Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
Sovétríkin:
Lög um frjálst
framtak samþykkt á
fundi æðsta ráðsins
Þessar myndir voru nýverið teknar af Nathalie Menigon (t.v.) og Joelle Aubron. Þær eru báðar félagar
í hryðjuverkasamtökunum Action Direct. Konumar tvær em nú eftirlýstar um allt Frakkland vegna
morðsins á Georges Besse, forsljóra Renault-verksmiðjanna.
Frakkland:
Sex millj. settar til
höfuðs morðingium
P»ris AP Rputpr.
París, AP, Reuter.
FRÖNSK yfirvöld hafa heitið einni milljón franka (um sex milljónum
ísl. kr.) fyrir upplýsingar um tvær konur, sem talið er að myrt hafi
Georges Besse, forstjóra Renault-verksmiðjanna, fyrir utan heimili
hans að kvöldi mánudags.
Spjöld höfðu verið límd á veggi
víða í Frakklandi í gær, þar sem
lýst var eftir tveimur konum. A
spjöldunum stóð að þær væru félag-
ar í hryðjuverkasamtökunum
Action Direct og ættu þær að bera
vitni í rannsókn málsins. Lýsing
sjónarvotta var það ónákvæm, að
sögn lögreglu, að ekki er vitað hvort
þær, sem lýst er eftir, hafí framið
morðið.
Útför Besse fer fram á vegum
hins opinbera n.k. laugardag.
Francois Mitterrand forseti og
Jaques Chirac, forsætisráðherra,
ætla báðir að vera viðstaddir. Andre
Giraud, vamarmálaráðherra, ætlar
að halda minningarræðu um for-
stjórann. Þeir voru vinir í háskóla.
Konumar tvær vom nefndar með
nafni á spjöldunum, sem límd voru
upp í gær. Þær heita Nathalie Men-
igon og Joelle Aubron. Menigon var
félagi Jean-Marc Rouillon, sem
ásamt öðrum stofnaði Action Direct
1979. Aubron er kona Regis
Schleicher, sem dreginn verður fyr-
ir dómstóla í desember. Hann og
tveir aðrir félagar í hryðjuverka-
samtökunum eru sakaðir um að
hafa myrt tvo lögregluþjóna á götu
í París.
^ Moskvu^ AP.
Á SOVÉSKA þinginu voru i gær
umræður um ný Iög er leyfa ein-
staklingsframtakinu að njóta sín
meira en verið hefur til þessa.
Lyktaði þessum umræðum með
þvi að lögin voru samþykkt og
taka þau gildi frá og með 1. maí
á næsta ári.
Ivan Gladky, formaður land-
búnaðar- og félagsmálanefndar
ríkisins, lagði nýju lögin fyrir æðsta
ráðið. Hann sagði að þar væri viður-
kennt að einkaframtak, sem þegar
'væri stundað í sovésku efnahag-
skerfí, væri „hagkvæmt". Þess
vegna væri nauðsynlegt að gera ráð
fyrir því í kommúnísku þjóðskipu-
lagi.
Hann bætti við að þeir, sem lögðu
drög að frumvarpinu, hefðu hlýtt á
skoðanir sovéskrar alþýðu og tekið
mið af reynslu í öðrum sósíalist-
aríkjum. Hann nefndi þó hvorki
Ungveija, né Kínveija, sem verið
hafa brautryðjendur í að gera til-
raunir með fijálst framtak.
Fijálsu framtaki verður þó ekkj
leyft að bijótast fram haftalaust. I
lögunum eru tilgreind 29 greinar á
sviði þjónustu og framleiðslu þar
sem einkaframtaki verður gefíð
laus taumurinn. Þar á meðal er
fatagerð og skósmíðar, leikfanga-
gerð og framleiðsla veiðibúnaðar.
Iðnaðarmenn fá leyfi til að gera
við hús, bfla, sjónvörp og útvörp
og eigendur bifreiða mega nota
farartæki sín til leiguaksturs.
Þá mega einstaklingar bjóða upp
á námskeið, sem eru á námskrá
opinberra skóla, og sinna ferða-
mönnum.
