Morgunblaðið - 20.11.1986, Side 3

Morgunblaðið - 20.11.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 3 Opið næstkomandi laugardag kl. 10—16 Byggingar- vísitala hækkaði um 0,94% HAGSTOFAN hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í nóvember 1986 og reyndist hún vera 285,06 stig, eða 0,94% hærri en í október. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækk- að um 15,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,8% og jafngildir sú hækkun 16,3% verðbólgu á heilu ári. Hækkun á verði steypu um 5,2% olli tæplega 0,5% hækkun vísitölunnar en hækk- un ýmissa annarra efnisliða olli um 0,4% hækkun. í fréttatilkynningu frá Hagstof- unni er tekið fram, að við uppgjör verðbóta á fjárskuldbindingar sam- kvæmt samningum þar sem kveðið er á um, að þær skuli fylgja vísi- tölu byggingarkostnaðar, gilda hinar lögformlegu vísitölur, sem reiknaðar eru fjórum sinnum á ári eftir verðlagi í mars, júní, septemb- er og desember, og taka gildi fyrsta dag næsta mánaðar. Vísitölur fyrir aðra mánuði en hina lögboðnu út- reikningsmánuði gilda hins vegar ekki nema sérstaklega sé kveðið á um það í samningum. tiskan i Tannsmíðaskól- inn í notkun á næsta ári ’Wjfc tiskan i daa TANNSMÍÐASKÓLI verður væntanlega tekinn í notkun í húsnæði tannlæknadeildar Háskóla íslands á næsta ári. Að sögn fjármálaráð- herra, Þorsteins Pálssonar, er ráð fyrir því gert að fram komi breytingartillaga á fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár þess efnis að veitt verði fé til þess að hefja megi starfrækslu skólans. Hús- næði ætlað skólanum hefur staðið ónotað í þijú ár, ennfremur tækjabúnaður að verðmæti tugi milljóna króna. Samkvæmt samningi milli fjármálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Háskóla íslands mun Háskólinn taka að sér kennslu tannsmiða, en námið heyrir undir iðnfræðslulöggjöfina. Að sögn Amar Bjartmars Péturs- sonar prófessors við tannlæknadeild Háskólans hefur mál þetta staðið í þófi síðustu árin, en í húsnæði tann- læknadeildar eru nú tilbúin tæki fyrir tugi milljóna króna, sem ábyrgð er þegar útrunnin á, þ.e. áður en þau hafa verið tekin í notk- un. Öm sagði sorglegt að horfa upp á þetta. Þarna væri húsnæðið og tækjabúnaður fyrir hendi en aðeins skorti á ijárveitingu til starfs- mannahalds, handverkfæra og minniháttar kennslutækjakaupa. Stefán Ólafur Jónsson deildar- stjóri í menntamálaráðuneytinu sagði þetta mál allt eina sorgar- sögu. Allt hefði verið tilbúið á sl. hausti til að hefja kennslu, og að- staðan verið fyrir hendi síðustu þijú árin. Allt hefði síðan strandað á því að fá fjárveitingu. Forsaga málsins er sú, að samningur náðist fyrir nokkm milli ráðuneyta menntamála og fjármála annars vegar og Há- skóla íslands hins vegar, en hann gerði ráð fyrir að Háskólinn tæki að sér bóklegt nám tannsmiða. Menntun þeirra heyrir undir iðn- fræðslulöggjöfina en hefur að stærstum hluta verið á höndum tannlækna. Um tíma ráku tann- læknar eigin skóla fyrir tannsmiði, en bóklegt nám var einnig í Iðnskól- anum í annan tíma. Stefán sagði ennfremur að 8-10 tannsmiðir væm nú við verklegt nám hjá tannlækn- um og hringdu þeir nú orðið í viku hverri í menntamálaráðuneytið til að fá upplýsingar um ganga mála, þar sem þeir gætu ekki lokið bók- lega náminu fyrr en skólahaldið hæfist. Menntamálaráðherra hefur þeg- ar undirritað umræddan samning. Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra sagði að ekki myndi standa á honum að undirrita samninginn, en þetta væri fyrst og fremst spuming um ijárveitingu, sem hann kvað þegar undirbúið að fá inn á fjárlög næsta árs með breytingartillögu á alþingi eins og fyrr segir. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Örn Bjartmars Pétursson prófessor við hluta tækjabúnaðarins, sem staðið hefur ónotaður í þijú ár í nýju húsnæði tannlæknadeildar Háskólans. Heimdallur: Minnismerki um Andrei Sakharov HEIMDALLUR, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík ritaði á dögunum bréf til Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, og fór þess á leit að fá að reisa sovéska andófsmanninum Andrei Sakharov minnismerki á Landakotstúni. Borgarstjóri gat þó ekki veitt leyfi sitt til þessa, þar sem að kaþólska kirkjan hefur umráðarétt yfir túninu. Heimdallur hyggst leita til hennar um leyfi. í málaleitan Heimdallar var grund" á mannréttindabrot Sovét- gert ráð fyrir að steinninn yrði reistur á horni Túngötu og Hóla- vallagötu, gegnt sovéska sendi- herrabústaðnum. A honum átti að vera lágmynd af Sakharov auk áletrunar á íslensku og rússnesku til þess að minna íslendinga og hinn „stóra hóp sovéskra borgara, sem hefur aðsetur á íslenskri stjómarinnar, eins og segir í erindisbréfinu. Steinninn yrði svartur, 2x0, 80x0,20m að stærð, en fé til þess að reisa hann á að safna meðal einstaklinga og fyrirtækja. Hér á eftir fer áætluð áletrun steinsins: „Stein þennan reistu ungir íslenskir frelsisvinir til þess að minna heiminn á Andrei Sakharov og þann órétt, sem hann og tug- þúsundir samlanda hans mega þola af hendi ríkisstjómar sinnar. Meðan Sovétstjómin heldur uppteknum hætti gagnvart eigin þegnum verður því ekki trúað að hún geti samið um framtíð heims- ins í umboði þeirra þjóða, sem Sovétríkin byggja. Friður án frelsis er frelsi fangans. Slíkur friður er of dým verði keyptur, eins og Andrei Sakharov og þjáningarbræður hans hafa reynt. Með steini þessum er skorað á Sovétríkin að veita Sakharov frelsi, veita honum rétt til að fara ferða sinna og segja hug sinn. Vilji ráðamenn Sovétríkjanna að mark sé á þeim tekið verða þeir að virða mannréttindi Sakharovs, sem og annarra íbúa Sovétríkj- anna. Sovétríkin geta ekki farið fram á meiri virðingu á alþjóða- vettvangi en þau sína borgurum sínum á heimavelli." Sem fyrr segir verður þess ósk- að við kaþólsku kirkjuna að hún leyfi að þessi steinn verði reistur á Landakotstúni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.