Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 23 Heimilið — homsteinn þjóðfélagsins eftir Maríu Yngvadóttur Borgarstjómarkosningar og tvö prófkjör settu vissulega svip sinn á starfsemi Hvatar, félags sjálfstæð- iskvenna í Reykjavík, síðastliðið starfsár. Staðið var að kynningum á kven- frambjóðendum, á fundum og í fréttabréfi félagsins. Næstu mánuði mun Hvöt verða virkur þátttakandi í undirbúningi komandi alþingis- kosninga, t.d. verða haldnir fundir og ráðstefnur um ýmis áhugaverð málefni og þá í samráði við mál- efnanefndir flokksins. í febrúar næstkomandi verður haldið upp á fimmtíu ára afmæli félagsins og verður af því tilefni margs að minnast úr sögu félags- ins. Félagskonur í Hvöt hafa í gegnum tíðina látið sig varða öll þau málefni sem varða hag og heill þjóðarinnar. Ég tel að allt það er varðar fjölskylduna, hag hennar og hamingju, sé grunnforsenda allra okkar gerða og ákvarðana. Sú kyn- slóð, sem nú er að ala upp böm, átti því láni að fagna að alast upp við þær aðstæður að mæðurnar vom heimavinnandi, og þar með þeim öryggispunkti sem var til stað- ar á heimilinu. Þetta breyttist með tímanum, með meiri menntun kvenna og auknum áhuga á að vinna utan heimils, enda þarf tvær fyrirvinnur oft á tíðum til að sjá fyrir fjölskyldu. Þessar breytingar á okkar lífsháttum hafa valdið því að böm alast meira eða minna upp á dagvistarstofnunum og síðan tek- ur skólinn við, en hans þáttur í uppeldinu er alltaf að aukast. Ég María Yngvadóttir „Vel mætti hugsa sér að það foreldri sem kýs að gæta síns barns sjálft fái í sínar hendur þá upphæð sem borgin eða viðkomandi sveitar- félag mundi annars greiða með barninu á dagvistarstofnun. “ tel að kominn sé tími til að staldra aðeins við. Heimilin verða alltaf sá homsteinn sem þjóðfélagið byggir á. Til þess að svo megi vera þarf að huga að leiðum til að gera öðru hvoru foreldranna kleift að vera heima meðan bömin eru ung og þurfa mest á foreldrunum að halda. Vel mætti hugsa sér að það for- eldri sem kýs að gæta síns bams sjálft fái í sínar hendur þá upphæð sem borgin eða viðkomandi sveitar- félag mundi annars greiða með baminu á dagvistarstofnun. Launamisrétti viðgengst enn þann dag í dag, þrátt fyrir lög og reglur sem banna slíkt, og stað- reyndin er einnig sú að konur em fleiri en karlar í svokölluðum lág- launastéttum. Foreldrar hafa því yfírleitt ekkert val um það hvort þeirra vill vera heima, launin hljóta að ráða mestu þar um. Ég held að hvorki sjálfstæði kon- unnar né starfsframi verði á nokkum hátt hnekkt þótt hún taki þá ákvörðun að veija 10—15 ámm til uppeldis bama sinna. Þar sem möguleikar em fyrir hendi gæti það eins vel verið faðirinn. Ég geri mér líka grein fyrir því að málið horfír öðm vísi við fyrir einstæðu foreldri. Metnaður er öllum nauðsynlegur, og starfsframi er ofarlega á blaði hjá mörgum og það er vissulega af því góða. En frami foreldranna getur varla verið þeim mikils virði ef hann er á kostnað bamanna, öryggiskenndar þeirra og ham- ingju. Éf rekja má rótleysi og vímuefna- vandamál unglinga í dag til sambandsleysis við foreldra er tími til kominn fyrir foreldra að líta í eigin bam. Þeir mættu íhuga hvort heimilið er sá uppeldisstaður, sem það ætti að vera, staður þar sem bömin fá það öryggi og umhyggju sem er þeim svo nauðsynlegt á þeirra þroskaferli, staður þar sem þau læra að bera umhyggju fyrir öðram. Höfundur er formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Vorum að taka upp vörur frá M'ADE IN GERMANY Hvertisgötu 64a, sími 25260. í dag milli kl. 2 og 4 í verslun okkar að Hafnarstræti 3. <1 /T\\/T 1 p V 'J I 1 I 1 á 1 o il J Elna er saumavél sem kemur þér á óvart. Sérstaklega meðfærileg og prýdd öllum þeim kostum, sem nauðsyn- legir þykja, svo sem tvöfaldan lokusaum (overlock), sjálvirka gerð hnappagata og margan annan fjölbreyti- legan saum. Elna, er heimsþekkt fyrir frábærar saumavélar. Þú ættir að líta við og kynna þér kosti Elna. Heimilistæki hf HAfWiBSWÆ T4a-204%-SÆTyN(-8 - 8* 2V50G-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.