Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 33

Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 33 Chile: Sala bönn- uð á bók um Allende Santiago, AP. YFIRMAÐUR í stjórnarher Chile gaf á þriðjudag fyrirskip- un um að öll eintök bókar, sem fjallar um Salvador Allende fyrrum forseta, skyldu gerð upptæk. Bókin fjallar um líf og starf marxistans Allende, sem Augusto Pinochet, núverandi forseti lands- ins, steypti af stóli árið 1973. Bókin var þegar fjarlægð úr versl- unum í Santiago, höfuðborg Chile. Carlos Ojeda Vargas, yfirmaður stjómarhersins í Santiago, gaf fyr- irskipun þessa og kvað hana vera í samræmi við neyðarlög sem sett voru í landinu í septembermánuði þegar reynt var að ráða Pinochet af dögum. í bókinni er að fínna ræður Al- lendes auk fjölda mynda. Þá er einnig sagt ítarlega frá sögu ríkis- stjómar hans sem sat að völdum í þijú ár. Salvador Allende var myrtur í valdaráninu. Höfundamir em tveir; Moy To- ha, ekkja vamarmálaráðherra stjómar Allendes og Isabelle Let- elier, ekkja Orlando Letelier, sem var sendiherra stjómar Allendes í Washington. Chad: Asakanir um fjöldamorð Sameinudu þjóðimar.AP. FULLTRÚI Afríkuríkisins Chad hjá Sameinuðu þjóðunum, sakaði á þriðjudag, Líbýustjóm um að standa að fjöldamorðum á ibúum norðurhiuta Chad, er Libýumenn hafa lagt undir sig. Mahamat al Adoun, sendiherra Chad, sagði á fundi Öryggisráðsins, að líbýskir hermenn fremdu fjölda- morð til að brjóta á bak aftur andstöðu við þá og hindruðu íbúana í að flýja til suðurhluta landsins, svo ekki fjölgaði þar þeim Chad- búum er berðust gegn þeim. AL Adoun sagði að bardagar í Norður- Chad hefðu harðnað á undanfömum vikum og binda þyrfti enda á þessi morð, en lagði ekki fram sérstaka ályktun um málið. Ali A. Treiki sendiherra Líbýu hjá S.þ. sagði umræðumar í Óryggisráðinu aðeins tilraun til að draga athygli frá árás Bandaríkjamanna á Líbýu í apríl- mánuði sl. er ræða átti á fundi alsheijarþingsins í gær. ERLENT JUSTO Gallego Martinez stendur hér fyrir fram- an kirkjuna, sem henn hefur varið undanföraum 22 árum í að reisa. Kirkjan stendur í bænum Mejorada del Campo skammt fyrir utan Madrid á Spáni. Martinez fékk reyndar ráðgjöf um tæknileg atriði frá katólsku kirkjunni og nokkur vagnhlöss af múrsteinum, en þess utan hefur hann ekki notið utanaðkomandi aðstoðar við að reisa kirkjuna. Hún er 50 m á lengd og 20 m á breidd og ná turnar hennar nú 20 m upp í loft. Gert er ráð fyrir að turnarnir verði 40 m háir þegar Martinez lýkur við bygginguna. Bandaríkín: Andvaka grábirnir á rölti Herinn gerir harða hríð að skæruliðum Afganistan: Reisti sér eigin kirkju YeUowstone-þjóðgarðinum, AP. DÝRAFRÆÐINGAR í Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum velta þvi nú mjög fyrir sér hvort bimir geti þjáðst af svefnleysi. í síðustu viku komu starfsmenn í garðinum auga á fullorðna bimu og húna , sem virðast ekki geta lagst í híði. Síðast sást til bjam- anna þar sem þeir skemmtu sér við að tæta sundur bílsæti sem skilin höfðu verið eftir í reiðileysi. Fyrir áhugamenn um bjamdýr má geta þess að hér er um svonefnda grábimi að ræða (lat. Ursus Horri- bilis). „Bjamdýrafræðingar" í Yellow- stone-garðinum eru ákaflega undrandi því samkvæmt skýrslum þeirra leggjast svo til allir bimir í garðinum í híði fyrir 12. nóvemb- er. Sandy Fowler, umsjónarmaður bjamdýra í Yellowstone, kvaðst ekkert geta látið uppi um hvers vegna bjöm númer 83 hefði ekki lagst í híði. Hún benti hins vegar á að árið 1981 hefði þessi sami grábjöm átt í erfíðleikum með svefn. Islamabad, AP. HERIR Sovétmanna og afg- önsku stjóraarinnar gerðu í gær loftárásir á bækistöðvar skæru- liða í austurhluta Afganistan, nærri landamærum Pakistan. Haft er eftir embættismönnum i Islamabad að hvorir tveggju ætli að kveða til sín liðsauka. Sovétmenn og stjóm Afganist- an sendu orrustuþotur, sprengju- vélar og þyrlur til að gera árásir á skæruliða og á jörðu niðri var sprengjum skotið úr skriðdrekum. Stórskotalið sótti einnig að skæru- liðum. Sögðu embættismenn að þetta væru mestu átök í Shinwar- héraði síðan Sovétmenn gerðu innrás í Afganistan. Sérstök upplýsingamiðstöð, sem hefur höfuðstöðvar í borginni Pes- hawar í Pakistan, skammt frá landamærunum að Afganistan, fylgist með viðburðum í landinu. Starfsmenn miðstöðvarinnar segja að einnig sé hart barist í héraðinu Ningrahar. Einn starfsmaður miðstöðvar- innar sagði að svo virtist sem tugir skæruliða hefðu bæði látist og særst. Aftur á móti væri erfitt að henda reiður á ástandi mála og segja til um fjölda fallinna. Verð: 451.000 beinskiptur 505.000 sjálfskiptur mmmrl HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 CHEVROLET 1987 árgerðirnar eru komnar — Beinskiptir — Sjálfskiptir — Aflstýri — 4ra og 3ja dyra Framhjóladrifinn — Þægilegur — Öruggur — Sparneytinn Verð: 444.000 beinskiptur 498.000 sjálfskiptur CHEVROLET MOIMZA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.