Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
35
fMtogpni Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri HaraldurSveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulitrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið.
Líf og dauði
í Norður-Kóreu
Getgátur í fjölmiðlum í Asíu
og á Vesturlöndum um dauða
Kim 11 Sungs, leiðtoga Norður-
Kóreu, reyndust ekki á rökum
reistar. í fyrradag birtist leiðtoginn
á flugvellinum í Pyongyang og tók
þar á móti starfsbróður sínum frá
Mongólíu, Jambyn Batmunkh.
Ekki bar á öðru en hann væri við
góða heilsu. Margir fréttaskýr-
endur telja, að orðrómurinn um að
Kim II Sung hafi verið ráðinn af
dögum geti bent til þess að með
einhveijum hætti hafi verið seilst
eftir völdum hans. Þá greinir hins
vegar á um það, hveijir eigi þar
hlut að máli og hvort að einhveiju
leyti hafí verið dregið úr völdum
hans. Vamarmálaráðuneyti Suð-
ur-Kóreu segir, að á vopnahléslín-
unni, sem dregin er á milli
ríkjanna, hafi hermönnum verið
tilkynnt um hátalara að O Jin U,
vamarmálaráðherra Norður-
Kóreu, hafi sölsað undir sig völd
í landinu. Hljóðritanir af þessum
tilkynningum hafa ekki verið gerð-
ar opinberar, en ef staðhæfingar
Suður-Kóreumanna eru réttar
hlýtur alvarleg valdabarátta að
eiga sér stað eða hafa átt sér stað
í Norður-Kóreu.
Á þessu stigi málsins eru frek-
ari getgátur tilgangslausar. En
hinar ótímabæru fréttir um dauða
Kim 11 Sungs vekja hins vegar
athygli á íhugunarverðum stað-
reyndum um þjóðfélagið í Norður-
Kóreu og veruleikann í
kommúnistaheiminum almennt.
Geta menn t.a.m. ímyndað sér að
fréttir af þessu tagi myndu birtast
um vestræna stjómarleiðtoga?
Finnst mönnum sennilegt, að full-
yrðingar um lát vestræns þjóðar-
leiðtoga yrðu ekki hraktar með
ótvíræðum hætti fyrr en nokkrum
dögum eftir að þær kæmu fram
frá ábyrgum aðilum? Að sjálfsögðu
ekki og skýringin liggur í þeim
mun sem er á fijálsum þjóðfélögum
annars vegar og hinum lokuðu
þjóðfélögum kommúnismans hins
vegar. í hinum fijálsa heimi vitum
við allt, sem við viljum vita og
stundum jafnvel meira, um stjóm-
málamennina, sem við höfum sjálf
valið til forystu. Við getum auð-
veldlega fengið fregnir um allar
ferðir þeirra og stjómarathafnir.
Þetta þekkist ekki í lokuðum þjóð-
félögum; þar ríkir lejmd yfír
einkahögum valdamanna, ferðum
þeirra, fyrirætlunum og stjómar-
framkvæmdum. Hvergi er leyndin
meiri en í kommúnistaríkjunum og
í því efni eru lönd eins og Sovétrík-
in, Mongólía, Albanía og Norður-
Kórea alveg sér á parti. Þessi leynd
stafar bæði af ótta valdhafanna
við almenning og sannfæringu
þeirra, sem reist er á marxism-
anum, um að almenningur sé
réttlausir þegnar, sem ekki eigi að
skipta sér af því hvemig „foringj-
amir“ starfa að framkvæmd
hinnar „sögulegu nauðsynjar".
Hvorki Norður- né Suður-Kórea
búa við lýðræði, en mikill munur
er þó á réttindum fólks og kjörum
í þessum tveimur löndum. í Suður-
Kóreu, þar sem markaðshagkerfi
er við lýði, hafa orðið vemlegar
efnahagsframfarir á síðustu ámm,
sem leitt hafa til betri lífskjara
almennings og þar er að skapast
vísir að raunveralegu lýðræði.
