Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 80
BLACK&DECKER
80
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
SNÚRULAUSI
HANDÞEYTARINN
er framtídartækid
í nútímaeldhúsið
Tilvalin jólagjöf
verð með hleðslutæki
og veggfestingu: Kr. 1820
Raftækja- og heimilisdeild
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Siml 695550
r ♦ ♦
I ORBYLGJUOFNUM FRA
SAMSUIMG
RE-650D
MÆTIR A STAÐINN
MEÐ SÆLGÆTI
í POKAHORNINU
RE-650K
Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) - Sími 622025
Kveðjuorð
RagnarH.
Einarsson
Fæddur 13. júlí 1959
Dáinn 1. desember 1986
Líf og dauði. Hvað tákna þessi
orð og hversu stutt er bilið þar á
milli. Langt er síðan við höfum orð-
ið fyrir annarri eins sorg og heltek-
ur okkur hjónin nú við fráfall
elskulegs tengdasonar okkar,
Ragnars Heiðars Einarssonar, að-
eins 27 ára að aldri.
Aldrei hefur vetrarmyrkrið verið
svona svart, en vonin um að aftur
vori og birti til gefur okkur kraft
til að horfa fram á veginn.
Við kynntumst Ragnari fyrst
þegar hann kom til að vitja Erlu
dóttur okkar, sem þá var 16 ára
að aldri og bjó enn í foreldrahúsum.
Ragnar var fljótur að átta sig á því
að Erlu vildi hann eignast sem eig-
inkonu og stofna með henni heimili.
Snemma gaf hann sig á tal við til-
vonandi tengdamóður sína og
spurði hvað henni fyndist um slíkan
ráðahag. Við höfum alltaf metið þá
tillitssemi sem hann sýndi okkur
með þessu, og er að við best vitum
afar sjaldgæft, að foreldrar séu
hafðir með í ráðum eða fái atkvæða-
rétt í svona málum.
Svo fór að brúðkaup þeirra var
haldið þann 9. september 1978.
Saman stofnuðu Ragnar og Erla
síðan heimili í Reykjavík, og unnu
strax hörðum höndum, til að geta
eignast sitt eigið húsnæði. Þá var
nótt lögð við dag hjá Ragnari, sem
var góður trésmiður og eftirsóttur
vegna vandvirkni.
Tíminn leið og hin langþráða
stund rann upp þegar þau gátu flutt
í húsið sitt í Garðabæ. Ragnar og
Erla eignuðust tvær yndislegar
dætur, Rut, fædda 7. júní 1978 og
Rakel, sem fæddist 1. febrúar 1985,
og hafa þær systur misst mikið við
fráfall elskulegs föður. Saman átti
fjölskyldan öll skíðaáhugann og
stunduðu þau þá íþrótt þegar færi
gafst. Eins og áður sagði var Ragn-
ar góður smiður og vandvirkur, og
verður verka hans minnst meðan
við lifum, þar sem hann átti stóran
þátt í byggingu húss okkar. Þar
kom hjálpsemi hans best í ljós, og
voru þau mörg handtökin sem hann
átti með tengdaföður sínum, og eru
hér af hjarta þökkuð.
Ragnar vár fæddur á Siglufirði
og átti sá staður hug hans allan.
Aldrei gat hann lofað fjörðinn sinn
nóg. Sjórinn heillaði hann einnig
og draumur hans var að fá réttindi
til að stýra bát og öðlaðist hann
þau tveimur dögum eftir burtköll-
unina.
Við trúum því að það hjálpi hon-
um til að stýra fleyi sínu heilu í
höfn til þess algóða föður, sem beið
hans handan hafsins. Við viljum að
lokum biðja Guð að blessa og
styrkja foreldra hans og systur og
aðra ástvini í hinni djúpu sorg.
Elsku Erla mín, Rut og Rakel,
þið hafið misst mikið, en eingöngu
af því að þið áttuð mikið. Guð lækn-
ar sárin um síðir. Megi hann vaka
yfír hveiju fótspori ykkar og blessa
ykkur minningamar.
Hvíl í friði.
Elsa og Maggi