Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
Vörubílstjórar telja
kjarasamningana bijóta
gegn sljórnarskránni
BÍLSTJÓRAR á Vörubifreiða-
stöðinni Þrótti telja að ákvæði í
nýgerðum kjarasamningi Al-
þýðusambandsins og Vinnuveit-
endasambandsins varðandi
Grindavík-
urvegurinn
stórhættuleg-
urvegna hálku
Grindavík.
JEPPI valt á hliðina á Grindavík-
urveginum í gær í miklu roki og
hálku og skemmdist mikið. Engin
meiðsl urðu á ökumanni og far-
þega.
Grindavíkurvegurinn er oft stór-
hættulegur á vetuma vegna hálku
þar sem ekki má bera á hann salt.
Við aðstæður eins og í gær þegar
saman fer mikið rok og asahláka
er hann nánast óökufær.
Kr. Ben.
Slasaðist í
strætisvagni
FULLORÐINN karlmaður slas-
aðist í óhappi sem varð á mótum
Hverfisgötu og Snorrabrautar
um hádegið í gær.
Slysið varð með þeim hætti að
strætisvagni var ekið upp Hverfís-
götu. Að sögn sjónarvotta var
vagninn á töluverðri ferð þegar að
gatnamótunum kom. Þá breyttust
umferðarljósin og vagnstjórinn
snögghemlaði. Maðurinn sem slas-
aðist féll mjög harkalega í gólfið
og var fluttur á slysadeild. Meiðsli
hans munu ekki vera mikil, en hann
kvartaði undan sársauka í höfði og
baki.
Framsókn á
Vestfjörðum:
Veður tefur
talningu í
P A1 ••• •
profkjori
FRESTA varð talningu i próf-
kjöri Framsóknarflokksins á
Vestfjörðum.sem fram átti að
fara í gær, þar sem ekki var
hægt að fljúga á milli Patreks-
fjarðar og ísafjarðar.
Búið er að safna kjörgögnum saman
á þessum tveimur stöðum og stóð
til í gær að fljúga með kjörgögn
frá Patreksfirði til ísafjarðar og
telja þar í Framsóknarhúsinu. Að
sögn Sigurgeirs Magnússonar kjör-
stjóra verður það gert um leið og
veður leyfir.
vörubílstjóra, brjóti gegn 69.
grein stjórnarskránnar um at-
vinnufrelsi og hafa því skorað á
stjórn og trúnaðarmannaráð
Landsambands vörubifreiða-
stjóra að fella kjarasamningana.
Það ákvæði sem um ræðir er
viðbót við 6. grein kjarasamnings
félagsins og er á þessa leið: „Land-
sambandið skuldbindur aðildarfélög
og félagsmenn sína til þess að
stunda ekki atvinnurekstur, hvorki
verktakastarfsemi samkvæmt
reikningi né taka þátt í útboðum
um verkframkvæmdir."
Þá telja vörubflsjórar hjá Þrótti
að viðbót við 5. grein kjarasamning-
anna feli í sér skerðingu á rétti
félagsmanna til leiguaksturs. Þessi
grein er þannig: „Þá er verktakafyr-
irtækjum innan Verktakasambands
Islands og Félags vinnuvélaeigenda
fijálst, að nota eigin bifreiðar og
flutningatæki til alls nauðsynlegs
flutnings í tengslum við verkfram-
kvæmdir, sem þau hafa tekið að
sér, með samningi við verkkaupa
eða aðalverktaka." Þetta telja
bflstjórar stangast á við lög um
leigubifreiðar frá 1970, þar sem
vörubflstjórum er tryggður einka-
réttur á Ieiguakstri vörubifreiða, því
með þessari viðbót við kjarasamn-
ingana sé verktökum frjálst að
leigja hver öðrum bfla.
„I kjarasamningum á að semja
um kaup fyrir menn og bíla en
ekki að bijóta lög og með því að
samþykkja þennan samning værum
við að afsala okkur öllum þeim rétti
sem við höfum sem atvinnubílstjór-
ar,“ sagði Bragi Siguijónsson
formaður vörubflstjórafélagsins
Þróttar, í samtali við Morgunblaðið.
Kort til styrktar
Hallgr ímskirkj u
KVENFÉLAG HaUgrímskirkju
hefur látið framleiða kort, en
sala þeirra verður til styrktar
kirkjunni.