Norður-Kórea er hins vegar sama
fátæktarríkið og í lok síðari heims-
styijaldar, þegar kommúnistar
hrifsuðu völdin, og þar hefur engin
stjómarfarsbreyting í frjálsræðis-
átt orðið. Ríkinu er haldið lokuðu
frá umheiminum vegna þess að
valdhafamir vita, að ferðafrelsi og
fijálst streymi upplýsinga myndi
leiða til fjörbrota núverandi stjóm-
kerfís.
Kim II Sung hefur komið því svo
fyrir, að stjómskipuð dýrkun hans
í Norður-Kóreu er sambærileg við
goðadýrkun i framstæðum trúar-
brögðum. Fyrir Vesturlandabúa er
þessi manndýrkun í senn ógeðfelld
og hlægileg. Hún er Norður-Kóreu
líka til minnkunar á alþjóðavett-
vangi. Sennilegt er, að sami háttur
verði á sambandi leiðtoga og
þegna, ef Kim Jong II, sonur Kim
II Sungs, tekur við völdum af föð-
ur sínum, eins og stefnt mun að.
Þegar kommúnistar komust fyrst
til valda árið 1917 töldu þeir sig
fulltrúa framfaraafla heimsins og
þeirri skoðun halda þeir enn fram.
Saga 20. aldarinnar hefur hins
vegar sýnt og sannað, að kommún-
isminn felur ekki í sér framför,
heldur afturhvarf til þess tíma,
þegar fámenn yfirstétt drottnaði
yfir öllum almenningi í skjóli auðs
og valdbeitingar. Miðaldaríki Kim
II Sungs er skýrt dæmi um þessa
staðreynd, sem ekki verður horft
framhjá. Kim II Sung er að sönnu
lifandi leiðtogi, en hugmyndin, sem
ríki hans er reist á, er löngu dauð.
Pyntingar í
Afganistan
Inýrri skýrslu frá mannréttinda-
samtökunum Amnesty Inter-
national er greint frá því, að
afganskir öryggislögreglumenn
séu vanir að pynta pólitíska fanga
á grimmilegan hátt og oftar en
ekki séu Sovétmenn viðstaddir
misþyrmingamar og taki þátt í
þeim.
Þessar fregnir era sannarlega
óhugnanlegar, eins og raunar allur
hemaður Sovétmanna og leppa
þeirra í Afganistan, sem nú hefur
staðið í tæp sjö ár. Það er næsta
ótrúlegt, hve mikla þolinmæði hinn
vestræni heimur hefur sýnt fram-
ferði Sovétmanna í Afganistan.
Ein milljón manna hefur fallið í
styijöldinni þar og tæpar fjórar
milljónir lifa við eymdarkjör í út-
legð í Pakistan. Er ekki kominn
tími til þess að raunveraleg vakn-
ing verði í hinum fijálsa heimi um
þetta mál? Hvenær er okkur nóg
boðið?
Fiskamrkaður í Reykjavík er fyrirhugaður í Faxaskála 1, sem er lengst til vinstri á myndinni.
Fiskmarkaður:
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Ferskleiki og gæði ákveði verð
NEFND sem falið var af sjávar-
útvegsráðherra að kanna
möguleika á stofnun fiskmarkað-
ar hér á landi leggur til að að
komið verði upp tilraunamarkaði
með fisk, þar sem verðmyndun
verði fijáls. I skýrslu sem nefnd-
in sendi frá sér er bent á að
hafnir við Faxaflóa, Eyjafjörð
eða Vestmannaeyjar uppfylli þau
skilyrði sem þarf til að fiskmark-
aður muni takast. Þar séu
hugsanlegir seljendur og kau-
pendur í nálægð við markaðinn,
góðar samgöngur að og frá
markaði og hafnaraðstað ásamt
góðu húsnæði á hafnarbakkan-
um. Þrír aðilar, hafnarstjórn
Reykjavíkurhafnar, bæjaryfir-
völd í Hafnarfirði og bæjarstjórn
Dalvíkur, höfðu samband við
nefndina og lýstu yfir áhuga á
að setja á fót fiskmarkað.
