Morgunblaðið - 28.09.1986, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986
Morgunblaðið heimsækir Juventus
Fjármál mín eru
helsta áhugamálið
— segir Michel Platini, Frakkinn hjá Juventus
MICHAEL Platini er sennilega
þekktasti knattspyrnumaður í
heimi. Hann er ekki sértega hár
vexti, 177 sentimetrar, grannur
og snaggaralegur. „Hann talar
bara þegar hann vill,u segja ft-
alskir íþróttafréttamenn en
hann þykir einstaklega
skemmtilegur f tilsvörum „þeg-
ar hann vill þaA við hafa“. Platini
er 31 árs gamall og þetta er
fimmta leikár hans með Juvent-
us. Hann er franskur að upp-
runa og gerðist atvinnumaður í
knattspyrnu áríð 1977. Við hitt-
um hann að máli á einni æfingu
Juventus fyrir leik liðsins gegn
Val í Tórfnó og spurðum hann
fyrst hvað hann vissi um
fslenska knattspyrnu.
„Lítið. Sama sem ekkert. Ég
veit að íslendingar léku vel á
móti Júgóslövum fyrir tveimur
árum.“
— Hvað veistu um land og
þjóð?
„Eg hef aldrei komið til Islands
en veit að það er langt þangað
og höfuðborgin heitir Reykjavík."
— Hefur þú aldrei heyrt talað
um fallegt kvenfólk á íslandi?
„Er fallegt kvenfólk þar? Er
það? Nú jæja, annars er fallegt
kvenfólk alls staðar i heiminum,"
segir Platini og tekur frekar dökk
sólgleraugu niður af nefinu.
— Lftur þú á leikinn við Val
sem mikilvægan lefk?
„Allir leikir eru mikilvægir. Ef
við viljum komast langt verðum
við að vinna sem flesta leiki og
til að vinna úrslitaleik verðum við
að vinna undanúrslit og til að
vinna undanúrslit verðum við að
vinna alla leikina þar á undan og
þar með talinn fyrsta leikinn.
Þetta leiðir hvað af öðru og mað-
ur má aldrei slaka á.“
— Hvað finnst þér um aðdá-
endur þína og Juventus?
„Vissulega hef ég gaman að
því að fólk kemur til mín, sérstak-
lega finnst mér vænt um þegar
börnin koma til að fá eiginhand-
aráritun eða til að taka myndir
og ég get gefið mér tíma til að
spjalla aðeins við þau. Ef það eru
mjög margir í einu getur þetta
verið þreytandi til lengdar, ann-
ars getur maður ekki farið að
gráta þó fólk langi til að tala við
mann.“
— Hvað finnst fjölskyldu
þinni um alla þessa athygli?
„Ég hef reynt að halda henni
frá fjölmiðlum en hún er annars
orðin vön því að vera ávallt um-
kringd ókunnugu fólki, sérstak-
lega þegar hún kemur eitthvað
með mér."
— Áttu einhver áhugamál
utan knattspyrnunnar?
„Ég einbeiti mér fyrst og
fremst að fjármálum mínum og
sé um þau í frrtíma þeim sem
ég hef. Hér áður fyrr lék ég oft
tennis en eftir að ég meiddist í
baki varð ég að hætta því."
— Hvernig er heilsan núna?
„Ég hef átt við meiðsli að
stríða í fæti og bjóst jafnvel við
að þurfa að leggjast inn á sjúkra-
hús og gangast undir skurðað-
gerð. Fyrir nokkrum vikum fékk
ég staðfestingu lækna á því að
þess þyrfti ekki. Þannig að ég
kem til með að leika móti Val,
bæði hér í Tórínó og einnig í
Reykjavík."
Platini á tvö börn, Marine 5
ára og Lui 7 ára, sem hann seg-
ir hafa gaman að knattspyrnu.
Við spurðum Platini hvort soninn
langaði til að feta í fótspor föður-
ins. Svarið var stutt og laggott:
„Það verður ekki auðvelt!" En
langar Platini til þess að Lui feti
í hans fótspor?
„Hann verður að ákveða sjálf-
ur hvað hann gerir. Þetta er hans
líf. Mér sýnist hann þó vera búinn
að fá mikinn áhuga á knatt-
spyrnu. Hingað til hefur honum
ekki þótt sérlega mikið til knatt-
spyrnunnar koma en áhuginn er
að aukast hjá honum."
Þegar hér var komið samtali
okkar kom til okkar maður, útat-
aður í smurolíu, sem Platini
heilsaði kumpánlega og spurði
hvernig gengi um leið og hann
bað manninn um að setja aflm-
ikla vél í Fiat Ritmo-bifreið sína.
„Bíllinn kemst ekkert áfram
svona," segir hann til útskýring-
ar. Hann á þó kraftmeiri bíla sem
ættu að komast nógu hratt fyrir
kappann. Annar er Fiat Uno
Turbo og hinn er ekki af verri
endanum því það er Ferrari-bíll
sem Giovanni Agnelli gaf honum
í þakklætis- og virðingarskini í
fyrra. Þess má geta að Platini
hefur löngum haft gaman að
hraðskreiðum bílum og kapp-
aksturshetjan franska Alan Prost
er náinn vinur Platini.
