Morgunblaðið - 28.09.1986, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 28.09.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986 51 Texti og myndlr; Brynja Tomer Gaetano Sciera: Skilst aðþað séfagurt á íslandi GAETANO Scirea er elsti maður- inn í liði Juventus. Hann er 33 ára að aldri og hefur leikið með liðinu frá árinu 1975 og ennfremur f landsliði Ítalíu. Hann er einstak- lega kurteis og yfirvegaður og ítalskir íþróttafréttamenn tjáðu mór að hann vseri einn samstarfs- besti leikmaður sem þeir hefðu kynnst. „Ég hef farið víða í keppnis- ferðir en betta er í fyrsta sinn sem ég fer til Islands og ég hlakka mik- ið til fararinnar. Ég hef séð sjón- varpsþátt um ísland og mór skilst að það sé ákaflega fagurt land og vona bara að það verði ekki hræði- lega kalt þegar við komum þangað, annars förum við fyrst og fremst til að leika á móti Val og því er leikurinn númer eitt en veðrið kem- ur í næsta sæti þar fyrir neðan," sagði hinn geðþekki „öldungur" í liði Juventus. Antonio Cabrini: Líður ekki vel í kulda „MÉR finnst frábært að eiga að leika á íslandi!" sagði Antonio Cabrini, en þetta ertíunda keppn- ístfmabilið sem hann leikur með Juventus og auðvitað leikur hann f landsliði Italíu. Hann er hressi- legur f fasi og framkomu og því verður vart neitað að hann er einstaklega myndarlegur maður. „Að hugsa sér, af öllum liðum lendum við á móti íslensku liði! Ég hlakka til að leika á móti Val á ís- landi . Það er bara verst að við leikum síðari leikinn á íslandi. Verður ekki orðið hræðilega kalt í október?" spyr hann áhyggjufullur á svip. Hann sagöi ennfremur að sér þætti vænt um ef [slendingar vildu blóta veöurguðina fyrir leikinn því sér liði ekki vel f kulda. • Michael Laudrup afslappaður að loklnni æfingu. Atvinnumenn ekki seldir eins og kartöflupokar — segir Michael Laudrup sem lék hér á landi fyrir 5 árum „Jú, jú, ég hef komið til ís- lands," sagðl Michael Laudrup, danski leikmaðurinn f Juventus, aðspurður við fréttaritara Morgunblaðsins. „Ég lék með danska unglingalandsliðinu á íslandi fyrir fimm árum og ís- lendingar léku mjög vel þá og endaði leikurinn 1:1, en annars veit ég Irtið um knattspyrnuna á íslandi. Jú, annars. Ég veit að það eru engir atvinnumenn f íþróttum á Islandi frekar en í Danmörku." Laudrup var aðeins 18 ára er Juventus keypti hann. Þá þótti hann ákaflega efnilegur en ekki nægilega þroskaður til að leika með liðinu. Hann var því lánaður til Rómar þar sem hann lék í þrjú ár. Hvað finnst þér um þá reynslu sem þú öðlaðist í Róm. „Þetta var mér mjög dýrmæt reynsla, ég lék þarna í góðu 1. deildarliði en auðvitað er ég án- ægður með að leika núna með Juventus." — Hvað með fjölskyldu þína, er hún f Danmörku? „Já, en kærastan mín er hér á Ítalíu," sagði Laudrup. — Viltu ekki segja okkur svoiítið frá henni? „Hún er dönsk og heitir Tina — viltu vita meira?" - Já! „Hún er 22 ára og fer senni- lega í skóla í vetur. Við búum saman og höfum verið saman i fimm ár. Hún kom með mér þeg- ar ég fór til Rómar og hefur fylgt mér síðan þá.“ — Finnst þór ekkert erfitt að vera til „sölu“, vera „keyptur" og „lánaður" til annarra liða, fluttur á milli borga og landa með stuttu millibili? „Nei, það finnst mér ekki. Knattspyrnumenn eru náttúrlega ekki seldir eins og kartöflupokar! Við erum manneskjur og sala og kaup á knattspyrnumönnum eru eins og hver önnur viðskipti. Ég er hvorki seldur, keyptur né lán- aður nema ég vilji það sjálfur og skrifi undir samning þess efnis. Svo eru atvinnumenn í íþróttum sjaldan í mörg ár á sama staðn- um en ég held sambandi við vini mína og kunningja í Róm. Ég lít á knattspyrnuna sem 50% vinnu og 50% áhuga." — Hvað finnst þér um aðdá- endur þína og Juventus sem hópast fyrir utan búningsklefa ykkar fyrír og eftir leiki og æf- ingar f von um eiginhandarárit- un eða mynd? „Þetta er bara hluti af starfinu og ég lít á þetta þannig," segir Laudrup af mikilii hæversku og í lágum tóni en þannig talar hann jafnan og virðist allt að því feim- inn. Er fréttaritari hitti hann síðar um daginn í klúbbi liðsins gekk hann út með þykkan brófabunka undir handleggnum, um 150 bréf, og sagði þetta nú ekki mörg bréf enda keppnistímabilið nýhafið. „Þetta er bara smáræði," sagði hann, „enda er allt miklu rólegra hér en í Róm, þar er eng- inn friður. Mér finnst betra að búa hér en í Róm að því leytinu til." Laudrup talar mjög góða ítölsku en hvernig skyldi honum hafa gengið að læra málið og aðlagast ítölskum lifnaðarhátt- um? „Vel, mundi ég segja. Ég lærði málið mjög fljótt af því að tala við félaga mína. Ég kann vel við ítali en allur þessi æsingur aðdá- enda og áhangenda knattspyrnu- manna þótti mér afskaplega undarlegur í fyrstu enda tíðkast slíkt ekki á Norðurlöndunum." — Hversu lengi hyggst þú leika knattspyrnu og hvað tekur svo við? „Til þrítugs," svarar hann, „en þá langar mig til að fara aftur til Danmerkur. Ég fer örugglega heim aftur en ég hef ekki hug- mynd um hvað ég kem til með að gera þar," sagði hinn viðkunn- anlegi danski leikmaður að endingu. < ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.