I skýrslunni er fjallað um einn
tilraunamarkað og kynntir nokkrir
valkostir um stærð og fyrirkomu-
lag. Engin afstaða er tekin til þess
hvort Faxaflóasvæðið gæti borið
fleiri en einn markað eða að önnur
byggðarlög en þau sem nefnd era
ættu möguleika á slíkum markaði.
Þegar hafa tvö bæjarfélög hafið
undirbúning að stofnun fiskmark-
aðar og virðist sem allt kapp sé
lagt á að verða fyrstur til, enda
mikið í húfi þegar haft er í huga
sá beini og óbeini hagnaður sem
viðkomandi sveitarfélag getur
vænst af fiskmarkaði. Búast má við
aukinni umferð fískiskipa í höfn-
inni, þjónustu við þau auk smærri
fyrirtækja í fiskvinnslu sem vænt-
anlega mundu sækjast eftir aðstöðu
við höfnina. Höfnunum er einnig
kappsmál að tryggja, að í framtí-
ðinni muni ekki þeirra eigin skip
landa á fiskmarkaði í nágranna-
byggðum.
Hafnarfjörður
Hafnar- og bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar hafa þegar hafið undirbún-
inga að stofnun fiskmarkaðar. Allt
kapp er lagt á að koma honum á
sem fyrst og hefur bæjarstjóm
Hafnarfjarðar samþykkt tillögu
hafnamefndar um að koma á fisk-
markaði í Hafnarfirði og lagt til
þess lóð við Suðurhöfnina undir hús
fyrir markaðinn. Samþykkt hefur
verið í bæjarstjóm að stofna hluta-
félag um byggingu hússins en
hafnarsjóði er jafnframt heimilað
að skrifa sig fyrir öllu hlutafénu
ef nauðsyn krefiir.
Útvegsmannafélag Hafnarfjarð-
ar hefur haldið undirbúningsfund
að stofnun hlutafélags til að reka
fiskmarkað, sem tæki á móti 240
tonnum af fiski á dag. Rúmlega
80 einstaklingar og fyrirtæki hafa
skráð sig fyrir hlut, allt frá nokkur
þúsund krónum í fimmhundrað þús-
und, og er heildar hlutafé um 14
millj. Stefnt er að opnun markaðar-
ins í upphafí næstu vetrarvertíðar,
sem hefst 1. febrúar en „Við höfum
skotið þeirri hugmynd að, að ef
menn era að tala um að byija strax
í næstu viku eins og mér skilst að
Reykjavíkurborg sé að íhuga, þá
mætti hugsanlega byija með til-
raunamarkað í húsnæði sem bærinn
hefur til reiðu og laust á hafnar-
svæðinu, en nýja húsið mun rísa
eftir sem áður," sagði Guðmundur
Ámi Stefánsson bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar.
Reykjavík
Hafnarstjóm Reykjavíkur hefur
einnig ákveðið að opna fiskmarkað
í Reykjavík og er hafnarstjóra, sem
kannað hefur þennan möguleika frá
því í vor, falið að vinna áfram að
stofnun markaðarins. Þá hefur ve-
rið ákveðið að borgarstjóm boði til
almenns fundar um stofnun hluta-
félags sem sæi um rekstur fisk-
markaðar en þegar hefur verið
haldinn fundur með aðilum í sjávar-
útvegi í Reykjavík og var þar skipuð
nefnd til að vinna að undirbúningi
að stofnun félagsins.