A kortunum eru ljósmyndir af
kirkjunni, teknar af Jóni Ogmundi
Þormóðssyni, og var önnur þeirra
tekin við vígslu kirkjunnar 26. októ-
ber 1986.
Tónlistarskóli Grindavíkur:
Jólatónleikar í
Gnndavíkiirkirkju
Grindavík.
ÁRLEGIR jólatónleikar Tónlist-
arskóla Grindavíkur verða
haldnir í Grindavíkurkirkju á
morgun, sunnudag, kl. 16.00.
Efnisskráin er Qölbreytt að
vanda, meðal annars verður einleik-
ur á píanó, trompett og túbu.
Blásarakvartett kemur fram. Enn-
fremur munu allir forskólanemend-
úr skólans flytja saman jólalög á
blokkfiautur. LuOrasveit skólans
leikur jólalög frá ýmsum löndum
og að lokum mun nýr samkór tón-
listarskólans syngja, en hann vakti
mikla athygli á aðventukvöldi um
síðustu helgi.
Kennarar við skólann eru fimm
og hefur nemendum Qölgað gífur-
lega frá síðasta ári og fylla hundr-
aðið í dag. Kr. Ben.
Mikill vatnselgur myndaðist á Breiðholtsbraut undir Elliðaárbrúnum. Morgunbiaðíð/Júiíua.
Reykjavík:
Mikíll erill hjá lögreglunni í gær
MIKLAR annir voru hjá lögreglunni í
Reykjavílt í gær og urðu yfir 30 árekstrar
í höfuðborginni.
Slæm færð var á Hellisheiði og á Suðumesjum
vegna hálku og voru lögreglumenn þar ökumönn-
um til aðstoðar. Á nokkrum stöðum í borginni
myndaðist mikill vatnselgur og var umferð sér-
staklega beint frá Reykjanesbrautinni undir
Elliðaárbrúnum, Kringlumýrarbraut í Fossvogi og
frá mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.
Ekið var á ljósastaur á Suðurlandsvegi við
Rauðavatn og var ökumaður fluttur í slysadeild.
Hann hafðisjálfur gengið frá slysstað að lögreglu-
stöðinni í Árbæ til að gera viðvart. Meiðsl voru
ekki talin alvarleg. Bifreiðina varð að flytja í burtu
með kranabfl. Þó nokkuð var um að ökumenn
læstu lykla sína í bílum sínum og þurfti lögreglan
t.d. að opna 11 bíla um miðjan dag í gær.
Snót í Vestmannaeyjum felldi samningana:
Oánægja með afnám
starfsaldurshækkana
„AÐALÓÁNÆGJAN virtist vera
með það að starfsaldurshækkan-
ir i fiskvinnslu skyldu detta út,
sagði Vilborg Þorsteinsdóttir
formaður Verkakvennafélagsins
Snótar í Vestmannaeyjum, en
félagið felldi nýgerða aðalkjara-
samninga Alþýðusambands
íslands og Vinnuveitendasam-
bands íslands á fundi á fimmtu-
dagskvöldið. Félagið hefur
myndað samninganefnd skipaða
Laugavegur-
inn opinn allri
umferð í dag
270-300 bifreiðir rúm-
ast á stæðum, sem
opnuð verða í dag
VERSLANIR verða opnar frá kl.
9.00 til 18.00 í dag, laugardag,
og verður Laugavegurinn jafn-
framt opinn allri umferð eins og
venjulega. Búast má þó við mik-
illi umferð í dag og verða bif-
reiðastæði eflaust af skornum
skammti.
Baldvin Ottósson, varðstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að tvö stór bifreiðastæði yrðu tekin
í notkun í dag vegna jólaumferðar-
innar. Port Eimskips við Faxaskála
verður opið fyrir bifreiðastöður og
er keyrt inn á stæðið frá Kalkofns-
vegi. Hinsvegar verða bifreiðastöð-
ur leyfðar í Mjölnisholti þar sem
áður var timburverslun Áma Jóns-
sonar. Keyrt er inn á það stæði frá
Brautarholti. Þessi stæði munu
rúma í mesta lagi 270 til 300 bif-
reiðir, að sögn Baldvins.
