Morgunblaðið - 28.09.1986, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986
Prjónið peysurnar úr
Vetrarlitirnir eru komnir. Hjá okkur fást yfir 150
uppskriftir frá STAHL’sche WOLLE þýddar á
íslensku. STAHL’sche WOLLE er vestur-þýskt
gæðagarn, uppskriftir úr því garni eru svo vin-
sælar að þær birtast í öllum þýskum prjónablöð-
um. Tegunda- og litaúrvalið sem við höfum á
boðstólum er ótrúlegt. Veitum prjónaráðgjöf.
Það er leikur að prjóna faliegar peysur með
okkar aðstoð.
Verslunin Ingrid,
Hafnarstræti 9, sími 621530,
JK póstverslun, sími 24311.
ÓDÝR
HALOGEN
AUKAUÓS
• Fást á bensínstöðvum og
varahlutaverslunum um allt land
• Verð frá 1.450 kr. (settið)
• Halogen perur innifaldar
• Auðveld ásetning
• Leiðbeiningar á íslensku
• Hvít (ökuljós) eða gul (þokuljós)
• Passa á alla bíla
• Viðurkennd vara
Laugavegi 170-172 Simi 69 55 00
Góðan daginn!
Stórgott te-toddý
Það er jafnan hressandi að fá sér
góðan göngutúr, jafnvel þegar
vindurinn gnauðar úti og það
gengur á með skúrum. En þá er
einnig gott að koma heim á eftir
og fá sér eitthvað heitt, til dæmis
te-toddý. í hvem bolla er notuð 1
eggjarauða, 1-2 matskeiðar hun-
ang, safinn úr xh sítrónu og 2 dl
af nýlöguðu tei. Hunangið er
hrært vel saman við eggjarauðuna
og teinu hellt út í. Sítrónusafanum
svo bætt út í eftir smekk. Toddý-
ið á að vera vel heitt. Þeir sem
vilja geta svo kryddað toddýið
með 1—2 matsk. af rommi.
Allt í röð og reglu
Það vill oft brenna við þegar bömin fara í bað að þau vilji hafa leik-
föng með sér, sem svo fljóta út um allt. Þá er heillaráð að leggja
málm- eða plastrist yfír baðkerið. Þar getur bamið lagt leikföngin
frá sér, og þar drýpur af þeim að baði loknu.
Glansandi ísskápur
Það kemur fyrir að fítu-
blettir og matarslettur
setjast á ísskápshurðina
þegar skápurinn stend-
ur nálægt eldavélinni.
Þá getur verið gott að
bóna hurðina með bíla-
bóni. Það bæði hreinsar
vel og endist lengi, auk
þess sem hurðin verður
glansandi.
I
Lauklykt
Oft er erfítt að ná burtu lykt af
höndunum eftir að hafa verið að
skræla eða skera niður lauk. Til
að koma í veg fyrir að hendumar
lykti er gott að núa þær upp úr
ediki áður en laukurinn er skorinn
og skola svo hendumar upp úr
vatni að verki loknu.
Kaffitrektin til
margs gagnleg
Margir nota kaffítrektina og
fílter þegar þeir hella upp á.
En trektin kemur að góðu
gagni við fleira. Hana má til
dæmis nota við að láta safann
renna af niðursoðnu rækjun-
um, og alls konar dósamat eða
við að þíða matarskammt úr
frystinum. Má nota trektina
með fílter eða án og hún getur
staðið í vaskinum meðan
safínn eða vatnið rennur af
matnum.