Ákveðið hefur verið að borgin
leggi markaðinum til húsnæði í
hluta Faxaskála allt að 3500 fer-
metra. „Engin endanleg ákvörðun
hefur verið tekin um hvenær hægt
verði að opna markaðinn, en mönn-
um hefur komið í hug að það geti
orðið í kring um 1. febrúar," sagði
Gunnar B. Guðmundsson hafnar-
stjóri. „Við lítum ekki á þetta sem
neitt stríð við Hafnfirðinga," sagði
Davíð Oddsson. „Við hugsum þetta
óháð því sem þeir era að gera, ósk-
um þeim alls góðs. Við teljum hins
vegar að Reykjavík, sem er næst
markaðinum sé besti staðurinn."
Frjáls verömyndun
En hvað er fiskmarkaður ?
Hvernig á að standa að honum ?
Eftir hveiju er verið að sækjast
með fiskmarkaði ? Hvaða þýðingu
hefur hann fyrir útgerð- og fisk-
vinnslu í landinu ? Gæti hann haft
áhrif á byggðaþróun ?
í niðurstöðum könnunar um fisk-
markað er lagt til að komið verði
á tilraunamarkaði með fisk þar sem
verðmyndun á fiski verði fijáls. í
því felst að ferskleiki og gæði fisks-
ins ásamt framboði og eftirspum
hveiju sinni, ráði fiskverði. í skýrsl-
unni er lagt til að stofnað verði
hlutafélag um rekstur fískmarkaðar
sem haldinn er fímm daga vikunn-
ar. Gert er ráð fyrir að tilkynna
þurfí með nokkurra daga fyrirvara
um aflamagn og hugsanlega löndun
þegar um togara er að ræða en
skemmri tíma þegar minni bátar
eiga í hlut. Nefndarmenn vora sam-
mála um að fiskur sem ekki seldist
á uppboði færi í bræðslu. Bent er
á að seljendur sem sjá fram á að
fiskurinn seljist ekki geti látið bjóða
í fiskinn fyrir sig og keypt hann
aftur gegn greiðslu umboðslauna
en ekki er gert ráð fyrir að sami
fiskurinn fari nema einu sinni á
uppboð.
Uppgjör við seljendur, innheimta
uppboðsandvirðis hjá kaupendum
og skil á lögboðnum gjöldum er í
höndum fiskmarkaðarins. Markað-
urinn þarf því að tryggja sig gegn
greiðsludrætti hjá kaupendum og
verður að krefjast trygginga af
þeim sem óska eftir að bjóða í fisk
á markaðinum.
Grundvöllur fyrir rétt
fiskverð
Talsmenn fiskmarkaðar í þeirri
mynd sem lagt er til í skýrslunni
um tilraunamarkað, telja að með
stofnun hans skapist grandvöllur
fyrir „réttu og sanngjömu" fis-
kverði og verðmyndun verði í
samræmi við gæðin á hveijum tíma.
Gísli Jón Hermannsson útgerðar-
maður, einn þeirra sem sat í nefnd
sjávarútvegsráðherra er á annarri
skoðun. „Mér líst illa á þennan
markað eins og staðið er að honum.
Ég vil að það séu fastari skorður
og að ekkert brask verði með fisk-
inn eftir á,“ sagði Gísli. „Annað
hvort er markaður með hann eða
ekki.“ Hann telur og nauðsynlegt
að ef skip landi afla hér þá eigi að
landa á markaðinn og að ef fiskur
seljist þar ekki á ákveðnu lágmarks-
verði þá fari hann í bræðslu. „Þó
að ég sé einn af þeim svartsýnu
þá er ég ekki á móti þessari til-
raun. Ég vil bara að reglumar verði
strangari til að tryggja að markað-
urinn heppnist," sagði Gísli.
