Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 40 þjónustuíbúðir byggðar í Kópavogi: Ibúar fá bankatryggingu fyrir andvirði íbúðanna BYGGING 40 verndaðra þjónustuíbúða fyrir aldraða er nú í undirbún- iogi í Kópavogi á vegum stjórnar Hjúkrunarheimilis aldraðra og verða þær í tveimur 5 hæða húsum sem eiga að rísa við hlið hjúkr- unarheimilisins Sunnuhlíðar. íbúðirnar verða fjármagnaðar þannig að fólk greiðir andvirði þeirra, sem er frá 2,3 miljónum til 3 mill- jóna króna á núvirði, með reglubundnum greiðslum til Búnaðarbank- ans á 18 mánuðum, en íbúarnir eignast íbúðimar ekki í þeim skilningi heldur ábyrgist bankinn endurgreiðslu á framlögðu fé með fullri byggingavisitölu eða matsverði íbúðanna við fráfall íbúa eða ef íbúð- arréttarsamningi er sagt upp. „Mikill fjöldi aldraðara býr við ótta og öryggisleysi og sá vandi fer vaxandi. Því vildum við auðvelda öldruðum í Kópavogi að tiyggja sér aukið öryggi og þjónustu, og um leið að flestir íbúamir geti notað eigin eigur og fjármuni á öruggan máta og samkvæmt eigin ákvörð- un,“ sagði Ásgeir Jóhannsson stjómarformaður Sunnuhlíðar á fréttamannafundi sem haldinn var til að kynna framkvæmdimar. „í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar er að verða til gömul kynslóð sem á einhveijar eignir og því er mest um vert að sú kynslóð fái aðstoð við að velja sér aðbúnað í ellinni," sagði Ásgeir. Utibússtjóri Búnaðarbankans í Kópavogi, Sverrir Sigfússon, verður sérstakur ráðgjafi þeirra sem hug hafa á að festa sér þjónustuíbúðim- ar við Sunnuhlíð. Gert er ráð fyrir að fólk greiði andvirði hverrar íbúð- ar á 18 mánuðum með reglubundn- um greiðslum inn á byggingarreikn- ing Sunnuhlíðar. Bankinn annast jafnframt nauðsynlegt bókhald um greiðslur hvers íbúðarhafa. Hand- hafar íbúðanna teljast hvorki eigendur né leigjendur íbúðanna en hafa ótakmarkaðan afnotarétt yfír þeim. íbúamir munu greiða í sam- eiginlegan hússjóð og Sunnuhlíð annast allt viðhald, daglegan rekst- ur, og aðra þjónustu, svo sem ræstingu og öryggisvakt. Á fundinum kom fram að búast mætti við að margir ættu í erfiðleik- um með að greiða íbúðimar upp á 18 mánuðum, þar sem mun lengri tíma tekur að fá í hendur andvirði íbúða á fijálsum markaði, en Bún- aðarbankinn mun taka einhvem þátt í að brúa það bil sem myndast þegar fólk selur eigin íbúðir til að fara í þjónustuíbúðimar, og eins VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gaer: Um 600 kílómetra norðaustur af Langa- nesi er 982 millibara lægð, sem þokast norðaustur. Yfir Grænlands- hafi er minnkandi lægðardrag. Heldur kólnar í veðri. SPÁ: í dag veröur hæg norðan- og norövestanátt, smáél um norð- vesturiandiö en bjartviðri syðra. Frost á bilinu -2 til -7 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Á föstudagsmorgun verður hæg breytileg átt og frost um land allt. Smáól veröa víða við ströndina. Síðdegis fer að hlýna sunnanlands með vaxandi austanátt. LAUGARDAGUR: Á laugardag má búast við hvassri norðaustanátt (6-7 vindstig) með snjókomu á norðurlandi og Vestfjörðum, en slydda eða rigning í öðrum landshlutum. TAKN: Heiðskírt a Léttskýjað a Hálfskýjað A Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r f t r / / / Rigning / / / * / * r * t * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * -J0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus SJ Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður ’Wi r 7 VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hhi veóur Akureyri -2 skýjaí Reykjavik -3 léttskýjað Bergen 3 skúr Helsinki 6 rigning Jan Mayen 0 snjókoma Kaupmannah. 