Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 2

Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 2
. Framkvæmdasjóður fatlaðra: Fjármálaráðherra legg- ur til að framlög verði hækkuð í 130 milljónir ÞORSTEINN Pálsson, fjármála- ráðherra, lagði til á Alþingi í gær að framlög til Framkvæmdasjóðs fatlaðra yrðu hækkuð úr 100 milljónum í 130 milljónir. Krafa sjóðsins vegna fjárlaga- frumvarps fynr árið 1985 hljóðaði upp á 41 milljón, sem sjóðurinn taldi að vantaði upp á þá upphæð sem sérlög segðu til um. 1985 kom síðan aukafjárveiting upp á 10 millj- ónir og var því munurinn 31 milljón. Síðan segist flármálaráðherra ætla að leyfa aukafjárveitingu fyrir árið 1986 upp á 12 milljónir og er mis- munurinn þá 19 milljónir. Fjárlög fyrir 1987 gera, eins og áður sagði, ráð fyrir 100 milljón króna framlagi í sjóðinn, er þar um að ræða 20 milljón króna hækkun. Hækkunin mun því nema 50 millj- ónum ef tillaga fjármálaráðherra nær fram að ganga. Sjá nánar á þingsíðu, bls. 54-55. Borgarspítalinn: Óvíst hvort samningar verði undirritaðir um helgina ENGIN fundahöld voru um mál- efni Borgarspítalans í gær og óvíst er hvort samningar verði undirritaðir um helgina. Gert er ráð fyrir að Reykjavíkurborg muni eiga 15% í Borgarspítalan- um og ríkið 85%, að sögn Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, en nú- gildandi reglur um byggingu sjúkrahúsa kveða á um slíka Pólýfón og Smfónían: Seinni tónleik- kostnaðarskiptingu. Áður var hlutur sveitarfélaga meiri eða allt upp í 60%. Þennan mismun þarf að reikna út og meta meðal annars með tilliti til af- skrifta. Davíð sagði að engar áætlanir væru uppi ennþá um kaup- verð spítalans, en talað hefði verið um að ríkið greiddi ekki umfram 25 milljónir kr. á ári fyrir Borg- arspítalann. Ekki liggur endanlega fynr hvemig aðilar hyggjast tryggja sjálfstæði spítalans. Hinsvegar hef- ur sú hugmynd komið fram í máli heilbrigðisráðherra að stjóm Borg- arspítalans verði skipuð þingkjöm- um fulltrúum, þeim sömu og skipa stjóm ríkisspítalanna, en að auki fulltrúum starfsmanna Borgarspít- alans. Búist er við að bókun verði um þetta atriði í samningnum. \ Morgunblaðið/RAX Starfsmenn Reykjavíkur- borgar hafa verið iðnir við að moka sandi á gangstéttir undanfarna daga. Þrátt fyrir það verður mörgum fóta- skortur í hálkunni. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Fanney Guðbrandsdóttir var ein þeirra óheppnu sem þurfti að leita aðstoðar á slysadeild Borgarspítalans í gær. Hún kvaðst lítið hafa verið á ferli úti við upp á síðkastið vegna ótta við tiállf.ma. í gær ætlaði hún að bregða sér bæjarleið, rann í hál- kunni og braut aðra hnéskelina. Hún verður því lítið á róli um hátíðarnar. Örtröð á slysadeild vegna hálkuóhappa STARFSFÓLK slysadeildar Borgarspítalans hefur haft í nógu að snúast undanfama daga því mikil hálka hefur verið í höfuðborg- ínni og borgarbúar átt erfitt með að fóta sig. Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu fyrr í vik- unni er eldri konum sérstaklega hætt í hálkunni, því beinþynningar gætir mun fyrr hjá þeim en körlum og þeim er því hættara við beinbrotum. Gunnar Þór Jónsson yfirlæknir sagði að frá kl. 16-23 á miðvikudag hefðu hvorki fleiri né færri en sjötíu manns komið á slysadeild vegna hálku- óhappa, eða tíu manns að meðaltali á klukkustund. a f Wsum siöttu voru tíu manns úlnliðsbrotnir og í flestum tilvikum voru það eldri konur,“ sagði Gunnar Þór. Svipað ástand hefur ríkt á slysadeild- inni síðan. Á töflu sem slysadeild hefur yfir framhandleggs- brot kemur í ljós að við 45 ára aldur fara slík brot að verða mun tíðari hjá konum en körlum. Við 55 ára aldur voru brot hjá körlum aðeins fimm frá 1985-1986, en 35 konur á sama aldri brutu fram- handlegg. Langflestir brotna um jólaleytið, enda hálka þá gjaman mikil og margir á ferli. Það er því full ástæða til að brýna það enn fyrir fólki að fara varlega í hálkunni og það á ekki síst við um ar í dag Endurskoðuð spá Þjóðhagsstof nunnar: PÓLÝFÓNKÓRINN og Sinfóníuhljómsveit íslands ásamt einsöngvurum flytja Messías eftir H&ndel í Hallgrímskirkju í dag kl. 14.00 undir stjóm Ingólfs Guðbrandssonar. Fyrri tónleikamir vom haldnir síðastliðið fimmtu- dagskvöld við mikla hrifningu áheyrenda. Þess skal getið að Messías verður aðeins fluttur í þessi tvö skipti og em því síðustu forvöð fyrir tónlistar- unnendur að hlýða á tónleik- ana í dag. Sjá gagnrýni Jóns Ásgeirs- sonar og myndir frá fyrri tónleikunum á bls. 42. Þjóðartekjur gætu aukist um meira en 8% á þessu ári Meiri hagvöxtur en í nokkru öðru vestrænu iðnríki á árinu ÞJÓÐARTEKJUR á íslandi gætu aukist um meira en 8% á þessu ári og hagvöxtur á mælikvarða landsframleiðslu um 6%. Er það meiri hagvöxtur en í nokkru öðru vestrænu iðnríki á árinu, að því er fram kemur í endurskoðaðri þjóðhagsspá fyrir árið 1986. Um áhrif nýgerðra kjarasamninga á horfur í efnahagsmálum á næsta ári, segir í frétt frá Þjóðhags- stofnun: „Ef aðrir kjarasamning- ar verða á svipuðum nótum, má ætla, að kauptaxtar geti að með- altali hækkað um 16% milli áranna 1986 og 1987 og - að viðbættum áhrifum launaskriðs fastlaunasamninga o.fl. — virðist Verður fiskverð frjálst? Kristján Ragnarsson og Friðrik Pálsson hlynntir því fyrirkomulagi ... « i . i :i ~ .".4. i„.,„ a a hpfiir ákveðnar áhygc TALSVERÐAR líkur eru nú á þvi, að al mennt fiskverð verði gefið fijálst í fyrsta sinn á næsta ári. Nýtt fiskverð á að taka gildi um áramót. Bæði Friðrik Pálsson, for- stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Kristján Ragnarsson, formaður og fram- kvæmdastjóri LÍÚ, eru hlynntir fqálsu fiskverði. Kristján segir það eðUleg viðbrogð við breyttum aðstæðum og Friðrik að flest hafi þróazt í þessa átt á síðustu misserum. Friðrik Pálsson sagði í samtali við Morgun- blaðið, að í um 80% tilfella væri útgerð og fiskvinnsla í eigu sama aðila. Þess vegna kæmi hið skráða verðlagsráðsverð aðeins að fullu fram í viðskiptum milii fimmtungs af þessum hóp. Því væri ekki nema eðlilegt að útgerðarmenn og fiskverkendur veltu því fynr sér hvort ekki væri hægt að ákveða fiskverð með oðrnrn hætti en að deila um það í verðlagsráði. Nuverandi verðmyndun væri i raun aðeins til þess, til þess, að hægt væri að reikna út laun