Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 56
.56
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
Fallegir
postulínsvasar
Verð frá kr. 350.-
Eigum ótrúlega mikið úrval
af fallegum og vönduðum
postulínsvösum.
KK-
ISllll
15 simi 14320
Fiðurfé og fram-
leiðsluslj ómun
*
Abendingar til fuglabænda á villigötum
og talsmanna landbúnaðarkerfisins
eftir Jónas Bjarnason
Glímutök um framleiðslumál
fuglaafurða eru orðin næstum ár-
viss. Síðustu tilraunum sumra
eggja- og kjúklingabænda til að
koma á framleiðslustjómun með
kvótakerfí hefur verið hrundið með
sannfærandi hætti, en aðilar vinnu-
markaðarins hafa nú fengið stað-
festingu ríkisstjómarinnar á því,
að ekkert verði úr slíkri framleiðslu-
stjómun. Kartöfluskatturinn
umdeildi var skotinn í kaf í sömu
atlögu gegn miðstýringarhersveit-
um landbúnaðarins, en framrás
þeirra hefur nú verið stöðvuð og
meira til.
í miðri glímunni að undanfömu
mátti heyra sjónarmið frá sumum
fuglabændum svo og sjálfum land-
búnaðarráðherra, sem eru algjör
tímaskekkja og benda til þess, að
hinir sömu hafí algjörlega rangt
mat á aðstæðum nú á íslandi. Þessi
grein er nú skrifuð til að benda á
veilur í málflutningi stuðnings-
manna framleiðslustjómunar og til
að skýra nokkuð afstöðu Neytenda-
samtakanna til málsins í því skyni
að reyna að fá framleiðendur fugla-
afurða til að snúa sér að alefli að
þeim verkefnum, sem þeir eiga að
veija sinni starfsorku til. Verkefn-
in eru að framleiða gæðavörur á
sem lægstu verði í sátt og sam-
lyndi við islenska neytendur í
stað þess að bralla stöðugt undir
handarjaðri landbúnaðarráð-
herra, sem er vopnaður vægast
sagt úreltri löggjöf um fram-
leiðslumál landbúnaðarins. Ef
reynt verður að misnota enn frekar
vafasamar lagaheimildir, getur sjálf
löggjöfín í heild sinni verið í hættu
vegna þess, að íslenskir neytendur
hafa nú margar leiðir til að bijóta
á bak aftur ósanngjamar og óeðli-
legar tímaskekkjur í valdabraski
landbúnaðarkerfísins.
Um málflutning
talsmanns Félags
kjúklingabænda
Haft er eftir Jónasi Halldórssyni,
formanni Félags kjúklingabænda, í
Mbl. 6.12. sl., að kjúklingabændur
væm í miklum vandræðum vegna
langvarandi offramleiðslu, en hana
kvað formaðurinn vera 300—400
tonn á ári og leiða til undirboða á
markaðnum. Hann sagði ennfrem-
ur, að kjúklingabændur sæju ekki
möguleika á því að komast út úr
þessu nema með því að styðjast við
heimildir í lögum um framleiðslu-
stjómun. „Við getum ekki verið
launalausir frekar en aðrir hópar í
þjóðfélaginu," sagði hann einnig.
Varðandi ofangreind atriði, sem
og margt annað, sem formaðurinn
sagði, er margt að athuga. Augljóst
er, að sumir fuglabændur með
formann Félags kjúklingabænda í
broddi fylkingar hafa tæpast áttað
sig á sínu hlutverki. Formaðurinn
ræðir um heildarkvóta á kjúklingum
upp á 2.260 tonn á ári og hafí fram-
leiðendur þegar náð samkomulagi
um skiptingu hans sín á milli. Heyr
á endemi. Er þetta eitthvert
einkamál einhverra framleið-
enda? Koma neytendur þessu
máli ekkert við? Málflutningur af
þessu tagi af hálfu framleiðenda
er algjör tímaskekkja og í raun
móðgun við íslenska neytendur.
Kjúklingakjöt er um allan vestræn-
an heim ódýrasta kjötið á almenn-
um matvælamarkaði vegna þess,
að mjög skýrar og skiljanlegar
ástæður liggja því að baki, að kjúkl-
ingalqöt er hagkvæmasta kjöt-
ISLENSKU STEIKARPONNURNAR
MEÐ 10 FRÁBÆRA EIGINLEIKA M.A. SLITSTERK
HÚÐ, SEM EKKI FESTIST VIÐ (EXCALIBUR)
Handfang þolir
hitaalltað280°C
o
Jöfn hitadreifing
þarf minni orku
o
Pannan hitnar hratt
og jafnt
Excaliburhúð,
sem ekki festist við
Slitsterk
o
Stækkuð teiknuð mynd af yfirborði L00K pönnu
Tvö lög af húð
Ryðfríar stálagnir
Steypt ál
Excalibur er marglaga húð mei stálögnum, sem
auka styrk og endlngu. Eiealibvr er bresk uppfinning
„Vöfflubotn" þarf minni feiti og
maturinn verður fituminni og holl-
ari
Botninn breytir
sér aldrei og er
Hentar á |aus við hitabletti
rafmagns-, gas-
og keramikhellur
Utsölustaðir:
Akranes ....................Verslunin Valfell
Akranes ....................Verslunin Skagaver
Borgarnes ..................Kf. Borgfirðinga
Stykkishólmur ..............Hólmkjör
Búðardalur .................Kf. Hvammsfjarðar
ísafjöröur .................Vöruval
ísafjöröur ..................Straumur
Blönduós ...................Kf. Húnvetninga
Blönduós .................v..Verslunin Vísir
Sauöárkrókur ...............Skagfiröingabúö
Ólafsfjöröur ...............Verslunin Valberg
Akureyri ...................K.E.A.