„Ég held að ekki verði hægt að
skylda menn til að landa á markað-
inum vegna þeirrar sérstöðu sem
er hér í samspili útgerðar og vinnslu
hvað eignarhluta fiskvinnslunnar í
útgerð varðar,“ sagði Guðmundur
Hallvarðsson formaður sjómanna-
sambands Reykjavíkur og formaður
hafnarstjórnar. „Enda er gengið út
frá þvf í kjarasamningi sjómanna
að landað sé í heimabyggð og ég
sé ekki að hægt verði að skylda
menn til að landa vegna smærri
byggðalaga þar sem allt byggist á
að nægur fískur sé í frystihúsun-
um.“
Sama verð og erlendis
Guðmundur sagði að í umræðum
um fiskmarkað á síðasta þingi sjó-
mannasambandsins hefði sér virst
sem menr. væra á einu máli um að
ferskfiskmarkaður hlyti að verða
ráðandi um verð á ferskum fiski.
„Menn era almennt inn á því að
það verði til hækkunar og að sann-
gjarnara verð fáist fyrir gæðafísk,“
sagði Guðmundur. Hann tók sem
dæmi að á seinnihluta þessa árs
hefðu nokkrir fiskkaupendur getað
boðið jafn hátt verð og það meðal-
verð sem fæst fyrir fisk á breskum
markaði. Það verð er 60 til 70%
hærra en gildandi landsambands-
verð að frádregnum kostnaði.
Sjómenn virðast því telja að fisk-
markaður muni gefa þeim jafn hátt
verð og fæst fyrir fiskinn á erlend-
um markaði, en er allt tekið með í
reikninginn ? Sala á markaði erlend-
is hefur ekki alltaf verið jafn
hagstæð og undanfarin tvö ár.
Margir vilja halda því fram að físk-
ur af íslandsmiðum fylli þau göt á
fiskmörkuðum erlendis sem skapast
hafa vegna aflabrests við Noreg og
írland. Þess vegna hafi fengist hátt
verð fyrir fiskinn erlendis en ekki
vegna aukinnar fiskneyslu evr-
ópubúa. Ekki má heldur gleyma að
sveiflur era á fískverði á erlendum
mörkuðum og engin ástæða til að
ætla annað en að slíkt gerist einnig
á fiskmarkaði hér. Spumingunni
um hvort útgerðinni er akkur í sölu
erlendis með tilliti til gjaldeyrisöfl-
unar var svarað neitandi og þess
vegna má ætla að draga muni úr
siglingum með ferskfisk geri menn
sig ánægða með verðið sem fæst
fyrir hann á innlendum markaði.
Mögnleiki á sérliæfingn
Þegar rætt er um stofnun fisk-
markaðar virðast menn nokkuð
sammála um að ekki sé ólíklegt að
erlendir aðilar komi sér upp um-
boðsmönnum hér á landi og bjóði í
físk á markaðinum. Flutningskostn-
aður og rýmun í hafi yrði þá á
kostnað erlendra aðila. En era
íslenskir fiskkaupendur samkeppn-
ishæfir við erlenda aðila ef þeir
flykkjast hingað til að kaupa fisk
? „Fiskmarkaðurinn mun gefa okk-
ur tækifæri til að bjóða í þann físk
sem okkur vanhagar um á hveijum
tíma," sagði Jón Friðjónsson fram-
kvæmdastjóri Hvaleyrar í Hafnar-
firði. „Hann býður upp á möguleika
á sérhæfingu í vinnslu en það er
mjög mishagkvæmt að vinna fisk
eftir tegundum. Við munum einnig
eiga möguleika á betri físki að jafn-
aði, sem eykur hlutfall fisks sem
unninn er í dýrari pakkningar."
Hann benti á að fiskmarkaður kæmi
ýmsum smáum fiskvinnslufyrir-
tækjum sem sérhæfðu sig í vinnslu
á ákveðinni fisktegund mjög til
góða. Þar gætu þeir boðið í þann
fisk sem þeir sérhæfðu sig í að
framleiða og taldi hann ekki ólík-
legt að markaðurinn yrði til þess
að fjölga smærri framleiðendum.
Jón sagðist ekki óttast að fisk-
vinnslan í landinu fengi ekki allan
þann físk sem hún gæti unnið.