sjó- manna. Hann væri sjálfur hlynntur ftjálsu fískverði allt næsta ár, enda hefði flest þróazt í þá áttina. Fiskverkendur og útgerðarmenn yrðu bara að finna beztu leiðina til þessa. Morgunblaðið leitaði frekari skýringa á þess- um hugmyndum hjá Kristjáni Ragnarssyni, formanni LÍÚ: „Vegna þeirra miklu breytinga, sem átt hafa sér stað með aukinni ferskfisk- sölu, bæði með skipum og gámum og þess, að fyriréjáanlegt er að stofnaðir verði tveir fisk- markaðir, í Reykjavík og Hafnarfirði, í upphafi árs, höfum við velt því fyrir okkur hvort ekki sé ástæða til að endurskoða verðmyndunarkerfi fyrir físk með þeím hætti að gera tilraun með frjálst fiskverð, sem mótist af framboði og eftir- spum,“ sagði Kristján. „Það er ljóst að hið skráða lágmarksverð hefur verið yfirborgað í mun meiri mæli að undanfömu, en átt hefur sér stað áður. Það er því marklítið eins og er. Fólkið á landsbyggðinni hefur ákveðnar áhyggj- ur af stofnun þessara fiskmarkaða her höfuðborgarsvæðinu, þar sem afköst vinnslunn- ar eru meiri en framboð af fiski af skipum, sem gerð em út á þessu svæði. Því megi gera ráð fyrir yfirverði á þessum mörkuðum og fiskur af öðmm svæðum dragizt inn á markaðina. Þetta er breyting, sem ekki hvarfiaði aðokk- ur fyrir stuttu, en mér finnst það þess virði að velta fyrir sér hvort þetta geti ekki venð ^tt viðbrögð við breyttum aðstæðum Margir hafa talið núverandi verðmyndun með íhiutun hms opinbera vera til skaða fynr sj varu - Við teljum að reynslan af f^álsuverði á loðnu þar sem verð hefur verið breyt.legt með t.llit. til framboðs og fjarlægðar verksmiðjannafr miðunum, hafi gefizt vel. Hvorta haupendur tó seljendur kvarta undan þessu. Þvi ekki að ganga alla leið?“ sagði Kristján Ragnarsson. mega reikna með að minnsta kosti 20% meðalhækkun atvinnu- tekna á mann á sama timabili". í frétt Þjóðhagsstofnunar um framvinduna í efnahagsmálum á árinu 1986 segir að útflutningur, einkum á fiski, hafi verið afar mik- ill á árinu. Þótt innflutningur hafi vaxið að undanfömu virðist líklegt að halli á viðskiptum við útlönd verði mun minni en spáð var og gæti jafnvel horfið með öllu og það yrði þá í fyrsta skipti frá árinu 1978 sem það gerðist. í endurskoðaðri þjóðhagsspá seg- ir að atvinnutekjur hafi hækkað að meðaltali um 35% frá árinu 1985 í stað 31% sem gert var ráð fyrir áður. Verðbólgan frá upphafi til loka ársins verði um 12% og kaup- máttur kauptaxta gæti aukist um 11% frá upphafi til loka ársins. í horfum fyrir næsta ár, er gert ráð fyrir að verðbólgan verði 7-8%. Kaupmáttur kauptaxta aukist um 4% að meðaltali frá árinu 1986 og kaupmáttur atvinnutekna um 7-8%. Jafngildir það því að kaupmáttur atvinnutekna hafi aukist um 30% frá árinu 1984. Hagvöxtur á næsta ári gæti orðið um 4% í stað 2% sem gert var ráð fyrir áður. Að lokum er varað við þenslu hér innanlands að undanfomu og bent á að tölverð óvissa ríki um fram- vinduna næstu mánuði, jafnframt því sem að meiri launahækkanir en nýgerðir kjarasamningar gera ráð fyrir geti leitt til aukinnar verðbólgu og vaxandi viðskiptahalla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.