Lögin ná til þeirra, sem náð hafa
átján ára aldri, að því tilskyldu að
þeir vinni einnig hjá ríkinu. Þau
gilda einnig um húsmæður, náms-
menn, ellilífeyrisþega og fatlaða.
Þessi lög taka aðeins til fjöl-
skyldna og einstaklinga, því að
samkvæmt stjómarskránni er
bannað að ráða starfskrafta, og
allur hagnaður er skattskyldur.
Vancouver:
Reiði og hneykslun vegna
óhæfuverka Sea Shepherd
Fjölmiðlar krefjast þess að lögum verði komið yfir Paul Watson
Vancouver, Kanada, frá Guðlaugi Bjamasyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÓHÆFUVERKIN, sem Sea Shepherd-samtökin unnu í Reykjavík,
hafa vakið mikla athygli og almenna hneykslun og ísland og ís-
lendingar hafa verið á hvers manns vörum í Kanada og ekki síst
í Vancouver þar sem Paul Watson býr. „Hvað er að gerast,“
spyrja menn, „er borgin að verða griðastaður alþjóðlegra hryðju-
verkamanna?" og i fjölmiðlum hafa komið fram háværar kröfur
um, að ríkisstjómin í Bresku Kólombíu og alríkisstjómin komi
Iögum yfir Paul Watson og áhangendur hans.
Stærsta dagblaðið f Bresku
Kólombíu, The Sun, krefst þess í
mjög harðorðri ritstjómargrein
12. nóvember sl., að alríkisstjóm-
in dragi Paul Watson og fylgilið
hans til ábyrgðar. Kallar það
Watson „sjóræningja og skemmd-
arverkamann" og hvetur til, að
kanadísk skattalög verði endur-
skoðuð svo að menn á borð við
hann geti ekki lifað í vellystingum
á skattfijálsu sníkjufé. Annað
stærsta blaðið, The Province, tók
undir þessar kröfur daginn eftir
og sagði, að væri ekki unnt að
lögsækja Watson samkvæmt
kanadískri refsilöggjöf, yrði ein-
faldlega að breyta henni.
í kosningunum í Vancouver 15.
nóvember bauð Watson sig fram
fyrir Græna flokkinn og sóttist
eftir embætti garða- og skógrækt-
arstjóra. Fékk hann heldur
háðulega útreið en íhaldsflokkur-
inn bar yfírburðasigur úr býtum.
Vitað er, að margir frammámenn
hans hugsa Watson þegjandi þörf-
ina enda er það ekki aðeins á
íslandi, sem hann hefur unnið
óþurftarverkin, heldur líka í
Kanada. Á það einkum við um
Nýfundnaland þar sem Sea Shep-
herd ásamt öðrum náttúmvemd-
arsamtökum hafa svipt selveiði-
menn lífsbjörginni.
„Ég get sagt það, að þetta em
hryðjuverkamenn," sagði John
Boyle, háttsettur maður í
kanadísku alríkislögreglunni, við
fjölmiðla daginn eftir skemmdar-
verkin á íslandi og þykja þessi
ummæli sýna vel hve alvarlegum
augum litið er á athæfí Watsons.
í Kanada er það nefnilega fátítt,
að aðrir en talsmenn stjómvalda
úttali sig um mál af þessu tagi.
Watson og útsendarar hans
hafa komið fram í sjónvarpi og
hafa þau viðtöl síst orðið til að
bæta um fyrir þeim. Hafa þau
vakið mikla reiði meðal fólks því
að í þeim hafa þeir hælst um yfír
grandaleysi íslendinga. Hreyktu
þeir sér af því að hafa notið gest-
risni og hjálpsemi íslensks
almennings, sem gmnaði ekki til
hvers þeir vom komnir. Þessir
menn virðast ekki átta. sig á því,
að Kanadamenn vilja sjálfír vera
gestrisnir og kunna því ekki að
meta óeðli af þessu tagi.