Akureyri ...................Hagkaup
Akureyri ....................Amaro
Húsavík .....................Kf. Þingeyinga
Mývatnssveit ................Verslunin Sel
Þórshöfn ....................Kf. Langnesinga
Egilsstaöir .................Kf. Hóraösbúa
Reyðarfjörður ...............Kf. Héraösbúa
Eskifjöröur .................Eskikjör
Neskaupstaður ...............Kf. Fram
Hvolsvöllur .................Kf. Rangæinga
Helia .......................Kf.Þór
Selfoss .....................K.Á.
Keflavík ....................Stapafell
Njarövík ....................Hagkaup
Hafnarfjöröur ..........Búsáhöld og leikföng
Hafnarfjöröur ...........Kf. HafnfirÖinga, Miövangi
Reykjavík ...............H. Biering
Reykjavík ...............Hamborg
Reykjavík ...............Jes Ziemsen
Reykjavík ...............B. V. búsáhaldad.
Reykjavík ..............Búsáhöld og gjafavörur
Reykjavík ...............Lissabon
Reykjavík...............Domus Heildsöludreifing:
Reykjavík ..............Hagkaup - . ...
Reykjavlk ...............Mikligarður AmarO-heildV.,
Reykjavík ...............Kaupstaður e 96-22831
Reykjavík ..............J.L.húsið
framleiðslan. Kjúklingar nýta til
fóðurs hagkvæmustu fóðurtegund-
imar og hafa bestu fóðumýtinguna
og skila auk þess afurðum fljótast
af öllum kjötgripum. Þessar stað-
reyndir hafa leitt til þess, að
kjúklingar em víðast hvar ódýr og
vel séður matur, sem er á hvers-
dagsborðum almennings í öllum
nágrannaiöndum. Hér á landi hafa
kjúklingar aftur á móti verið allt
of dýrir, þótt fagna megi þeim hlut-
fallslegu verðlækkunum, sem orðið
hafa undanfarin ár. Landbúnaðar-
kerfíð hefur ógnað þessari fram-
leiðslu með kjamfóðurgjaldi, sem
hefur tekið sífelldum breytingum.
Neytendasamtökin hafa reyndar
talið meðferð á kjamfóðurgjaldi
stangast á við 40. gr. stjómarskrár-
innar og hefur meðferð Pálma
Jónssonar, fyrrverandi landbúnað-
arráðherra, á þeim málum þegar
verið dæmd af í Hæstarétti.
Af öllum þessum sökum sem og
ýmsum öðmm, sem ekki er hér
tækifæri til að ijalla nánar um, er
neysla á kjúklingum of lítil á ís-
landi, og því er allt tal um offram-
leiðslu af hálfu framleiðenda í
vandræðum út í hött. Þeim væri
heldur nær að taka höndum saman
við íslenska neytendur í stað þess
að kyssa vöndinn eða heiðra skálk-
inn. Markmið framleiðendanna ætti
miklu frekar að vera að fá aflétt
íhlutunarvaldi hefðbundinna bú-
g^eina, sem em vissulega í stökustu
vandræðum, og velja sér þá einu
bandamenn, sem byggjandi er á í
framtíðinni, þ.e. íslenska neytend-
ur.
Að nafni minn Halldórsson kvarti
undan því að hann fái ekki laun
eins og aðrir er ekkert mál, sem
hann getur borið á borð almennings
svona. Kjúklingaframleiðsla er orð-
inn þróaður atvinnurekstur, en
launaliður framleiðslunnar fer stöð-
ugt minnkandi. Það þýðir lítið fyrir
atvinnurekendur t.d. í húsgagna-
framleiðslu að kreíjast þess, að
settir verði kvótar á húsgögn til
þess að forstjórar fýrirtækjanna fái
þau laun, sem þeir telja sig þurfa.
Þessi málflutningur er allt of gagn-
sær og Adam gamli Smith lýsti
slíkri hugsun fyrir rúmum tvö
hundmð ámm. Þeir atvinnurekend-
ur, sem reka sín fyrirtæki vel og í
samræmi við aðstæður, eiga að
sjálfsögðu að fá sína umbun, en
krafa um kvótakerfí er algjörlega
fráleit og hef ég trú á því, að allur
almenningur hafí áttað sig á því.
Þótt gripið hafí verið til þeirra neyð-
arráðstafana í hefðbundnum
búgreinum að úthluta kvótum í
formi fullvirðisréttar, þá em að-
stæður í þeim greinum allt aðrar
en í fuglaræktinni. Undirritaður
hefur trú á því, að það kvótakerfí
fái ekki staðist fyrir stjórnarskránni
og verði við lýði aðeins um sinn.
Mýs undir fjalaketti
Landbúnaðarráðherra svaraði
fyrirspum frá Karli Steinari Guðna-
syni um umrætt mál á Alþingi þann
4.12. sl. á þann hátt, að hann myndi
fara að ósk meirihluta framleiðenda
varðandi framleiðslustjómun. Enn-
fremur upplýsti hann, að kjúklinga-
bændur hafí óskað eftir kvótaskipt-
ingu.
I ljósi meðferðar á fuglabændum
með áðurlýstu kjamfóðurgjaldi og
heimildum í nýjum búvörulögum
um framleiðslustjómun (30. gr. C.)
getur ráðherra fengið marga fram-
leiðendur til að skrifa nánst undir
hvað sem er. Þeir eru nauðbeygðir
til að hirða upp alla þá brauðmola,
sem htjóta af borði hefðbundins
landbúnaðar. Ráðherra gat þess
hvergi, að þeta væri mál, sem snerti
íslenska neytendur. í ljósi þessa
alls eru fyrirliggjandi óskir ein-
_