— Nú hefur sést til þín und-
anfarið þar sem þú ert einn að
æfa eftir að æfingum liðsins
lýkur. Hvemig stendur á þessu?
„Ég byrjaði seinna að æfa en
hinir strákarnir eftir sumarfrfiö
þar sem ég var meiddur á fæti.
Ég hef einfaldlega verið að vinna
upp æfingarnar sem þeir voru
búnir með áður en ég hóf æfing-
ar. Ég hef æft undir stjórn þjálfar-
ans og læknisins en nú er þessu
lokið og ég er hættur að æfa
einn þar sem ég hef nú náð hin-
um strákunum."
— Þú ert ekkert hræddur um
að missa sæti besta knatt-
spyrnumanns heims?
„Nei! Ég hef aldrei litið á mig
sem besta knattspyrnumann
heims og því er ég ekkert hrædd-
ur um að missa það sæti. Ég hef
gaman að því að leika knatt-
spyrnu og hef það að atvinnu á
meðan ég get og vil.“
— Vittu koma einhverju á
framfæri við íslendinga að end-
ingu?
„Já, endilega. Komið þið ÖLL
á leikinn!"
• Platini í leik með Juventus.
uiiiip w* iiiintMiiiii, ii*"' ii,'w«— .............
• Marchesi þjálfari Juve sést hér á skotæfingu hjá félaginu.
Leikmenn þurfa ekkert
eftirlit í einkalffinu
— segir Marchesi þjálfari Juventus
MARCHESI tók við þjálfun Juv-
entus á síðasta ári og nú á
komandi keppnistímabili hyggst
hann enn einu sinni leiða liðið tij
sigurs í rtölsku knattspyrnunni. í
ftölskum blöðum var fyrir
skömmu haft eftir honum að
hann hyggðist nýta betur vara-
menn liðsins og láta þá leika
meira en hann hafi gert hingað
til. Hann var fyrst spurður hvern-
ig honum þætti liðsheildin hjá
Juventus.
„Eins og í fyrra. Liðið er sam-
hent og ábyrgðarfullt."
— Hvað veist þú um íslenska
knattspyrnu?
„Ég verð nú að viðurkenna að
það er afskaplega lítið. Ég sá þó
Ásgeir Sigurvinsson leika með
Stuttgart í V-Þýskalandi fyrir
tveimur árum og hann er mjög
góður. Einnig veit ég að ráðherra
frá íslandi var einu sinni atvinnu-
maður í knattspyrnu og hann er
Valsari. Þetta er nú allt og sumt."
— Nú fer liðið alltaf saman til
Villar Perosa í 50 kfiómetra fjar-
lægð frá Tórínó daginn fyrir
heimaleik. Hvernig stendur á því?
„Það er til að undirbúa leikina
sem best. Þetta hefur reynst vel
og skilað góðum árangri. Við eig-
um hús þarna og förum allir
saman, ræðum leikinn, borðum
saman og hvílum okkur. Þangað
koma engir aðrir en leikmenn,
þjálfari, læknir og nuddari þannig
að við getum einbeitt okkur betur
að því sem við erum að gera.“
Marchesi tjáði fréttaritara að
sumarleyfi leikmanna væri 30 dag-
ar og liöið hefði hafið æfingar þann
23. júlí síöastliðinn eftir heims-
meistarakeppnina í Mexíkó. Ætli
þeir fylgist með leikmönnum
sínum í sumarleyfinu?
„Nei alls ekki!"
— En eru einhverjar ákveðnar
reglur fyrir leikmenn í einkalífi
þeirra?
„Nei, þeir vita sjálfir hvað þeim
er hollast og því þurfa þeir ekkert
eftirlit eða aðhald utan leikvallar-
ins.“
— Nú hefur þú nýverið tekið
við þjálfun liðsins. Hvernig tilfinn-
ing er það að taka við þjálfun
eins besta knattspyrnufélags
heims?
„Það er uppörvandi. Ég ber
mjög mikla virðingu fyrir liðinu.
Þetta er mjög mikil vinna og ég
vona að ég eigi eftir aö sjá árang-
ur af starfi mínu áður en langt um
líður. Mér líður ákaflega misvel
þegar liðið leikur. Það er ekki satt
sem stundum hefur verið látið í
veðri vaka að við sem sitjum á
varamannabekknum séum að ein-
hverju, leyti ekki eins tengdir
leiknum og þeir sem eru inná. Við
myndum allir eina heild og finnum
allir fyrir því þegar leikið er. Þetta
tekur stundum ansi hressilega á
taugarnar," segir Marchesi um leið
og hann kveikir- í vindilstúf sem
hann hafði haft í munninum þó svo
dautt væri í honum.
— Heldur þú fundi með liðinu
utan æfinganna?
„Við hittumst á hverjum degi
þó formlegir fundir séu sjaldan
haldnir nema þá með stjórn félags-
ins þegar eitthyað sérstakt er á
döfinni. Stundum eru þó haldnir
liðsfundir með lækni liösins, ann-
ars ræðum við flest okkar mál á
æfingum, á undan þeim eða eftir,"
sagði Marchesi að endingu.