Fjölmiðlamenn hér vestra
segja, að Paul Watson sé einhver
mesti auglýsingamaður í Norður-
Ameríku. í því sambandi hefur
það verið rifjað upp, að hann vakti
einna fyrst athygli á sér með því
að þykjast ætla að róa eintiján-
ingi frá Kanada til Japans.
Skoraði hann á fólk að styrkja sig
með áheitum og lagði síðan af
stað einn morguninn þegar sjávar-
þokan var hvað svörtust. Þegar
ekkert hafði spurst til Watsons í
viku var hann talinn af en þá
komst það upp, að hann hélt til
að hóteli í Seattle og lifði þar eins
og kóngur fyrir áheitin.
Fram hefur komið í ijölmiðlum,
að of mikil umræða um Watson
geti verið slæm að því leyti, að
hún geti orðið honum til fram-
dráttar. Meira en nóg sé til af
„óábyrgu" fólki, sem flykkist und-
ir merki manna á borð við hann.
Yfírvöldin virðast líka óttast, að
formleg kæra gæti orðið til að
gera Watson að einhvers konar
píslarvotti og því bíða menn nú
eftir viðbrögðum íslenskra stjóm-
valda.
Gladky sagði að nýju lögin hefðu
ekki í för með sér að snúið yrði til
einkaframtaksins eins og margir
hefðu vonað í vestrænum ríkjum.
„Frumvarpið að þessum nýju lög-
um á rætur að rekja til þess að
hagkvæmt er að einstaklingurinn
vinni á eigin vegum og frumvarpið
verður að vera í samræmi við
grundvallarreglum sósíalísks hag-
kerfís," var haft eftir Gladky í
skeyti fréttastofunnar TASS.
Fréttastofan sagði síðar í gær
að allt þjóðfélagið myndi hagnast
af þessum lögum. Aldrei áður í sögu
Sovétríkjanna hefur verið skilgreint
svo ljóst væri hvar mörki framtaks
einstaklingsins lægju samkvæmt
kenningum ráðamanna austur þar.
Með fyrri löggjöf hafa „fjötrar
verið lagðir á framtak fólks, sem
vill vinna í frístundum og ríkisfyrir-
tæki hafa átt þess kost að stjóma
neysluvenjum fólks með einokun,"
sagði í ritstjómargrein TASS.
„Nú geta einstaklingar, sem
vinna í eigin þágu, veitt þjónustu
ríkisins harða samkeppni og þar
með stuðlað að hröðum endurbót-
um.
Sovéskt þjóðfélag mun hagnast
vegna þess að grundvallaratriði só-
síalismans eru þess eðlis að vinna
einstaklingsins er í almannaþágu,"
sagði enn fremur í grein fréttastof-
Gæti verið
merki um
valdabar-
áttu í norðri
- segir forsætis-
ráðherra S-Kóreu
Seoul, AP, Reuter.
LHO Shin-yong, forsætis-
ráðherra Suður-Kóreu,
sagði í gær að staðlausar
vangaveltur um að Kim II
Sung, leiðtogi Norður-
Kóreu, hefði verið ráðinn
af dögum, gætu verið merki
um valdabaráttu í kommún-
istaríkinu I norðri.
Kim II Sung batt enda á þess-
ar vangaveltur á þriðjudag þegar
hann tók á móti forseta Mong-
ólíu, Zhambyn Batmunkh, á
flugvellinum í Pyongyang, höf-
uðborg Norður-Kóreu.
Lho Shin-yong sagði á fundi
með opinberum starfsmönnum
og borgurum að tilkynningar,
sem lesnar voru í hátalarakerfi
á vopnahléslínunni milli ríkjanna,
bæru valdabaráttu í Norður-
Kóreu vitni.
„Aftur á móti gæti einnig ver-
ið að þetta hafi verið þáttur í
göróttu ráðabruggi Norður-
Kóreumanna til að slæva
dómgreind okkar,“ sagði forsæt-
isráðherrann.
Fá ríki eru jafn einangruð og
Norður-Kórea og frásagnir af
öllu, sem þar gerist, eru allajafna
reistar á getgátum einum.
ERLENT