Morgunblaðið - 13.12.1986, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
77
kanna hvert aðrar þjóðir eru
komnar í móðurmálskennslu.
3. Horfíð verði af óheillabraut
stundakennslunnar og stefnt að
því að 90% allrar kennslu í Kenn-
araháskólanum (og öðrum
háskólum landsins) verði í hönd-
um fastra kennara með a.m.k.
45% rannsóknarskyldu fyrir
1990. Þetta er sérlega brýnt í
íslensku vegna þess hve þörfin
á innlendum rannsóknum er
mikil. Kennaraháskólinn brást
þannig við lögeggjan Sverris
Hermannssonar í fyrra að
íslenskukennsla var endurskoð-
uð og aukin eftir föngum,
einkum á sviði málnotkunar og
mun nú torfundinn sá skóli sem
betra eftirlit hefur með málfari
og framsetningu ritgerða en
KHÍ. Til að sinna allri þessari
kennslu þarf minnst þrjá lektora
í dagvinnu í viðbót við þá sem
fyrir eru.
4. Liðkað verði um fyrir íslensku-
kennurum á öllum skólastigum
til að sinna rannsóknum og
semja kennsluefni með því að
veita þeim kennsluafslátt eða
sérstaka rannsóknastyrki. Sjálf-
sagt er að Kennaraháskólinn
gegni hér lykilhlutverki, t.d.
skipuleggi, samræmi og veiti
fræðilega aðstoð.
Pjárlög eru nú til meðferðar á
Alþingi. Menntamálaráðherra vill
efla máluppeldi þjóðarinnar, flestir
Alþingismenn eru sama sinnis. Eft-
ir hveiju er beðið? Þorsteini Páls-
syni? Ef menn hugleiða hve ódýrt
vinnuaflið er á íslandi miðað við
kostnað af ýmsum „verklegum
framkvæmdum" ætti jafnvel sá
bjöminn að vinnast auðveldlega.
Eitt er víst, ekki stendur á vilja
Kennaraháskólans að axla það hlut-
verk sem menntamálaráðherra
hefur falið honum í uppeldi þjóðar-
innar. En til þess er hann með öllu
vanbúinn eins og er.
Ég hef alloft vitnað í setningar-
ávarp menntamálaráðherra frá
fyrsta desember í fyrra. En yfír-
skrift þess í Morgunblaðinu hljóð-
aði:
„Hér er um tilverurétt
íslenskrar þjóðar að tefla“
Ég spyn Hvað mun sá réttur
mega kosta?
Verk sem vísað er tíl:
Kristján Kristjánsson. „Hugvekja um orð-
list, kennslufræði og fagroennsku I (efnið
og orðin) — II (Uppgötvunarnám — mót-
tökunám)**. Lesbók Mbl., 6. og 20. septemb-
er 1986. Indriði Gíslason, Randa Mulford
(og) Ásgeir S. Björnsson. HUpp vek þú
málið mitt“. Athöfn ogorð. Afmælisrit helg-
að Matthíasi Jónassyni, ritstj. Siguijón
Björnsson, bls. 107—114. Reykjavík, Mál og
menning, 1983.
Indriði Gíslason, Sigurður Konráðsson (og)
Benedikt Jónasson. Framburður og myndun
fleirtölu hjá 200 íslenskum börnum við fjög-
urra og sex ára aldur. Reykjavík, Kennara-
háskóli íslands, 1986. (Rit KHÍ, A-flokkun
Rannsóknarritgerðir og skýrslur 1)
Indriði Gíslason. Málvisi 1. Reykjavík,
Námsgagnastofnun 1983.
Indriði Gíslason. Málvísi 2. Reykjavík,
Námsgagnastofnun 1985.
Indriði Gíslason. Málvísi 3. Reykjavík,
Námsgagnastofnun 1986.
Sverrir Hermannsson. „Hér er um tilveru-
rétt íslenskrar þjóðar að tefla“. Morgun-
blaðið 3. des. 1985.
Höfundur er fastráðinn stunda-
kennari ííslensku við Kennarahá-
skólann.
Sýningu
að ljúka
SÝNINGU Ólafs Sveins Gíslason-
ar „ísland“ í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg 3b lýkur um helgina.
Ólafur lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1983.
Síðan 1983 hefur hann stundað
nám við Hochschule fiir bildende
Kiinste f Hamborg. Á sýningunni
eru teikningar og skúlptúrar, sem
Ólafur hefur unnið á árunum
1985-1986.
Á sýningunni er seld nýútkomin
bók eftir Ölaf, sem samanstendur
af blýantsteikningum frá árunum
1984-1985.
Opnunartími sýningarinnar nú
um helgina er 1:1. 14.00-22.00.
Aðventukvöld í
Sauðárkrókskirkju
Sauðárkróki.
AÐVENTUKVÖLD verður í
Sauðárkrókskirkju sunnudaginn
14. desember og hefst það kl.
20.30.
Ræðumaður verður Sigurbjöm
Einarsson, biskup. Unglingar lesa
ritningarorð og taka verulegan þátt
í tónlistarflutningi. Rannveig Jóna
Jónasdðttir leikur forleik á orgel
kirkjunnar og Jóhann Bjamason
leikur eftirleik. Kirkjukór Sauðár-
króks syngur undir stjóm Rögn-
valdar Valbergssonar, organista.
Kennarar Tónlistarskólans á Sauð-
árkróki flytja kantötu eftir J.S.
Bach. Einnig leikur strengjasveit
Tónlistarskólans jólalög. Formaður
sóknamefndar, Jón Karlsson, flytur
ávarp og sóknarpesturinn sr.
Hjálmar Jónsson leiðir bæn.
Þennan sama dag kl. 14.00 verð-
ur jólafundur með öldmðum
Sauðkrækingum í Safnaðarheimil-
inu. Þar talar Sigurbjöm Einarsson,
biskup, auk þess verður söngur og
upplestur.
KÁRI.
Jólagjöfm hans!
Adidas gjafasettin fást
i helstu snyrtivöruverslunum
Kemuruppum
lacoste þinn góða smekk!
-fierm-
GARÐURINN
AÐALSTFÆTI9 S:12234
Asgrímur Jónsson
Ásgrímur O
Jónsson
Ásgrímur Jónsson er einn fremsti meistari
íslenskrar myndlistar. Myndir hans tala
skýrt til skoðandans, eru máttugar í hrein-
leik sínum, en dulúðin, sem býr undir
yfirborðinu, ljær þeim heillandi dýpt.
Ásgrímur var einkar ötull í listsköpun
sinni. Meginyrkisefni hans er ramm-
íslenskt: fegurð landsins og kynngi þjóð-
sagna.
í bókinni eru fjölmargar litprentanir af
málverkum listamannsins auk teikninga
eftir hann og ýmissa ljósmynda. Höfundar
ritaðs máls eru tveir, þau Hrafnhildur
Schram og Hjörleifur Sigurðsson. Á nær-
færinn hátt draga þau upp sína myndina
hvort af listamanninum.
Þetta er sjötta verkið í bókaflokknum um
íslenska myndlist.
LISTASAFN ASÍ
lögbetg Bókaforlag
Þingholtsstræti 3
ARGUS/SIA