Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 Fiskiþing Frumvarp um breyt- ingar á fiskmati Ferskfiskmat til hagsmunaaðila um áramót? UPPKAST að frumvarpi til laga um breytingti á starfsemi Ríkis- mats sávarafurða liggnr nú fyrir. í frumvarpinu felst heinúld til þess að færa ferksfiskmat til hagsmunaðilja. Reiknað er með því í uppkastinu, að breytingarnar taki gildi 1. janúar á næsta ári. Þessar upplýsingar komu fram hjá Áma Benediktssyni í framsögu hans um Ríkismat sjávarafurða á Fiskiþingi. Ámi rakti nokkuð að- draganda þessa uppkasts. Upphaf- lega hefðu komið fram þijár hugmyndir um framtíð Ríkismats- ins; að hagsmunaaðilar tækju það að sér; að byggja mætti áfram á núverandi kerfi með nokkmm breytingum og að meta ætti ferskan físk eins og áður en með minni til- kostnaði, með auknu vinnuframlagi frá vinnslustöðvunum. Hann gat þess einnig að útgerðarmenn vildu leggja Ríkismatið niður, en físk- verkendur og sjómenn vildu að minnsta kosti hafa á því verulegan fyrirvara. Þá gat þess að afurðamat hefði færzt mikið til framleiðenda sjálfra og væra flestir sammála því, að svo bæri að vera, en yfír- stjómar Ríkismatsins væri þó þörf, sérstaklega í ágreiningsmálum. Talsverðar umræður urðu um þetta mál og vora skoðanir talsvert skiptar, enda kom það einnig fram í tillögum fjórðungsþinga fískideild- anna. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fískimanna- sambands íslands, lýsti afstöðu FFSÍ á þá leið, að ferskur fískur verði aðeins tekinn til yfírmats, náist ekki samkomulag milli kaup- enda og seljenda, sem miðist við fýrri reynslu af gæðum fískins upp úr einstökum skipum. Þó gæti þetta verið erfíðleikum bundið með afla netabáta, sem væra veralega háðir veðurfari. Eríkur Tómasson, Grindavík, ræddi um mismun á mati eftir löndunarhöfnum. Hann sagði, að í Grindavfk hefði verið sett á stofn matstöð og eftir það hefði verið friður um ferskfískmat- ið. Nauðsynlegt yrði alltaf að meta netafísk og fýlgjast jafnframt með gæðum alls afla. Hins vegar væri engin þörf á tvöföldu eða jafnvel þreföldu mati afurða eins og nú væri. Jón Magnússon, Patreksfirði, var ómyrkur í máli í garð Ríkis- matsins og sagði að ekkert væri með það að gera. Stofnuninni hefði verið og væri illa stjórnað og mis- vægi í mati milli staða mikið. Eins og málum væri háttað væri ferks- fiskmatið ekki til þess að hvetja menn til að koma með góðan fisk að landi. Ráðningar við stofnunina miðuðust við pólitík og þar væra stjórar á stjóra ofan. Ríkismatið væri því sjávarútveginum til skammar. Neyðarþjónusta lækna og Gæzlunnar; Tryggingastof nun neit- ar að greiða kostnaðinn læknar hætta þessari þjónustu í desember fái þeir ekki greitt, segir Guðjón A. Kristjánsson „LÆKNAR, neyðarvaktir sem í gengið hafa tengslum við Ekki komizt hjá endurnýjun á stórum hluta bátaf lotans - segir Kristján Ásgeirsson um viðhald og endurnýjun fiskiskipa „LJÓST er að ekki verður komizt hjá þvi að endurnýja stóran hluta bátaflotans með nýjum bátum og tel ég það skynsamlegra en að endursmíða bátana að stórum hluta. íslendingar þurfa hagkvæm og góð skip til að sækja fiskinn í greipar Ægis. Úrelding gamalla og óhagkvæmra skipa þarf þvi að vera i gangi ásamt sífelldri endurskoð- un á fiskiskipaþörf landsmanna. Þess