Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 1
80 SÍÐURB STOFNAÐ 1913 262. tbl. 72. árg._______________________________FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Vaxandi spenna á Filippseyjum; Þrír menn myrt- ir í gærmorgun Manila, AP BYSSUMENN klæddir sem kon- ur skutu til bana náinn vin Juan Ponce Enriles, vararmálaráð- herra Filippseyja í gær. Maður- inn, sem hét David Puzon, var fyrrverandi þingmaður fyrir Sovétríkin: Verk eftir Nabokov gefin út á næstunni Moskvu, AP. SOVÉZKT útgáfufyrirtæki er að undirbúa eins bindis safnverk með úrvali úr verkum skáldsins Vladimirs Nabokov, en verk hans voru áður algerlega bönnuð í Sovétríkjunum. Skýrði TASS- fréttastofan frá þessu í gær. Jafnframt var það tekið fram, að enn fleiri útgáfur með verkum hans kynnu að koma út á næstu árum sökum „vaxandi áhuga sovézkra lesenda á sköpunar- mætti skáldsins." í ágúst birti skáktímaritið „64“ 2000 orða úrdrátt úr endurminning- um Nabokovs og var það í fyrsta sinn, að eitthvað birtist á prenti eftir skáld- ið í Sovétríkjunum. Þessi vaxandi áhugi á verkum Nabokovs nú er túlk- aður sem visbending um hugsanlegar breytingar í sovézku menningarlífi á næstunni og að verk fleiri skálda kunni að verða gefín út, sem til þessa hafa verið bönnuð. flokk Ferdinands Marcos, fyrr- um forseta. Var maðurinn myrtur í fyrirsát í gærmorgun. Tvö önnur morð voru framin í grennd við Manila í gærmorgun og voru þau bæði framin á háttsettum foringum innan hersins. I gærkvöldi sprakk svo sprengja í verzlunar- byggingu í miðborg Manila, þar sem tugir manna særðust. Er þetta talið augljós vottur um, að spennan inn- anlands fari nú dagvaxandi á Filippseyjum. Puzon var á leið til vinnu sinnar, er 10 byssumenn „klæddir sem konur“ samkvæmt frásögn sjónar- votta sátu fyrir bifreið hans í um 10 km íjarlægð fyrir austan Man- ila. Létu þeir vélbyssukúlunum rigna yfir bifreið Puzons og hurfu svo á brott í skyndingu. Yfirmenn hersins á Filippseyjum kenndu í gær kommúnistum um þessi þijú morð og kölluðu þau „lýs- andi dæmi um svívirðilegar baráttu- aðferðir kommúnista." Þeir síðamefndu sökuðu aftur á móti „fasistaaöfl" innan hersins, sem stæðu í nánum tengslum við Enrile, um morðið á verkalýðsleiðtoganum Rolando Olalia í síðustu viku. Corazon Aquino forseti sagði í sjónvarpsviðtali í gær, að tilraun til að steypa stjóm hennar með valda- ráni gæti leitt af sér stórfelld og ólýsanleg vandamál. Varaði hún andstæðinga sína við því, að hún myndi bregðast af festu og einurð við öllum tilraunum af því tagi. Páfinn heimsækir Bangladesh Jóhannes Páll páfi II er nú á tveggja vikna ferðalagi til Austur- landa fjær. Fyrsti viðkomustaður hanns var Dhaka í Bangladesh. Þar skoraði hann á múhameðstrúarmenn og kristna menn að eyði tortryggni sin í milli og vinna að því i sameiningu að tryggja mannlega reisn og virðingnu hvarvetna í heiminum. Mynd þessi var tekin i gær af páfanum, þar sem hann situr í þrihjóla kerru (rickshaw), en slikar kerrur eru enn eitt helzta faratækið í Bangladesh. Alls hyggst páfinn heimsækja 6 lönd á ferðalagi sinu nú. Vancouver: Vilja koma lögum yfir Paul Watson Vancouver, frá Guðlaugi Bjarnasyni, fréttaritara Morgunblaósins. ÍSLAND og íslendingar hafa verið á hvers manns vörum hér að undanförnu vegna skemmdarverkanna í Reykja- vík og í Hvalfirði. Er óhætt að fullyrða, að land og