„Erlendir kaupendur vilja ekki kaup
fisk sem búið er að umstafla," sagði
Jón. „Það er því ákveðin trygging
fyrir innanlandsmarkaðinn."
Áhrif á Bandaríkja-
markað
Hvað með Bandarikjamarkað,
mun innlendur fiskmarkaður
hækka fiskverð það mikið að áhrifa
gæti á þeim markaði ? „Þegar gerð-
ir era samningar um sölu á unninni
vöra þá er reynt að spá í fram-
leiðslukostnaðinn hveiju sinni,“
sagði Friðrik Pálsson forstjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna. „Og
þá koma inn þættir sem spila stærra
hlutverk en verð til eða frá á hráefn-
inu gerir og það er til dæmis gengi
erlendra mynta, sem hafa miklu
meiri áhrif á erlenda markaðinn.
Hærra verð á hráefni innalands
þýðir ekki að við getum fengið
hæira verð fyrir fullunna vöra er-
lendis, en það yrði kannski til þess
að samningar yrðu gerðir með öðr-
um hætti."
Hann sagðist lengi hafa verið
þeirrar skoðunar að það 25 ára
verðlagningarkerfi sem búið hafi
verið við væri löngu úr sér gengið.
„Stofnun fískmarkaðar af þessu
tagi er ein leið til að reyna nýja
verðlagningu á fiski og vel þess
verð að hún sé gerð,“ sagði Friðrik.
„Með þessu fæst beinna samband
milli seljenda á hráefni úr auðlind-
um okkar og kaupenda, sem vinna
hann á íslandi í fyrsihúsum eða
fískiðjuveram. Það er stór kostur."
Jón Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Norðurtanga á
ísafirði, sagði að á meðan markað-
urinn í Evrópu væri ekki stærri
fyrir ísfisk (ferskan fisk), þá væri
engin hætta á að verðið hækkaði
það mikið á öllum físki. „Markaður-
inn er það lítill að þeir era ekki í
aðstöðu til að kaupa af okkur allan
þann fisk sem við drögum úr sjón-
um,“ sagði Jón. „Þá hefur vantað
fisk og þess vegna hafa þeir getað
boðið betur. Það hefur alla tíð verið
þannig að menn hafa viljað hagnýta
% sér hátt verð á ísfiskmarkaðinum
þegar það fæst en selja á innlendum
markaði þegar verð lækkar. Um
okkar framleiðslu gildir allt annað
lögmál við eram að framleiða frysta
afurð fyrir almennan neytanda og
hann er ekki reiðubúinn til að fylgja
hæsta markaðsverði. Þá kaupir
hann frekar önnur matvæli. Ef físk-
iðnaðurinn koðnar niður hjá okkur
þá glötum við þeim markaði og
verðum að hasla okkur völl á nýj-
um.“
„Hvað snertir samkeppni við er-
lenda markaði, þá ber ég engan
kvíðboga fyrir henni. Hún verður
þá bara að koma," sagði Sigurður
Einarsson framkvæmdastjóri,
Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja.
„Við verðum bara að ganga úr
skugga um að fullunnar íslenskar
sjávarafurðir búi við sömu tolla og
era gagnvart fiski _sem seldur er
ferskur úr landinu. Ég held að fisk-
verð á markaði hér muni verða
hlutlaust gagnvart verði á Banda-
ríkjamarkaði. Þeir sem kaupa á
markaðinum era annað hvort litlu
aðilamir, sem ekki era með útgerð
og svo stærri frystihús sem sér-
hæfa sig í ákveðinni framleiðslu."
Vegna sérhæfingarinnar taldi hann
að frystihúsin ættu að geta greitt
hærra verð fyrir fiskinn og því
væri þessi tilraun mjög jákvæð.
