölu hárgreiðslustofa, vel
staðsett og í fullum rekstri.
Nánari uppl. veittar í síma 75383.
Tos
Rennibekkir, fræsivélar, borvélar.
Flestar gerðir Tos-járnsmíðavéla eru nú fáan-
legar með stuttum afgreiðslufresti. Mjög
hagstætt verð. Góð greiðslukjör.
Vélsmiðjan Faxi hf.,
Skemmuvegi 34, Kóp.
Sími 76633.
Milliveggir/Raðveggir
Samlokuveggir í íbúðina, skrifstofuna og lag-
erinn. Auðveld lausn. Veggirnir hafa verið
beygju- og brotprófaðir hjá Rannsóknarstofu
byggingariðnaðarins. Niðurstöður prófanna
eru að veggirnir lenda í 2. flokki. Veggir í
þessum flokki eru taldir vandaðir þegar um
íbúðarhús er að ræða. Reykjavík, söluskrif-
stofa, sími 672725.
Trésmiðjan Fjalar,
Húsavík.
Sími 96-41346.
Sportvöruverslun
Af sérstökum ástæðum er til sölu vel stað-
sett og þekkt sportvöruverslun. Nýjar og
glæsilegar innréttingar, góð velta. Afhending
gæti orðið strax.
Upplýsingar á skrifstofu minni.
Birgir Hermannsson, viðskfr.
Laugav. 178,2. hæð, s. 686268.
íþróttasalur
Nokkrir lausir tímar frá mánudagi til föstu-
dags kl. 8.00-15.00 í mjög góðum íþróttasal
miðsvæðis í borginni. Upplagt fyrir ykkur sem
vinnið seinnipart dags. Góð aðstaða fyrir
badminton, blak og allar aðrar boltaíþróttir.
Upplýsingar í síma 28551.