þjóð hafa aldrei fengið eins milda kynningu þótt hún hefði mátt vera af öðru og ánægjulegra tilefni. Viðbrögðin hér eru almenn hneykslun og aðal- lega þó í Vancouver þar sem Paul Watson býr og menn þekkja best til hans. Stærstu blöðin í Vancouver hafa krafíst þess af ríkisstjórninni í Bresku Kólombíu og alríkisstjóm- inni, að lögum verði komið yfir Watson og fylgilið hans. Segja blöðin það vera til háborinnar skammar, að menn á borð við Watson skuli geta lifað eins og greifar og fjármagnað skemmdar- verk erlendis með skattfijálsu gjafafé. Þá hefur það einnig vakið reiði og hneykslun margra, að í sjónvarpsviðtölum hafa Watson og útsendarar hans stært sig af því að hafa leikið á íslendinga, sem hafí tekið þeim næstum eins og gestum og hjálpað á margvíslegan hátt án þess að bjóða í grun hvað fyrir þeim vakti. Sjá „Reiði og hneykslun..." á bls. 30 175 millj. til höfuðs morðingja Olofs Palme Stokkhólmi, Reuter. SÆNSKA lögreglan hækkaði í gær þá fjárhæð, sem sett er til höfuðs morðingja Olofs Palme forsætisráðherra upp í 30 millj. s. kr. (um 175 millj. ísl. kr.) Allt að 300 leynilögreglumenn unnu að rannsókn málsins, er hún stóð sem hæst, en nú eru þeir 145. Málið er þó enn óleyst með öllu. Var haft eftir Lars Erik Plant- in, starfsmannastjóra lögreglunnar í Stokkhólmi, að 71.200 yfirvinnu- tímar hefðu farið í rannsókn málsins, síðan óþekktur maður skaut Palme til bana. Gerðist það að kvöldlagi á götu í miðri Stokk- hólmsborg 28. febrúar sl. Kasparov harðorður í garð forseta FIDE: Sakar Campomanes um að misnota fé FIDE í eigin þágu Dubai, Reuter. GARRI Kasparov, heimsmeistari í skák, sakaði í gær Flor- encio Campomanes, forseta Alþjóða skáksambandsins (FIDE) um að misnota sjóði þess til að ná endurkjöri. Væri þetta gert með því að greiða flugfargjald fyrir fulltrúa vinveittra skáksambanda á Ólympíuskákmótið, sem nú stendur yfir í Dubai. Þar á á að fara fram forseta- kjör í FIDE eftir 10 daga. Kasparov sagðist telja það jákvætt fyrir skáklistina, að fríum flugfarmiðum væri útbýtt handa þróunarlöndunum til að senda þátttakendur á Ólympíu- skákmótið, en bætti síðan við: „Campomanes hefur notað þetta líkt og allt vald sitt innan FIDE í sína eigin þágu, eins og allar fyrri gerðir hans sýna. Við getum ekki gengið út frá því, að fjármunum og áhrifum FIDE sé beitt í þágu skáklistarinnar sjálfrar alls staðar í heiminum." Það voru ummæli Ahmeds Abdullah Abu Hussein, tals- manns mótsnefndarinnar í Dubai, sem urðu tilefni þessarar gagnrýni Kasparovs nú. í við- tali við blað í Dubai sagði Hussein, er frífarmiðana bar á góma: „Campomanes hefur rétt tit að notfæra sér þessa frá- bæru hugmynd og hagnýta sér hana í kosningabaráttu sinni. Við hikum ekki við að viður- Garri Kasparov kenna, að það var hann, sem átti algerlega hugmyndina að þessu.“ Afstaða Kasparovs til Campomanesar kom enn betur í ljós í gær, er hann sagðist vera viss um, að Brasilíumaður- inn Lincoln Lucena, sem býður sig fram gegn Campomanes sem forseti FIDE, væri sér sam- mála um þær umbætur, sem gera þyrfti innan FIDE. „Ég hef aldrei keypt neina farmiða handa nokkrum rnanni," sagði Lucena aðspurð- ur í gær og kvaðst vera furðu lostinn yfir ummælum Huss- eins. Er Campomanes var spurður um álit á þessu, svaraði hann aðeins: „Ég vil ekkert um það segja.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.