Hann bætti því þó við að heppi-
legast væri að fólk notaði almenn-
ingsvagnana á morgun, en þeir
ganga á hálftíma fresti eins og
venjan er um helgar. Búist er þó
við að setja þurfi inn aukavagna á
fjölfömustu leiðunum.
Laugaveginum verður lokað
næsta laugardag frá kl. 13.00, en
þá verða verslanir opnar til kl.
22.00.
fólki frá öllum stærstu fisk-
vinnslufyrirtækjum í Eyjum og
hefur nú óskað eftir sérviðræð-
um við vinnuveitendur.
I samningunum er gert ráð fyrir
að hlutur bónus í heildarlaunum
fískvinnslufólks minnki en fasta-
kaupið hækki og á fundinum kom
fram að félagsmönnum þótti taxta-
hækkunin ekki vera nægjanleg til
þess að það borgaði sig að draga
úr bónushlutanum. Vilborg sagði
að samkvæmt samningunum töpuð-
ust 23 krónur með hæstu nýtingu
í bónus sem kæmu til baka með
hærra fastakaupi upp að 15 ára
starfsaldri en eftir það bæri viðkom-
andi ekkert úr býtum. „En það er
ekki aðeins þetta heldur tók langan
tíma og mikla baráttu að fá starfs-
aldurshækkanimar inn í samning-
ana og það er grundvallaratriði að
missa þær ekki út aftur," sagði
Vilborg.
Vilborg bætti við að inn í þessi
viðbrögð við kjarasamngingunum
hefði sjálfsagt einnig spilað upp-
söfnuð óánægja með atvinnumál
fiskvinnslufólks í Vestmannaeyjum,
vegna stóraukins útflutnings á
ferskum físki í gámum. „Atvinnu-
ástandið hefur verið þannig hér að
ekki hefur verið hægt að auka tekj-
umar með því að vinna meiri
næturvinnu, því hún hefur einfald-
lega ekki verið til staðar. Þær
launahækkanir sem komið hafa
handa þessum hópi hafa verið lág-
ar, það er dýrt að búa hér eins og
víðast úti á landi og það er verið
að mótmæla þessu ástandi yfir höf-
uð,“ sagði Vilborg Þorsteinsdóttir.
„Vinnuveitendur hafa rætt þessa
stöðu sem nú er komin upp eftir
að Snót hefur fellt samningana og
skilja vel að upp hafí komið óá-
nægja hjá fólki með 15 ára starfs-
aldur,“ sagði Amar Sigurmundsson
framkvæmdastjóri Samfrosts sem
er sameiginlegt fyrirtæki fisk-
vinnslustöðvanna í Vestmannaeyj-
um. Amar sagði að vinnuveitendur
myndu að sjálfsögðu verða við ósk
Snótar um viðræðufund en ekkert
hefði verið ákveðið hvenær sá fund-
ur yrði.
Gamli miðbærinn:
Uppákomur verða
í miðbænum í dag
LÚÐRABLASTUR, ljóðalestur og jólasveinasöngur mun hljóma í
miðbænum í dag. Það eru samtökin Gamli miðbærínn sem skipu-
leggja þessar uppákomur.
Dagskrá samtakanna hefst kl.
10.00 þegar nemendur í Myndlista-
og handíðaskóla íslands opna list-
munasölu á verkum sínum í
Hlaðvarpanum. Kl. 14.00 þeytir
Lúðrakvintettinn Tónhirðamir horn
sín á Hlemmtorgi og leikur nokkur
„lög með léttri sveiflu", eins og
segir í fréttatilkynningu samtak-
anna. Þegar kvintettinn hefyr lokið
leik sínum hefur Kjartan Árnason
ljóðalestur úr bók sinni „Dagbók
Lasarusar".
Um kl. 15.00 heflast Unglinga-
tónleikar á móts við Vegamótaútibú
Landsbankans, þar sem Sverrir
Stormsker og Herbert Guðmunds-
son kynna nýútkomnar plötur sínar.
Á sama tíma hefst bókmenntakynn-
ing i Gauk á Stöng. Þar verður lesið
úr verkum sjö rithöfunda. í Hlað-
varpanum stígur Kvennabandið á
svið um þetta leyti, ásamt söng-
kvartettinum Ömmusystrum, og
stundu síðar hefst bamaskemmtun.
Þar verða jólasveinar meðal gesta,
en þeir munu stinga upp kollinum
hér og þar í bænum í dag.
H"
■