vegna þarf að skapa íslenzkum skipasmiðastöðvum samkeppnisaðstöðu á við erlendar skipasmíða- stöðvar. Ég fullyrði að íslenzkir skipasmiðir smíða sterkari skip með betri búnaði og meira í samræmi við íslenzkar aðstæður, en erlend- ar stöðvar." Þetta vora meðal annars orð Krístjáns Ásgeirssonar í erindi hans um viðhald og endumýjun físki- skipaflotans á Fiskiþingi. Kristján fjallaði nokkuð um stærð flotans og sagði, að þó deilt væri um það kerfí, sem kennt væri við kvóta, væra menn nokkuð sammála um að takmarkalaust frelsi til veiða kæmi ekki til greina að svo stöddu. í þessu fælist í raun viðurkenning á því að skipastóllinn væri of stór og ætti þetta einkum við þann hluta flotans, sem stundaði botnfískveið- ar, togara og báta. Væri litið til sérveiða, loðnuveiða, síldveiða, humarveiða og rækjuveiða, væra þær allar háðar takmörkunum nema djúprækjuveiðin. Fæst benti til að fleiri skip þyrfti til að full- nýta þessar tegundir. Fijáls aðgangur að rækjuveiðum hefði margfaldað sókn í þær. Það sýndi, að þar sem veiðar væri ekki háðar ströngum takmörkunum, mætti búast við mikilli fjölgun skipa á þeim, ofveiði og rányrkju. Því þyrfti að athuga hvort frekari fjárfesting- ar væri þörf í úthafsrækjuveiðum áður en lengra yrði haldið. Þá sagði Kristján að um stundar sakir mætti búast við því, að end- umýjun skipastólsins yrði fryst og fremst með þeim hætti að skipum yrði breytt til að auka hagkvæmni þeirra. Mestur hluti stærri fískibáta væri eldri en 20 ára. Þetta hefðu þótt góð skip á sínum tíma. Hins vegar orkaði það tvímælis hvort margar af þeim endurbótum, sem á þessum bátum hefðu verið gerð- ar, væra réttlætanlegar vegna aldurs bátanna og kostnaðar við breytingamar. Vegna þröngra reglugerðarákvæða um stærðar- mörk, þegar skipt væri um skip, hefðu útgerðarmenn ekki getað valið hagkvæmasta kostinn hveiju sinni. Á sama hátt yrði að líta á stöðu togaraflotans; hvort viðamikl- ar og kostnaðarsamar breytingar væra í raun hagkvæmari en ný skip. þyrlu Landhelgisgæzlunnar, munu hætta því í desember, fái þeir ekki greitt fyrir það,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti farmanna- og fiskmannasam- bands íslands, í framsögu um öryggismál á Fiskiþingi. Hann gat þess einnig að með samstarfi lækna og Landhelgisgæzlunnar mætti fullyrða að fjórum manns- lífum hefði verið bjargað, en það hefði ekki tekizt á annan hátt. Guðjón ræddi um samning milli tryggingarfélaga LÍÚ og Land- helgisgæzlunnar um greiðslutil- högun við veitta aðstoð og gerðardóm til að úrskurða ef ágreiningur risi; hvort um björgunm eða aðstoð hafí verið að ræða. Síðan sagði hann: „Ekki leikur vafí á þaði, að þetta samkomulag eykur aðstoðarstörf Gæzlunnar og jafn- framt öryggi annarra sjófarenda. Landhelgisgæzlan þarf að reka öll sín skip frá því í september ár hvert til vertíðarloka og til þess verður að fást fjármagn af fjárlögum hvers ár, að sú neyðarþjónusta, sem Landhelgisgæzlan getur veitt, ef á þarf að halda, sé til staðar. í því sambandi get ég ekki látið hjá líða að minnast á þá ómetanlegu örygg- isþjónustu, sem áhöfn og neyðar- vakt lækna hefur verið í björgunar og neyðarútköllum, sem á fljótvirk- an og öraggan hátt, hefur verið við bragðizt með þyrlu Landhelgis- gæzlunnar. Áhörfn þyrlunnar