Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
13
Metsölutímaritið MANIMLÍF
er komið út!
MANNLÍF er komið út, stærra og betra en nokkru sinni fyrr, 188 biaðsfður að stærð.
MANNLÍF er útbreiddasta tímarit, sem nokkru sinni hefur komið ut á ísiandi.
kansiara Vestur-Þýskaiands, Milan Kundera, rithöfund og kvikmyndastjörnuna Charlotte
Rampling.
Enginn annar íslenskur fjölmiðill getur státað af að hafa sent blaðamann í suðupottinn
f Nicaragua.
MANNLÍF — magnað tímarit!
Fátt hefur vakið meiri athygli í heims-
fréttunum undanfarnar vikur en
ástandið í Nicaragua, átök stjórnar
Sandinista og skæruliða contra og
aðild Bandaríkjastjórnar að þeim.
Stefán Jón Hafstein, fréttamaður, fór
fyrir Mannlíf til Nicaragua fyrir stuttu
og segir frá þeirri reynslu í myndum
og máli, en hann var m.a. viðstaddur
hin afdrifaríku réttarhöld yfir banda-
ríska flugumanninum Hasenfus og 25
ára afmæli Sandinistahreyfingarinnar.
Pétur Pétursson, knattspyrnu-
maður á Akranesi, á að baki
glæsta sigra á vettvangi at-
vinnumennskunnar í evrópskri
knattspyrnu. En hann hefur líka
þurft að taka sárum ósigrum,
bæði í knattspyrnunni og einka-
lífinu. Frá þessu segir Pétur á
hispurslausan hátt í samtali við
Mannlíf.
fl/ . fSíW'í\ *
J ■'....V. ’
'T&' í'! ii*'iíéM
mmr"~
I miM:
V'Wr'f
I wEtlk.
mlPVrwmW^
■
■
WyíÆíM'É.
Gunnar Örn Gunnarsson er
í fremstu röð íslenskra mynd-
listarmanna og bjóðast ýmis
tækifæri á erlendri grund.
Gunnar Örn hefur nú dregið
sig út úr skarkala heimsins
og lifir kyrrlátu lífi á bóndabæ
fyrir austan fjall. En lífið hefur
ekki alltaf leikið við Gunnar
Örn. Hann segir frá göngunni
gegnum hreinsunareldinn.
Sókn Alþýðuflokksins í ís-
lenskum stjórnmálum hefur
þótt miklum tíðindum sæta.
Margir telja að framboð Jóns
Sigurðssonar, forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar, í efsta sæti á
lista flokksins í Reykjavík sé
eitt af lykilatriðum í þeirri
sókn. Jón hefur um árabil
verið einn af áhrifamestu
mönnum íslenskra þjóðmála
á bak við tjöldin, en nú stígur
hann fram á sviðið og veitir
Mannlífi fyrsta persónulega
viðtalið á sínum ferli. Þar
kemur m.a. fram að Jón hefur
ekki aðeins fengist við tölur;
hann hefur líka tekist á við
Ijóðlist.
Einn virtasti leikari þjóðarinnar, Hjalti Rögn-
valdsson, er fiuttur úr landi, flúinn mann-
fjandsamlegt þjóðfélag okkar, að því er
hann segir sjálfur í viðtali við Mannlíf, þar
sem hann skefur ekki utan af hlutunum.
Þrjár heimsfrægar manneskjur, hver á sínu sviði, segja frá sjálfum sér í einkaviðtölum við blaða-
menn Mannlffs — Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands og formaður vestur-þýskra
jafnaðarmanna, rithöfundurinn sem æ oftar er nefndur í sömu andrá og Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum, Milan Kundera og kvikmyndastjarnan Charlotte Rampling.
■«r s' ~ r
______________________________________________________________________________________________________________i
:
■
Meðal fjölmargs annars efnis: Fjallað um afbrigðilegt kynlíf í athyglisverðri grein sem nefnist Dýrið í manninum?; óvenjuleg athugun á
þróun hugmyndarinnar um Grýlu, Leppalúða og jólasveinana gegnum breytingar íslensks þjóðfélags; greint frá athvarfi unglinganna sem
hvergi eiga heima í Reykjavík og þeirra, sem ekki þora heim; „Húsinu", sem Rauði krossinn rekur við Tjarnargötu; starfsmenn nýju Ijós-
vakamiðlanna Bylgjunnar og Stöðvar 2 fagna fyrsta ári frjálsrar fjölmiðlunar í samkvæmisfatnaði frá nokkrum tískuverslunum borgarinnar
í tískuþætti Mannlffs; rætt við söngkonuna góðkunnu Sigríði Beinteinsdóttur, sem nú er að hefja sinn sólóferil; sagt í máli og myndum
frá séríslensku ferðamálafyrirbæri „kvennaferðunum" svokölluðu til Parísar og margt, margt fleira.
10.000
ÁSKRIFENDUR