9 rígning Narssarssuaq -12 skýjað Nuuk . -10 léttskýjað Osló 3 skýjað Stokkhólmur 6 rigning Þórshöfn 4 snjóél Algarve 19 skýjað Amsterdam 12 rigning Aþena 16 léttskýjað Barcelona 14 mistur Beriin 10 rigning Chicago -3 léttskýjað Glasgow 6 léttskýjað Feneyjar 16 helðskfrt Frankfurt 9 rignlng Hamborg 10 rignlng Las Palmas 21 skýjað London 11 rigning LosAngeles 16 skýjað Lúxemborg 8 rigníng Madrfd 6 sltýjað Malaga 19 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Miami vantar Montreal —8 alskýjað Nice 17 léttskýjað NewYork 2 alskýjað Paris 11 rigning Róm 15 þokumóða Vín 4 þokumóða Washington 6 skýjað Morgunblaðið/Júlíu8 Sfjóm og yfirmenn Sunnuhlíðar fyrir utan hjúkranarheimilið ásamt bankastjóram Búnaðarbankans, framkvæmdaaðilum þjónustuíbúð- anna og bæjarstjóra Kópavogs. mun Húsnæðisstofnun leggja til framkvæmdafé meðan á byggingu íbúðanna stendur. Hinsvegar kom fram á fundinum að þetta vanda- mál yrði ekki til staðar þegar þessar íbúðir losna og aðrir íbúar taka við því þá verður markaðurinn látinn ráða útborgunarhraðanum. Kópavogsbær hefur tekið að sér að greiða helming af kostnaði sam- eiginlegs rýmis og kaupir að auki 4 íbúðir sem bæjaryfírvöld munu ráðstafa. Hinsvegar hefur nýleg könnun leitt það í ljós að allflestir aldraðir fbúar Kópavogs búa í eigin húsnæði, eða 92,6%. Á frétta- mannafundinum sagði Kristján Guðmundsson bæjarstjóri að hlut- fall aldraðra í þæjarfélaginu færi ört stækkandi,.'ðbm sæíst af því að nú eru um 10.00 ellilífeyrisþegar í Kópavogi en voru 300 fyrir 15 árum, og um 10% íbúanna, eða 1500 manns, eru 60 ára og eldri. Áætlað er að fyrra húsið verði tilbúið í desember á næsta ári, en grunnvinnan við það verður boðin út um næstu helgi. Seinna húsið verður tilbúið þremur mánuðum síðar. Ásgeir Jóhannsson sagði að þegar væri búið að selja flestar íbúðimar í fyrra húsinu og ef þessi tilraun tækist vel yrðu vafalaust fleiri hús byggð á þessum stað með sama fyrirkomulagi. Ólympíuskákmótið: íslendingar 15.— 7. sæti eftir 3—1 sigur á Finnum íslendingar unnu góðan sigur á Finnum í 5. umferð ólympíu- skákmótsins í Dubai í gær. Urslit urðu sem hér segir: ísland — Finnland 3—1; Jóhann — Rantanen, 1—0; Jón L. — Vesterinen 1—0; Margeir — Raaste 1—0; Karl — Válkesalmi 0—1. Framan af keppninni við Finna leit ekki út fyrir stórsigur okkar manna, en þegar líða tók á skák- imar, náðu íslendingar undirtök- um á öllum borðum. Jóhann lenti í byijun í stöðu, sem ekki leit vel út, gegn stór- meistaranum Rantanen. Hann gat ekki hrókað og Rantanen tefldi að vanda stíft til sóknar. Jóhanni tókst að bæta stöðuna hægt og sígandi og þegar Finninn lenti í sínu hefðbundna tímahraki, voru úrslitin ráðin. Jón L. náði örlítið betra tafli gegn stórmeistaranum Vesterinen í byijun. Finnanum hefur til þessa gengið mjög illa í skákum sínum við Islendinga, og hefur það ef til vill valdið því, að hann fór í drottningakaup á röngu augna- bliki til að einfalda taflið. Jón vann endataflið fljótt og vel. Mar- geir yfirspilaði Raaste í byijun og vann létt. Karl náði vinningsstöðu, en í tímahraki fór hann að ástæðulausu út í endatafl, sem hann tapaði. Þar með fór tækifær- ið til að vinna 4—0 og ná Sovét- mönnum. Úrslit biðskáka í gærmorgun: Portisch — Kasparov, jafntefli. Kasþarov hrósaði andstæðingi sínum mjög fyrir frábæra vöm í erfíðri stöðu. Þetta jafntefli varð Ungveijum dýrkeypt, því þeir voru svo þreyttir eftir biðskákar- rannsóknir, að Portisch og Ribli hvíldu báðir í keppninni við Eng- lendinga í gær. Þeir síðamefndu unnu 2'/z — IV2, Miles vann Sax á 1. borði, en aðrar skákir urðu jafntefli. Sovétmenn gerðu jafntefli við Júgóslava: Ljubojevic — Karpov 1— 0, Sokolov — Popovic 1—0, Jusupov — Barlov jafnt, Tsjéskov- skij — Hulak, jafnt. Þetta er líklega í annað skiptið, sem Ljubo vinnur Karpov, og gerði hann það mjög örugglega. Önnur úrslit: Kúba — Kína 3—1; V-Þýskaland — Argentína V2—3V2; Bandaríkin — Indónesía 2V2—U/2, vinur okkar Adianto vann Fedorowicz; Skotland 3V2 — Mexíkó V*; Tékkóslóvakía — Chile 2— 2; Frakkland — Búlgaría IV2—2V2; Rúmenía — Grikkland 3— 1. Staðan eftir 5 umferðir: 1. Sovétríkin 15V2V. 2.-4. Eng- land, Júgóslavía og Kúba 15 v. 5.-7. ísland, Argentína og Búlg- aría 14V2 v. 8.-9. Ungveijaland og Skotland 14 v. 10.—16. Banda- ríkin, Tékkóslóvakía, Rúmenía, Frakkland, Chile, Kína og Indó- nesía, 13V2 v. í Dubai er einnig teflt í kvenna- flokki og þar em Sovétríkin og Kína jöfti í efsta sæti með 12 v. af 15 mögulegum. í dag eiga skákmennimir frí, en á morgun tefla íslendingar líklega við sterka sveit Argentínu. Þrír stórmeistarar skipa argen- tíska liðið: Campora, Panno og Garcia Palermo og á fjórða borði teflir Barbero, sem tefldi á 2. borði í Grikklandi fyrir tveim árum. BK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.