Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
Hef farið fram á að
borgin styrki Oper-
una til jafns við ríkið
- segir Garðar Cortes, stjórnar-
formaður íslensku óperunnar
„ÞAÐ stefnir óneitanlega í erfiðleika hjá okkur nema ef ein-
hyer aðstoð komi til,“ sagði Garðar Cortes, sljórnarformaður
íslensku óperunnar, í samtali við Morgunblaðið.
„Yfirleitt sjáum við okkur sjálf
fyrir 60-70% af rekstrarfénu. Við
biðjum fjárveitingavaldið um
20-30%, en fáum ekki nema
9-10% af því sem við þurfum til
reksturs óperuhúss. Skuldimar
hafa því safnast upp síðan við
byijuðum og ég veit satt að segja
ekki hvað við getum haldið svona
lengi áfram þótt Óperan sé í meira
lagi lífsseig. Við vinnum að því
að efla styrktarfélagið. Það eru
nú skráðir 1.500 styrktarmeðlim-
ir, en virkir eru þeir ekki nema
500 til 600. Hinsvegar þyrftum
viðu.þ.b. 5.000 styrktarmeðlimi."
Garðar sagðist hafa sent bréf
til borgaryfirvalda og farið fram
á styrk til jafns við það sem ríkis-
sjóður veitir til Óperunnar, Qórar
milljónir, en ekki hafa fengið svar
ennþá. Borgin styrkti Islensku
ópemna fyrsta árið sem hún starf-
aði, 1981, sem nam æfingalaun-
um söngvaranna. „Það var fallega
gert af borginni enda þurfum við
á því að halda alveg eins og borg-
in þarf á Ópem að halda," sagði
Garðar.
Sumarið ’87:
Sýning í Laugar-
dalshöll næsta vor
KAUPSTEFNAN Reykjavík hf. gengst fyrir sýnmgu er nefmst
„Sumaríð ’87“ í vor. Sýningin verður haldin í Laugardalshöll og á
útisvæðinu þar í kríng og verður hún opnuð á sumardaginn fyrsta,
23. apríl, og lýkur henni 3. maí. Á sýningunni verður svo til allt sem
við kemur sumrí, frítíma og ferðalögum og eru fyrírtæki nú þegar
farin að panta sýningarbása, að sögn Sigurjóns Skæríngssonar, sölu-
stjóra hjá Kaupstefnunni.
Kaupstefiian Reykjavík hf. hefur
undanfarna áratugi staðið fyrir al-
þjóðlegum vömsýningum og heimil-
issýningum, en þetta er fyrsta árið
sem fyrirtækið stendur fyrir slíkri
sumarsýningu. Hefðbundið bása-
fyrirkomulag verður brotið upp og
verða sýningardeildir afmarkaðar
m.t.t. vömflokka og starfsgreina.
Kaupstefnan hefur tekið upp þá
nýbreytni að reikna inn í sýningar-
gjaldið, sem byggist upp á fer-
metragjaldi, hina ýmsu sérliði, sem
á fyrri sýningum vom reiknaðir og
innheimtir í lok sýninga. Sýningar-
gjaldið inniheldur nú bás, lýsingu
eftir þörfum og rafmagnsnotkun
hennar, ryksugun, firmaheiti fram-
an á sýningardeild, einkenni starfs-
fólks í sýningardeildum, öryggis-
gæslu, kynningu og skráningu í
sýningarskrá, einn boðsmiða á
hveija þijá leigða fermetra og þátt-
töku í eins kvölds námskeiði sem
haldið verður tveimur vikum fyrir
sýningu fyrir starfsfólk vömsýning-
arinnar.
Áhersla verður lögð á að kynna
ferðalög og þjónustu við ferðamenn,
innanlands sem utan. Á sýningar-
svæðinu verður gerð einskonar
eftirlíking af hringveginum og gest-
um boðið að ganga hann að þessu
sinni. Erlendum fyrirtækjum og
ferðaskrifstofum verður einnig boð-
in þátttaka í sýningunni. Auk þessa
verður útivera og íþróttir stór þátt-
ur í sýningunni, einnig sumarfatn-
aður, garðrækt, viðhald húsa og
verður útisvæðið helgað sumarbú-
stöðum. Matvara verður kynnt á
sérstöku svæði þar sem jafnframt
verður aðstaða fyrir tímarit, dag-
blöð og aðra fjölmiðla. Ennfremur
verður aðstaða fyrir ýmsar tóm-
stundavömr, sumarvömr í bifreið-
ar, gjafavömr, kynningu á
sumamámskeiðum sportvömm og
fleim.
NYTT SIMANUMER
CjirC
i
A ANN ASÖMU3VI
h
refjarík fæða er öllum nauðsynleg og flestir íslendingar
neyta hennar ekki sem skyldi. ALPEN er framleitt
samkvæmt gamalli svissneskri uppskrift, sem í eru aðeins
vönduð hráefni og holl. Ef þú vilt neyta
trefjaríkrar fæðu, reyndu þá ALPEN,
enginn morgunmatur bragðast betur.
RETTA LEIÐIN TJPP A MORGNANA.