Markaður fyrir allt
landið
Þegar spurt er hvor fískverð á
markaði á SV-homi landsins muni
hafa áhrif á verðmyndun á fiski um
allt land, er það talið frekar ólík-
legt. „Ég held að ef markaður
kemur á Islandi þá hljóti hann að
kom allstaðar, ekki bara í Reykjavík
og Hafnarfirði," sagði Gísli Jón
Hermannsson. „Ekki fara menn að
aka fiskinum á markað í Reykjavík
sem er landað í Grindavík til að
flytja hann sícJan aftur til vinnslu í
Grindavík.“ í sama streng taka
fleiri og benda á að ef ekki komi
upp fiskmarkaður í hveijum lands-
hluta þá komi að minnsta kosti vísir
að honum. „Ég tel eðlilegast að
byija við Faxaflóann,“ sagði Sig-
urður Einarsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvarinnar í Vest* -
mannaeyjum. „Þar er markaðurinn
stærstur og þar er neytendamark-
aðurinn og skilyrðin því best fyrir
því að þetta takist." Hann taldi
ekki ólíklegt að ef vel tækist til þá
yrði markaði komið á í Vestmanna-
eyjum sem væri stærsta verstöðin.
Jón Páll Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Norðurtanga á
ísafirði taldi ólíklegt að fiskmarkaði
yrði komið á, á Isafirði. „Hér er
víðast hvar einn kaupandi á hveij-
um stað,“ sagði Jón Páll. „í Grimsby
era þeir þijú hundrað. Ef hingað
kæmu erlendir fiskkaupendur þá
koma þeir sér upp umboðsmönnum
á einum markaði og það er náttúr-
lega Jjað sem menn hafa hugsað
sér. Ég veit ekki hvort fiskmarkað-
ur er spor í framfaraátt. Við höfum
verið að byggja upp okkar fiskiðnað
á undanfömum áram og þúsundir
manna um allt land byggja afkomu
sína á honum. Ef menn ætla að
flytja þennan iðnað til annarra
landa mun það hafa margvísleg
áhrif, sem engin veit hvaða afleið-
ingar hafa.“ Flestir aðilar á ísafirði
og á norðanverðum vest§örðum
hafa þann háttinn á að þeir taka
þann fisk til vinnslu sem þeir geta
unnið með góðu móti en hitt er-
sent á ísfiskmarkað erlendis. Rétt
er að taka fram að áður var sá
umfram afli, sem nú fer á ísfísk-
markað, unninn í_ skreið með
misjöfnum árangri. Á ísafírði hefur
því vissri hagræðingu verið komið
á nú þegar. Jón taldi að fískmarkað-
ur við Faxaflóa muni fá þann físk
sem hann þarf ef hann greiðir sama
verð fyrir hann og fæst fyrir gáma-
fisk.
Áhrif f iskmarkaðar á
búsetu
Flestir viðmælenda veltu fyrir sér
hvaða áhrif fiskmarkaður gæti haft
á byggðaþróun í framtíðinn ef ekki
verði komið á fiskmarkaði víðar en
á Faxaflóasvæðinu. Bent er á að
sveitarfélög á j'aðarsvæðum", eins
og t.d. Patreksfjörður gætu hugs-
anlega orðið illa úti ef bátar þaðan
lönduðu afla á markaði við Faxaf-
lóa. Því er einnig ósvarað hvaða
áhrif hátt verð á þeim markaði
hefði á verðmyndun annarstaðar á
landinu. Er hugsanlegt að ásókn
báta á fiskimið nálægt markaðinum
aukist ? Þessum spumingum og
mörgum öðram verður ekki hægt
að svara fyrr en séð verður hvemig„
tekst til með fískmarkaðinn. Minna
má á að hér er fyrst og fremst um
tilraun að ræða til að losna undan
verðlagskerfí, sem við höfum búið
við í 25 ár og ýmsir telja, þar á
meðal'Friðrik Pálsson að sé löngu
úr sér gengið.
Texti: Kristín Gunnarsdóttir
í Hafnarfirði er fyrirhugað að reisa hús fyrir fiskmarkað í Suðurhöfninni upp af Óseyrarbryggjunni á óbyggðu svæði til vinstri á myndinni.