og þeir læknar, sem alltaf era til bún- ir að fara í flug með örskömmum fyrirvara, hafa á síðustu mánuðum sýnt, svo ekki þarf um að deila, hvað vel þjálfaðir menn geta gert til að bjarga mannslífum, þegar enginn annar farkostur er nothæfur vegna aðstæðna. Þetta á ekki síður við um hinar dreifðu byggðir vfða um land, en skip á hafí úti. Þyrlan hefur farið 28 sinnum í neyðarút- kall og fullyrða má að fjóram mannslífum hefði ekki verið bjargað á annan hátt. Þessi starfsemi er nú í hættu með að falla niður, eingöngu vegna þess, að neyðarþjónusta sem læknar veita sjómönnum og landsbyggðar- fólki, fæst ekki greidd af Trygg- ingastofnun ríkisins. Á sama tíma er ekki nokkur vafí talinn á að all- ur kostnaður við rekstur sjúkrabif- reiða skuli greiddur, þar með talið kaup lækna sem annarra. Skyldi þess neikvæða afstaða til neyðar- þjónustu við sjómenn stafa af því, að talið væri að þeir greiddu lítið til sameiginlegra þarfa þjóðfélags- ins. Varla getur svo verið. Það sýnir smá athugun, sem ég gerði á skatt- greiðslu sjómanna á ísafirði. 12 sjómenn greiddu samtals 6.385.705 krónur í tekjuskatt, en 12 atvinnu- rekendur greiddu samtals 41.000 í tekjuskatt," sagði Guðjón A. Kristj- ánsson. Sýnir í fyrstasinn hérlendis ÁLFHILDUR Ólafsdóttir opnaði málverkasýningu í Ásmundarsal við Freyjugötu þann 15. nóvember sl. Er þetta fyrsta sýning Álfhildar hér á landi, en hún hefur verið bulætt í Bandaríkjunum sl. 24 ár. Á sýningunni era 38 olíumálverk, öll unnin á sl. tveim áram. Þetta era mest íslenskt landslag og blómamyndir. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00-21.00 og henni lýkur sunnu- daginn 23. nóvember. Álfhildur Ólafsdóttir ásamt einu verka sinna. Sjöunda þing BHM sett á f östudag SJÖUNDA þing Bandalags há- skólamanna verður haldið föstu- daginn 21. og laugardaginn 22. nóvember i Borgartúni 6. For- maður BHM, Gunnar G. Schram, setur þingið kl. 13.30 á föstudag en að þvi loknu mun Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra ávarpa þingið, segir i frétt frá BHM. Að loknu ávarpi menntamálaráð- herra og annarra gesta verða umræður um meginmarkmið og framtíðarverkefni samtaka háskóla- manna, en þá hafa framsögu þeir Eggert Ágúst Sverrisson viðskipta- fræðingur og Höiður Filippusson dósent. Annað aðalumræðuefni þingsins verður: „Fj'ölgun háskólamanna og eftirspum eftir háskólamenntuðu vinnuafli“. Framsögumenn verða Frið- rik H. Jónsson sálfræðingur, Bjami Kristjánsson rektor Tækniskóla ís- lands og Sveinn Magnússon læknir. BHM hefur nýlega tekið saman hve margir hafa lokið háskólaprófum [ hinum ýmsum greinum síðustu ár og hve margir eru nú við nám. Helstu niðurstöður verða kjmntar á þinginu. Á þingingu verða afgreiddar ýmsar ályktanir um menntamál og önnur mál er varða háskólamenn sérstak- lega. Starfsáætlun til næstu tveggja ára verður afgreidd og fjárhagsáætlun til næsta árs. Starfsskýrsla sfðustu tveggja ára verður lögð fram og reikn- ingar sfðasta árs. I lok þingsins verður kjörin stjóm til næstu tveggja ára og verður nú með öllu skipt um stjóm í bandalaginu þar sem flestir stjómarmenn hafa set- ið í fjögur ár sem er hámark og hinir gefa ekki kost á sér. Þinginu lýkur kl. 17.00 á laugardag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.